Morgunblaðið - 30.05.1984, Qupperneq 21
MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1984
21
Dularfullt háttarlag
pólskrar flugvélar
Stokkhólmi, 29. maí. AP.
KINS HREYFILS herflugvél frá Póllandi var fjórum sinnum vísað á brott úr
sænskri lofthelgi í dag. Skýrði Sven-Olov Olsson, yfirmaður sænska flughers-
ins frá þessu í dag. llann kvaðst ekki geta útskýrt hið undarlega háttalag
flugvélarinnar, en taldi útilokað, að flugmaöurinn hefði haft í huga að flýja
land og komast til Svíþjoðar.
Verkfallsmenn í Vestur-Þýzkalandi í kröfugöngu. Verkföllin harðna nú dag frá degi og setja æ meiri svip á þjóðlífið
þar í landi.
„Þegar maður er á flugi, þá er
ekki unnt að gera sér grein fyrir
því, hvað er að gerast í flugvél
náungans. En ef hann gefur til
kynna, að hann eigi í vandræðum,
þá veitir maður honum aðstoð,"
sagði Olsson. Engin merki hefðu
hins vegar borizt frá hinni dular-
fullu flugvél um að flugmaðurinn
þar þyrfti á aðstoð að halda.
Flugvélin fór inn í sænska loft-
helgi yfir Suðaustur-Svíþjóð, sama
svæði og þar sem erlendir kafbátar
hafa farið inn í sænska lögsögu
hvað eftir annað. Einn sovézkur
kafbátur strandaði þar meira að
segja eins og kunnugt er. Olsson
sagði, að það kæmi ekki ósjaldan
fyrir, að erlendar flugvélar færu
inn í sænska lofthelgi, en það væri
Volkswagen-verksmiðjurn-
ar stöðva framleiðslu sína
YFIR 300.000 málmiðnaðarmenn
hættu vinnu í dag, er Volkswagen-
verksmiðjunum í Vestur-Þýzkalandi
var lokað. Um 95.000 manns úr þess-
um hópi var skipaö að fara í orlof,
sem standa á alla þessa viku.
„Kysstu og segðu“
London, 29. maí. AP.
STUTTUR KOSS á kinnina í staðinn fyrir langan koss getur verið
einkenni um hjónaband, sem er að fara út um þúfur. Kemur þetta
fram í leiðbeiningabæklingi, sem út kom í Bretlandi í dag á vegum
ráðgjafarstofnunar um hjónabandsmál. Heitir bæklingurinn
„Kysstu og segðu“ (Kiss and tell).
„Hvernig þú kyssir segir oft til um ástalíf þitt, en reglubundið
kynlíf sannar ekki neitt í því efni,“ segir í bæidingnum, sem inni-
heldur „Kysstu og segðu“-próf til þess að hjálpa hjónum við að vega
og meta, hvernig sambandi þeirra er komið.
„Okkur skortir margs konar
hluti í bílana. Þess vegna er það
útilokað að halda áfram fram-
leiðslu," sagði Orwin Witzel, tals-
maður verksmiðjanna í Wolfs-
burg. „Hvort við getum hafið
framleiðslu aftur á mánudaginn
kemur, fer eftir því, hvort sam-
komulag næst í þessari viku í
launadeilunni," sagði Witzel enn-
fremur.
Samningamenn beggja aðila í
vinnudeilunum hófu nýjar viðræð-
ur í morgun í Ludwigsburg í
grennd við Stuttgart. En hvorugur
aðilinn lét í ljós mikla bjartsýni á
þvi, að málamiðlun næðist bráð-
lega í þessum vinnudeilum, sem
eru þær víðtækustu í Vestur-
Þýzkalandi í 6 ár.
Volkswagen-verksmiðjurnar
hafa orðið síðastar úr hópi hinna
stóru bílaframleiðenda í Vestur-
Þýzkalandi til þess að stöðva
framleiðslu sína. Færiböndin
stöðvuðust strax 14. maí hjá Mer-
cedes-Benz, Audi, BMW, Porsche
og Opel.
einsdæmi, að sama flugvélin héldi
því áfram aftur og aftur.
Baktería
gegn tann-
skemmdum
New York, 29. maí. Al'.
ÍNNAN skamms verður hægt að
draga úr tannskemmdum með því
að láta skaðlausar bakteríur éta
bakteríu þá, sem skemmdunum
veldur. Kftir sem áður mun þó
nauðsynlegt reynast að bursta
tennur.
Vísindamenn við háskólann í
Connecticut reyna nú að finna
bestu leiðina til að smyrja skað-
lausri bakteríu, Tove, sem er af-
brigði Streptococcus salivarius, á
mannstennurnar.
Tilraunir með þessa bakteríu á
rottum sýndu að holumyndanir
minnkuðu um 40%. Bakterían
fjölgaði sér og nánast máði út
streptococcus mutans-bakterí-
una, sem veldur tannskemmdum
með því að breyta sykri í sýru er
leysir upp glerung tannanna.
Óljóst er hvers vegna Tove-
bakterían veldur ekki sjálf
tannskemmdum, en hún fram-
leiðir sýru er einnig leggst á
tennurnar, og einnig er óljóst
hvernig hún nær yfirhöndinni
gegn bakteríunni, sem skemmd-
um veldur.
Komið hefur í ljós að í munn-
vatni fólks með heilbrigðar tenn-
ur eru önnur afbrigði strepto-
coccus-bakteríunnar, sanguis og
uberis, sem ráðast gegn bakterí-
um er valda tannskemdum.
Kim II Sung
ræðir við
Jaruzelski
Tókýó, 29. maí. AP.
KIM IL SUNG, forseti Norður-
Kóreu, ræddi í gær við Wojciech Jar-
uzelski, forsætisráðherra Póllands,
og „skiptust þeir á upplýsingum
varðandi uppbygingu sósíalismans“
samkvæmt frásögn fréttastofu
Norður-Kóreu.
Kim, sem er 72 ára að aldri, er
nú á ferðalagi um ríki Austur-
Evrópu, en í síðustu viku var hann
í Moskvu til viðræðna við ráða-
menn þar. Kim hefur ekki komið
til Sovétríkjanna frá árinu 1961.
Jaruzelski hefur þegið boð Kims
um að koma í opinbera heimsókn
til Norður-Kóreu síðar. í Pól-
landsheimsókn sinni vitjaði Kim
m.a. leiðis óþekkta hermannsins
og sá sýningu pólsks leikflokks.
Bretland:
Kynþáttafor-
dómar aukast
London, 29. maí. AP.
TVEIR fimmtu Breta telja að kyn-
þáttafordómar gagnvart þeldökkum
mönnum og Asíumönnum eigi eftir
að aukast, samkvæmt skoðanakönn-
un, sem gerð var um land allt, og
35% þeirra er spurðir voru viður-
kenndu fúslega að þeir væru haldnir
kynþáttafordómum.
í könnuninni kom einnig fram
að 59% aðspurðra telja verka-
lýðsfélögin of áhrifamikil og rúm-
ur helmingur telur að efnahags-
ástandið eigi ekki eftir að batna.
Þá telja 70% þjóðarinnar að at-
vinnuleysi eigi eftir að aukast, en
þrjár milljónir Breta eru án at-
vinnu um þessar mundir. Jafn-
framt kom í ljós að svartsýni og
íhaldssemi er mjög ríkjandi meðal
þjóðarinnar.
Könnun þessi verður fram-
kvæmd árlega og er ætlað að
kanna breytingar á afstöðu fólks
til hinna ýmsu mála. Könnunin
leiddi í ljós að þeim, sem viður-
kenna að vera haldnir kynþátta-
fordómum, hefur fjölgað úr 27% í
35% á 15 árum. í Bretlandi búa 2,2
milljónir manna af öðrum litar-
hætti en hvítum.
Afmælishappdrætti
Sjálfstæðisflokksins
26 glæsilegir ferðavinningar
að verðmæti um 1.000.000 kr.
Dregið 9. júní
Vinsamlega gerið skil á heimsendum miðum
í Reykjavík er afgreiðsla happdrættisins í Valhöll Háaleitisbraut 1
Sími 82900 opið 8.00 - 22.00
Sækjum — Sendum Sjálfstæðisflokkurinn