Morgunblaðið - 30.05.1984, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 30.05.1984, Blaðsíða 15
15 búum, maður á fimmtugsaldri, sem árum saman hefur haft það fyrir sérgrein að mála myndir úr nærliggjandi götum, flestar í móskulegum litum með yfirgnæf- andi rauðleitum eða fjólubláum blæ. Við May köllum hann yfir- leitt Van Gogh okkar í milli, því að þegar við veittum honum fyrst athygli fyrir nokkrum árum var hann með hattkúf á höfði sem minnti okkur á eina sjálfsmynd hins flæmska málara. Van Gogh er einn af þeim hundruðum listamanna, sem tvisvar á ári taka þátt í útisýningu hér í þorpinu. Það er eins árvisst og varptími fugla, að þegar líða tekur á vor fara málarar, mynd- höggvarar, og fleira hagleiksfólk, sem ég kann varla að flokka, að hreiðra um sig á gangstéttum Grænuvíkurþorps og fóðra bæli sín með vetrarvinnunni. Þá eru frá morgni til kvölds um tveggja til þriggja vikna skeið flestar gangstéttir undirlagðar af olíu- málverkum, vatnslitamyndum, grafíkverkum, skúlptúr og listiðn- aðarvörum í flestum formum og myndum, svo að vart verður þver- fótað — að ekki sé nú talað um að komast leiðar sinnar. Margt af þessu dóti er auðvitað miðlungs- og þaðan af lélegri verk — sumt mætti jafnvel kaila drasl án þess að mikið væri ýkt — en innan um er alltaf talsvert af frambærilegri list og einstaka ágætisverk. Og ekki vantar heldur að þetta sé skoðað. Þegar vel viðrar, einkum um helgar, flykkist hingað múgur og margmenni úr öllum hlutum borgarinnar, ásamt töluverðu slangri af utanbæjarmönnum og útlendu ferðafólki, og verslun er stundum blómleg. Sama saman endurtekur sig fyrri part hausts. Ég hef oft bölvað hressilega og óskað öllum „skransölum" til fjandans, þegar ég hef þurft að skreppa út í búð og ekki komist leiðar minnar fyrir þröng fólks sem er að vafra um og skakkblína á léreft, en ekki er því að neita að þetta lífgar líka upp á þorpsbrag- inn. Ekki munu kaupmennirnir heldur kvarta. Þegar slíkur skari er saman kominn fer ekki hjá því að einhver hluti hans líti inn í búðirnar þeirra og þyngi þeim i vösum. Roy Lichtenstein í SoHo Naest fyrir sunnan Grænuvíkur- þorp er borgarhverfi sem nú nefnsit SoHo. Það nafn er þó ekki komið frá Lundúnahverfinu sem svo heitir, heldur er það samdrátt- ur úr orðunum „South of Houston Street", eða Sunnan Houston- strætis. Þetta er gamalt verk- smiðju- og iðnaðarhverfi, sem varð athvarf margra listamanna eftir að oddborgararnir fóru að streyma inn í Grænuvíkurþorp og sprengja upp húsaleigu. Nú eru þar sýningarsalir í löngum röðum, listiðnaðar- og klæðaverslanir, og mikið af nýjum matsölu- og skemmtistöðum. Galleríin í SoHo hafa á boðstól- um að heita má allt stafróf mynd- listarinnar frá gamaldags veru- leikastælingu til fáránlegustu framúrstefnuverka. Einhvers staðar þar mitt á milli — þótt ef til vill megi um slíka staðsetningu deila — stendur Roy Lichtenstein, sem var einn af forsprökkum pop-listarinnar svokölluðu á sjöunda áratugnum. Ég hafði lengi þekkt hann af afspurn en aldrei séð meira en eitt eða tvö af verkum hans saman komin á ein- um stað fyrr en ég labbaði mig niður í SoHo snemma þessa árs að leiða augum sýningu, sem haldin var í tilefni af sextugsafmæli hans. Og reyndar var þessi sýning líka á meira en einum stað, því að svo fyrirferðarmikið var eitt af verkum hans, að ekki var annað sýnt í þeim sal, og er hann þó ekki smár. Þetta var mynd máluð beint á vegginn, sem mun vera um 5,5x29 m að flatarmáli. Þarna voru samankomin í einni risamynd, MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1984 hvert við hliðina á öðru, mörg þau mótíf sem Lichtenstein hefur fjallað um í myndum sínum: pýra- mídi, trekt, sneið af svissneskum osti, skjalaskápur, kjaftastóli, stílabók, rúlla af skeinipappír, umslag, hönk af rafmagnsvír með klóm, og þar fram eftir götunum. Skissa að þessari veggmynd (Greene Street Mural) er í Nú- tímalistasafninu. Á hinum staðn- um voru saman komin mörg minni verk og þó ekki öll smá. Flestar voru þessar myndir hver annarri líkar. Næstum allar voru í raun- inni myndir af myndum: hlutar tveggja innrammaðra verka (eða hlutar af mynd og glugga) og sér í vegg á milli. Eins og aðrir pop-listamenn Fyrri hluti „Hrafninn flýgur". Við töku mynd- arinnar. notar Lichtensteinaðferðir, efni, og tækni auglýsinga- og mynda- seríuteiknara, og það er svo sem augljóst að handbragðið er æft og öruggt, og það kann ég að meta. En hver list er í verkum hans fólg- in, auk leikni hins gamalgróna handverksmanns, sýnist mér ekki eins ótvírætt. Engin þessara mynda höfðaði til mín á nokkurn hátt — hvorki til skynsemi né til- finninga. Þær létu mig jafnósnort- inn og dauð maðkafluga í glugga- kistu. Nema hvað mér sýnist maðkafluga meira listaverk frá nátturunnar hendi. AF SKATTSKYLDUM TEKJUM AF ATVINNUREKSTRI -TELl.JtJLÍ Fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa tekjur af atvinnurekstri er nú heimilt að draga 40% frá skatt- skyldum tekjum til að leggja í fjárfestingarsjóð. Frádrátturinn er bundinn því skilyrði að helm- ingur fjárfestingarsjóðstillagsins sé lagður inn á bund- inn 6 mánaða reikning fyrir 1. júlí n.k. vegna tekna árs- ins 1983. Ef reikningsárið er annað en almanaksárið skal lagt inn á reikninginn innan 5 mánaða frá lokum reikningsárs. Innstæður á reikningunum eru verðtryggðar samkvæmt lánskjaravísitölu. Auk þess býður Lands- bankinn 1,54% stigum hærri vexti en gilda um aðra 6 mánaða reikninga. Það er besta ávöxtun, sem boðin er. Reikningsinnstæðum má ráðstafa að loknum 6 mánaða binditíma, en innan 6 ára. Enn er hægt að njóta þeirra skattfríðinda sem að framan er lýst, við álagningu tekjuskatts og eignaskatts á árinu 1984 vegna tekna ársins 1983. Fresturinn að þessu sinni er til 1. júlí n.k. Upplýsingar um stofnun fjárfestingarsjóðsreikninga eru veittar í sparisjóðsdeildum Landsbankans. LANDSBANKINN Græddur er geymdur eyrir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.