Morgunblaðið - 30.05.1984, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1984
17
ingasögur í ritum sínum, sýnir
þessi grein og síðan aðrar hvert
hugur hans stefndi. í blaðinu
tóku að birtast reglulega sögu-
þættir úr íslensku þjóðlífi á 18. og
19. öld, undir heitinu Þjóð og
saga, og haustið 1958 kom út
fyrsta bindið af íslensku mann-
lífi, sem varð fjögurra binda rit-
röð á fimm árum. Með útgáfu ís-
lensks mannlífs hefst raunar rit-
höfundarstarf Jóns Helgasonar,
sem varð mikið að vöxtum og
gæðum áður en lauk.“
Og loks segir Andrés Björnsson
í formála sínum: „Það var einmitt
þessi samruni vandaðrar heim-
ildarkönnunar og listrænnar úr-
vinnslu sem skipaði Jóni Helga-
syni á bekki meðal fremstu rit-
höfunda frá upphafi. Honum var
sérlega lagið að grafa upp efni
sem unnt var að vinna úr áhrifa-
ríkar sögur, er þegar í stað tóku
hugsa lesandans fanginn. I úr-
vinnslu hafði hann mikinn styrk
af nálega óbilandi staðþekkingu
sinni og næmri tilfinningu fyrir
aðstæðum öllum. Þannig skipaði
hann sögum sínum á svið og
kunni með afbrigðum að marka
þeim upphaf og endi. Auðvitað
gefa söguefnin misjafnt svigrúm
og eru misstór í sniðum, en mörg
þeirra eru völundarsmíð. Hér við
bættist ögun í máli og stíl sem
Jón hafði tamið sér og féll sérlega
vel að því efni sem hann fjallaði
um ... Efni og meðferð þess er
mjög fjölbreytt í íslensku mann-
lífi. Söðlasmiður úr Hafnarfirði
deyr vinum horfinn einstæðingur
í Þýskalandi, víðsfjarri ættjörð
sinni. Ung stúlka hleypur út í
norðlenska stórhríð til að ala
barn sitt. í Oddrúnarmálum er
sagt frá hinum „fullkomna" glæp,
óráðinni gátu auk sérstæðrar
mannlýsingar.
íslenskt mannlíf eru örlagasög-
ur, þar sem teflt er fram íslensku
fólki, ríku og snauðu, menntuðu *
og fákunnandi á tveimur öldum,
þegar fæst árin léku við þessa
þjóð, en sýndu henni þeim mun
oftar í tvo heimana. — Að fornri
sagnahefð heldur söguritarinn
sig utan sviðs, en lætur helst at-
burði lýsa sögupersónum. Þessar
sögur veita þó oft lesendum víð-
ari sýn en til sögupersónanna
einna og eru í eðli sínu margar
hverjar allt eins aldarfarslýsing
með margvíslegri skírskotun um
háttu manna og hagi. Má nefna
sem dæmi frábæra frásögu, sem
Jón Helgason nefnir Landskuld
af Langavatnsstað og er að finna
í öðru bindi íslensks mannlífs
u
Jón Helgason skrifaði fleiri rit
en íslenzkt mannlíf og Tyrkja-
ránið, til að mynda tvær heimild-
arsögur, Orð skulu standa, ævi-
sögu Páls Jónssonar vegfræðings,
1971, og sögur Jóhanns bera:
Þrettán rifur ofan i hvatt, 1972;
þá skrifaði hann Öldina, 16., 17.
og 18, afmælisrit um Borgarnes
og framhald af Islenzku mannlífi,
Vér Islands börn, sem kom út í
þremur bindum á árunum
1968—1970. Loks skrifaði Jón
Helgason fjögur smásagnasöfn á
áttunda áratugnum, Maðkar í
mysunni, 1970, Steinar í brauð-
inu, 1975, Orðspor á götu, 1977, og
Rautt í sárið, 1978. Má taka undir
þau orð Andrésar Björnssonar að
vera má, að Jón Helgason hafi
horfið frá heimildarsögum að
samtímasagnagerð vegna þess að
hann hafi verið orðinn þreyttur á
því að vera bundinn heimildum
og þráð aukið frjálsræði í efnis-
vali og meðferð þess, eins og And-
rés kemst að orði: tilbreyting er
hverjum höfundi nauðsynleg.
Glíman við nýjan stíl og nýtt
málfar var Jóni Helgasyni áskor-
un sem hann hljópst ekki frá.
Síðasta bók Jóns Helgasonar var
Stóra bomban sem út kom 1981.
Hann gaf alls út 22 bækur og eru
það ekki lítil afköst þegar haft er
i huga að hann hafði lengstum
blaðamennsku að aðalstarfi, en
ritaði bækur sínar í hjáverkum.
En hann hafði erindi sem erfiði.
Því til staðfestingar er í frétta-
tilkynningu Iðunnar vitnað til
orða dr. Kristjáns Eldjárns í rit-
dómi um Islenzkt mannlíf en
hann sagði: „Þessi höfundur fer
listamannshöndum um efni sitt,
byggir eins og listamaður af þeim
efnivið sem hann dregur saman
sem vísindamaður."
Bókin íslenzkt mannlif er
prýdd teikningum eftir Halldór
Pétursson listmálara. Hverju
bindi fylgir nafnaskrá. Þau eru
um 220 blaðsíður hvert. Prentun
annaðist Prentsmiðjan Oddi hf.
Iðunn ráðgerir að gefa út fleiri
ritverk eftir Jón Helgason í sama
búningi og þau sem út eru komin.
Það eru góð tíðindi.
m.
Sjálfstæðisfélag Seltirninga hafði opið hús sl. laugar- stæðisflokksins. Að þeim loknum voru veitingar fram-
dag í nýju félagsheimili að Austurströnd 3. Skólalúðra- reiddar. Hið nýja húsnæði er ekki fullfrágengið, en
sveit Seltjarnarness lék fyrir gesti sem voru hátt á stefnt er að því að taka það í notkun með haustinu á 25
annað hundrað. Ávörp fluttu Jóhannes Jónsson, for- ára afmæli sjálfstæðisfélagsins, sem er í september
maður félagsins og Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf- nk.
Sjálfstæðismenn á Seltjarnarnesi í nýtt húsnæði
Er vogin íólagi?
Ef svo er. haf ió þá
samband vió
vogaverkstæói
okkaraó
Smióshöfóa lO.
J Simi 86970
ÓlAfUa OÍSIASOM 4 CO. !lf.
VOGAÞJÓNUSTA
SMIÐSHOFÐA 10 SIMI 86970
íMíóarkápu!
Símaskráin er allsstaðar nauðsynleg. En eftir nokkra
notkun vill hún verða snjáð. Stundum rifna blöð úr
og þá geta skapast vandræði. Forðum því.
Hlífðarkápan frá Múlalundi er lausnin.
Endist ár eftir ár og er ódýr í þokkabót. ®
Hafið samband við sölumann. |f
Múlalundur
Ármúla 34 - Símar 38400 og 38401 - 105 Reykjavík
RADIAL
VÖRUBÍLADEKK
Þú færð meiri endingu
úr stál-radial dekkjunum
frá Goodyear.
Kynntu þér kosti þeirra og hafðu
samband við sölumenn okkar.