Morgunblaðið - 30.05.1984, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1984
Fjölmenni sótti afmælisfagnað Sjálfstæðisflokksins
Ekki aðeins Tullorðna fólkið sá ástæðu til að fagna afmæli Sjálfstæðisflokksins, heldur einnig þeir yngri, og er
ekki annað að sjá en að kátt hafi verið á hjalla í kjallara Valhallar, þar sem þessi mynd er tekin.
Sjúkr aþjál farar
á sáttafundi í dag
Hafa boðað nýtt verkfall frá 4. júní
SÁTTAFUNDUR í kjaradeilu sjúkraþjálfara hjá Æfingastöð lamaðra og fatl-
aðra verður hjá ríkissáttasemjara í dag kl. 11, en í dag lýkur jafnframt þriggja
daga verkfalli sjúkraþjálfaranna. Þeir hafa boðað annað verkfali frá og með 4.
júní nk. ótímabundið, hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma, en sam-
kvæmt heimiidum Morgunblaðsins ber enn mikið í milli hjá þeim og vinnuveit-
endum þeirra. Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hefur sagt upp öllu starfsfólki
sínu, 30 að tölu, með þriggja mánaða uppsagnarfresti, að tillögu framkvæmd-
astjóra félagsins Sigurðar Magnússonar.
Sigðurður Magnússon fram- sagnarbréfum til þeirra.
Viðurkenning rfkisskattstjóra á skattafrádrætti:
Frestur rennur út á
miðnætti annað kvöld
kvæmdastjóri félagsins sagði í við-
tali við Mbl. í gærkvöldi, að upp-
sagnirnar næðu til allra starfsm-
anna félagsins að sér sjálfum með-
töldum. Uppsagnirnar sagði hann
ákveðnar í þeim tilgangri að með
þeim gæfist félaginu umþóttunart-
íma til að betrumbæta rekstur sinn
innan frá og utan frá, en það stæði
nú frammi fyrir nokkrum restrar-
örðugleikum. Uppsagnirnar eru að
hans sögn ekki í beinu sambandi
við aðgerðir sjúkraþjálfar en þær
hafa þó valdið því að ákvörðun um
uppsagnirnar var hraðað. Sigurður
kvaðst vonast til að sá umþótturn-
artími sem félaginu gæfist með
þessu, yrði til þess að styrkja trú
almennings og hins opinbera á
starfseminni og einnig gæti það
leitt til betri þjónustu og tryggari
framtíðarvinnu starfsfólksins,
enda væri sú von látin í Ijósi í upp-
Grafískir teiknarar og vinnuveit-
endur þeirra hafa verið boðaðir á
sáttafund hjá ríkissáttasemjara nú
á föstudag kl. 11, en síðar þann
sama dag, eða kl. 15, hefst verkfall
auglýsingateiknaranna, hafi samn-
ingar ekki náðst.
Aðilar í virkjanadeilunni hafa
ekki ræðst við síðan sl. fimmtudag,
að upp úr slitnaði, en nú munu
málin vera eitthvað að skýrast,
þannig að þess er vænst að nýr
sáttafundur verði boðaður öðru
hvoru megin við helgina.
Enn ein kjaradeila er hjá ríkis-
sáttasemjara, en það er deila línu-
manna hjá Reykjavíkurborg. Guð-
iaugur Þorvaldsson ríkissáttasemj-
ari tjáði blaðamanni Morgunbiaðs-
ins það í gær, að sú deila myndi
bíða enn um sinn, þar sem hluti
samningamanna væru fjarstaddir
um þessar mundir.
„Einstaklingur getur fengið 20 þúsund krónur til frádráttar og hjón geta
fengið 40 þúsund krónur til frádráttar samkvæmt lögum um frádrátt frá
skattskyldum tekjum, vegna fjárfestingar í atvinnurekstri, en þessar tölur er
háðar skattavísitölu, svo að upphæðin getur orðið hærri eða lægri þegar að
skattaframtali kemur næst,“ sagði Sigurbjörn Þorkelsson ríkisskattstjóri í
samtali við blm. Mbl. í gær. Umsóknarfrestur hlutafélaga og fjárfestingarfé-
laga samkvæmt þessum nýju lögum, til þess að sækja um viðurkenningu
ríkisskattstjóra á að viðkomandi hlutafélag eða fjárfestingarfélag uppfylli
þau skilyrði sem skattalögin setja um slík félög til þess að sá sem fjárfestir í
hlutabréfum þess, fái fjárfestinguna, 20 þúsund til 40 þúsund frádráttarbæra
til skatts, rennur út á miðnætti annað kvöld.
Sigurbjörn sagði að hér væri um
fjóra aðskilda fjárfestingarmögu-
leika að ræða. í fyrsta lagi væri
hægt fyrir einstaklinga að leggja
fé inn á stofnfjárreikninga, í því
skyni að stofna síðar til eigin at-
vinnustarfsemi, en slíkt ætti ekki
við um atvinnurekstur sem þegar
væri fyrir hendi. Þá væri hægt að
fjárfesta í hlutabréfum, og ein-
staklingur sem gerði það gæti
dregið frá 20 þúsund krónur við
skattaframtal á næsta ári, svo
fremi sem hlutafélagið uppfyllti
ákveðin skilyrði, svo sem það að
hlutafé væri a.m.k. 5 milljónir og
að hluthafar væru a.m.k. 50, að
kaupa hlutabréf í hlutafélögum,
sem þá verða að vera viðurkennd
af ríkisskattstjóra. 1 þriðja lagi
sagði Sigurbjörn að menn gætu
myndað svokallaða starfsmanna-
sjóði, sem væri þá sameignarfélag
starfsmanna sem starfaði í tengsl-
um við ákveðið hlutafélag. Hann
sagði að slíkt félag þyrfti jafn-
framt að uppfylla ákveðin skil-
yrði, eins og það að fá félagssamn-
ing sinn staðfestan hjá ríkisskatt-
stjóra. Það yrði að gerast áður en
félagið gæti tekið við frádráttar-
bærum framlögum starfsmanna,
en á því væru hins vegar engin
tímamörk. í fjórða lagi nefndi Sig-
urbjörn möguleikann að kaupa
hlutabréf í fjárfestingarfélögum,
sem sérstaklega væru mynduð til
fjárfestingar í áhættufé í atvinnu-
fyrirtækjum, skuldabréf o.þ.h.
Sigurbjörn sagði ekkert hægt
um það að segja hversu mörg félög
hefðu sótt um viðurkenningu rík-
isskattstjóra fyrr en umsóknar-
frestur væri útrunninn. Hann
sagði auk þess ekkert hægt að
segja til um það hvenær umsækj-
endur fengju svör við umsóknum
sínum. Það færi allt eftir því
hversu margar umsóknir bærust,
og hversu vel úr garði þær væru
gerðar.
Ritstjórar allra íslenskra dagblaða:
Rituðu Chernenko bréf
BRÉF undirritað af ritstjórum allra íslenskra dagblaða, hefur verið sent til
Chernenko forseta Sovétríkjanna og afrit af bréfinu til sovéska sendiherr-
ans í Reykjavík. Bréf ritstjóranna er svohljóðandi:
„Til forseta Forsætisnefndar
Æðsta ráðs Sovétríkjanna Konst-
antins Chernenko.
Við undirritaðir ritstjórar allra
dagblaða á íslandi förum þess á
leit við yður, hr. forseti, að Elena
Bonner fái að ieita sér lækninga
erlendis. Einnig að maður hennar,
hinn heimskunni og virti vísinda-
maður A. Sakharov, fái að fara
frjáls ferða sinna, fái að snúa aftur
til Moskvu eða fara úr landi ef það
er ósk hans.“
Undir þetta bréf rita ritstjór-
arnir Þórarinn Þórarinsson, rit-
stjóri NT, Matthías Johannessen,
ritstjóri Morgunblaðsins, Árni
Bergmann, ritstjóri Þjóðviljans,
Ellert B. Schram, ritstjóri DV og
Árni Gunnarsson, fyrir hönd Al-
þýðublaðsins.
Hækkunarbeiðni frá olíufélögunum hjá Verðlagsstofnun:
Vilja hækka svartolíu
um 17 % og gasolíu um 9%
„Skila skal því
sem ríkinu beru
— segir fjármálaráðherra, sem heimilað
hefur fjölgun skattrannsóknamanna
„ÞETTA er allt í undirbúningi. Ég
gaf grænt Ijós á að skatlrannsókna-
stjóri mætti ráða eitthvað af
mönnum, ef hann fengi góða menn,“
sagði Albert Guðmundsson fjármála-
ráðherra aðspurður um, hvort hann
hefði heimilað fjölgun um 25 starfs-
menn til skattaeftirlits á vegum emb-
ættis skattrannsóknastjóra.
Albert sagði ennfremur að talað
væri um að bæta þyrfti við 25
manns, ekki aðeins við skattrann-
sóknastjóraembættið sjálft heldur
einnig hjá rannsóknarlögreglu og
skattstjórum úti á landi. Hann
sagðist hafa gefið grænt ljós á að
hefja mætti ráðningar, en ljóst
væri að ekki yrði gengið frá öllum
ráðningunum í einu, þó ekki væri
nema vegna þess að aðstaða væri
ekki fyrir hendi fyrir þá alla.
Aðspurður um af hverju ákvörð-
un hefði verið tekin um þessa fjölg-
un sagði hann: „Við höfum rætt
þetta og rikisstjórnin er sammála
um það að herða eftirlit, því þeir
sem eiga að standa skil á opinber-
um gjöldum verða að gera það. Það
hefur fallið í okkar verkahring
hérna að sjá um að það sé gert og
ekki viljum við halda hlífiskildi yf-
ir þeim sem ekki vilja skila því sem
ríkinu ber.“
HJA verðlagsráði hefur nú legið í
tæpan mánuð beiðni olíufélaganna
um leyfi fyrir verðhækkun á gasolíu
og svartolíu, en beiðnin hefur enn
ekki verið afgreidd frá ráðinu.
Ólafur H. Johnson hjá Skeljungi
hf. sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að félögin hefðu farið
fram á að fá að hækka gasolíulítr-
ann úr 8,50 krónum í 9,30 en það
er um 9% hækkun, og auk þess
hefðu félögin farið fram á að fá að
hækka svartolíutonnið úr 7.250
krónum I 8.450 krónur, sem er um
17% hækkun. Ekki var sótt um að
fá að hækka aðrar olíu- eða bens-
íntegundir.
„Það er að verða mánuður síðan
við lögðum inn þessa beiðni, en
henni hefur enn ekki verið sinnt af
Verðlagsstofnun," sagði Ólafur H.
Johnson hjá Skeljungi, „og vegna
þess hve beiðnin er orðin gömul er
ljóst að hækkunin þarf að verða
eitthvað meiri, en farið er fram á í
beiðninni."
Ólafur sagði að þessi hækkun-
arbeiðni væri tilkomin vegna þess
að þessar olíutegundir hefðu
hækkað erlendis og vegna þess að
ákveðin hefði verið ótímabær
lækkun á þessum olíutegundum í
desember sl.
BUR flytur út
ferskan karfa
BÆUARÚTGERÐ Reykjavíkur hefur ákveðið að halda áfram útflutningi
á ferskum karfa til Bandarfkjanna á vegum Coldwater. Verður karfinn
fluttur flugleiðis með áætlunarvélum Flugleiða að meðaltali fjórum
sinnum í viku.
Það sem af er þessum mánuði
er BÚR með 80% karfaútflutn-
ingsins og helminginn af öllum
ferskfiskútflutningum með
þessum hætti eða alls um 65
lestir. Coldwater kannaði á
mánudag áhuga forráðamanna
frystihúsa á Suðvesturlandi á
því, að taka þátt í þessum út-
flutningi og muna að minnsta
kosi átta frystihús hafa lýst
áhuga sínum.
Albert um dómssáttina:
Á eftir að ráðg
ast við Lucy
„ÉG á alveg eftir að ráðgast við
Lucy um þetta. Hún verður að ráða
einhverju. Ég er svo nýkominn að
utan að mér hefur ekki gefist tími
til að athuga þetta, sagði Albert
Guðmundsson fjármálaráðherra,
er hann var spurður, hvort hann
hygðist fallast á þá dómssátt, sem
rfkissaksóknari hefur heimilað,
vegna ólöglegs halds hans á tík-
inni Lucy í Reykjavíkurborg.
Aðspurður um heilsufar Lucy-
ar, sem er orðinn 13 ára gömul,
sagði Albert: „Hún er að berjast
fyrir lífi sínu greyið í þessu máli
á háum kerlingaraldri, en hún er
góð til heilsunnar. Hún er orðin
feit og þung í hreyfingum. Það er
ekki nema hún sjái kött út i
garði að hún heldur að hún sé
orðinn ung á ný og hieypur, en
kemur svo lafmóð til baka og
lepur vatn."