Morgunblaðið - 11.05.1984, Qupperneq 10
42
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 11. MAl 1984
Bruna-
slöngu-
hjól
Eigum fyrirliggjandi 3A", 25 og
30 metra á hagstæðu verði
ÖLAfUR GÍSLASOM
4 CO. llf.
SUNDABORG 22 104 REYKJAVfK SiMI 84800
FRYSTIVÉLAR
0.37-50 kW
ÞRJÁR GERÐIR
Sérhæfð þjónusta
i frysti-
og kælikerfum.
Suðarvogi 20, 104 Reykjavik
Simar 30031 og 84580
Janís Carol eða Carol
Nielssen, eins og hún kallar
sig núna, er flestum íslend-
ingum kunn. Hún kom til
London fyrir rúmum fimm
árum, algerlega óþekkt. Á
þessum skamma tíma hefur
hún náö ótrúlega langt.
Annan aprfl tók hún vió aö-
alkvenhlutverkinu í Cats,
sem er hennar langstærsta
hlutverk hingað til.
Þaö þarf áræöni og dugn-
aö og trú á sjálfan sig til aö
komast áfram í þessum
heimi, því samkeppnin er
mikil. Eg fór og hitti Carol
Nielssen milli sýninga, dag-
inn eftir frumsýningu henn-
ar.
Ég hef ekki skiliö það enn, aö ég
hef náö besta hlutverkinu í besta
söngieikum í West End, sagöi hún í
upphafi samtals okkar. Á fyrstu
sýningunni í gær var allt vitlaust,
þaö var klappað svo mikiö aö ég
heyröi stundum ekki í tónlistinni svo
minnstu munaöi að ég færi út af
laginu. Einn leikaranna sagöi aö
hann heföi aldrei heyrt svona fagn-
aöarlæti.
Komst í 10. sæti
í Svíþjóð
Ég kom til Englands frá Svíþjóö.
Viö höföum verið þar í tvö ár. Viö
unnum þar meö hljómsveitnni Lava
sem samanstóð af íslensku fólki.
Þaö gekk ágætlega nema viö vild-
um spila fönk og dálítið svarta mús-
ík. Þaö gekk ekki alveg nógu vel,
þannig aö viö vorum farin aö breyta
músíkinni svo mikið til þess aö gera
Svíana ánægöa og til aö geta feng-
iö vinnu. En þaö var ekki sú stefna
sem viö vildum taka, þannig aö þaö
endaöi meö þvi aö ég geröi litla
plötu, sem gekk ofsalega vel og
náöi 10. sæti á vinsældalistanum.
Þá héldum viö aö viö værum komin
á græna grein, en plötufyrirtækiö
fór á hausinn stuttu seinna. Og þaö
sátu allir eftir meö sárt enniö og
engan pening út úr einu eöa neinu.
Þetta var búiö aö vera ofsalega erf-
itt. Viö ákváöum aö flytja burt og
fara til Englands.
Ég er fædd á Englandi, en alin
upp á íslandi. Hvorugt foreldra
minna er íslenskt, en vegna þess aö
mér gengur vel núna, þá er ég
a.m.k. hálfíslensk. En ég er mjög
íslensk í mér og Island mitt annaö
heimaland. Ég er ööruvísi en enskar
steipur. Uppeldiö heima á Islandi
hefur haft mikil áhrif á mig eins og
gefur aö skilja.
Bakraddatríó
með Shady Owens
og systur minni
Við komum til Englands veturinn
1978 og þá þekktum viö ekki
hræöu í bransanum. Systír mín var
hérna líka, hún bjó hjá mér fyrst í
staö meö syni sínum. Viö keyptum
okkur hús hérna og settumst aö.
Þaö var enga vinnu aö fá, svo viö
liföum á peningum, sem viö höföum
iagt til hliðar. En þaö gekk ekki, svo
góö ráö voru dýr. Viö fórum aö
vinna á krá í nokkrar vikur, svo fór
ég aö vinna á skrifstofu o.s.frv.
Þetta var í um 3 mánuöi. Þá fengum
viö fyrsta jobbiö.
Systir mín, Linda Walker, Shady
Owens og ég settum saman bak-
raddatríó og fórum um landiö meö
Freddy Star, sem er mjög frægur
grínisti hérna. Ég var í um 5 mán-
uöi, Shady hætti rétt á undan mér
en Linda var rúmt ár. Þetta var ein-
hvern veginn ekki þaö sem ég vildi.
Fékk strax smáhlut-
verk í Evitu
Ég var búin aö sjá svona þaö
sem var aö gerast í leikhúsunum og
mér datt í hug aö fara aö leita fyrlr
mér þar. Svo ég fór aö kynna mér
þessa hluti. Og ég fór ekki nema í 3
prufur, en þá fékk ég vinnu.
Þaö voru fleiri hundruö stelpur
aö reyna aö komast í Evitu. Ég
haföi engan pantaöan tíma, þóttist
vera aö koma utan af landi og hafa
séð auglýsinguna. Sá sem sá um
þetta var svo almennilegur, aö hann
kom mér að í prufu. Þetta var uni
kl. 10.30, en eftir hádegi var hringt í
mig og mér boöiö lítiö hlutverk. Ég
var steinhissa, því vanalega þarf aö
fara í margar prufur áöur en end-
anlega er valiö úr, hver fær hlut-
verkið. Þaö byrja kannski nokkur
hundruö og síöan er sigtaö út. T.d.
voru um 8000 manns prófaöir í 40
hlutverk, þegar Evita byrjaöi, en ég
kem inn þegar Evita hefur gengiö í
eitt ár. Ég var önnur nýja söngkon-
an. Ég var þar í næstum tvö ár og
þá búin aö fá drepleið á því.
í millitíöinni var ég búin aö kynn-
ast mörgum og hafa eyrun opin. Ég
sá aö ég haföi góöan möguleika á
aö berjast viö þessar stelpur, sem
voru meö aöalhlutverkin. Ég hugs-
aöi meö mér, ef þeir geta þetta þá
get ég þetta lika. Og ég fylltist bar-
áttuhug, ég ætlaði mér aö veröa
eitthvaö.