Morgunblaðið - 30.05.1984, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 30. MAÍ 1984
° 29
Framköllun á stundinni:
Litmyndir tilbúnar á 60
mínútum með nýrri tækni
„FRAMKÖLLUN á stundinni'*,
ncfnist nýtt fyrirtæki sem opnaö var
þann 24. maí sl. í Austurstræti 22.
Eins og nafnið gefur til kynna er um
að ræða fyrirtæki sem sérhæfir sig í
framköllun Ijósmynda, litmynda í
þessu tilviki, á hraðvirkan hátt, sem
einnig má ráða af nafninu. Eigendur
fyrirtækisins eru fjórir, þeir Guðlaug-
ur Bergmann, Þórir Jónsson, Krist-
inn Kristinsson og Sigurður Jónsson,
sem einnig er framkvæmdastjóri
* þess. Hafa þeir fest kaup á þar til
gerðri japan.sk ri vél sem framkallar
filmu og stækkar myndir á 60 mínút-
um.
Að sögn Eyjólfs vEyjólfssonar,
annars tveggja framkvæmdastjóra
Framköllunar á stundinni, má með
þessari nýju tækni framkalla og
stækka daglega allt að 400 filmur.
Eyjólfur hefur á undanförnum 4
árum starfað við ljósmyndafyrir-
tækið Icestar Foto f Kaupmanna-
höfn, þar sem samskonar tækni er
notuð, og sótt námskeið I tengslum
við notkun slíkra véla til Japan.
Hann kvað ýmsa kosti fylgja vél-
inni, sem er tölvustýrð, umfram
það sem annars gerist I framköllun
og stækkun litmynda. Til að
mynda væri hver myndrammi á
filmunni skoðaður sérstaklega af
fagmanni áður en myndin væri
stækkuð. Þá væru myndgæði vél-
arinnar mjög góð, svo og litgrein-
ing.
Við afgreiðslustörf, framköllun
og stækkun vinna, auk fram-
kvæmdastjóranna tveggja, þau
Guðrún Kristinsdóttir, Bryndís
Halldórsdóttir og Axel Ólafsson.
Verður lögð áhersla á að nýta í
afgreiðslunni þann kost, að sömu
starfsmenn vinna við framköllun,
stækkun og afgreiðslu, að sögn
Sigurðar Jónssonar. Taldi hann
það ávinning fyrir fyrirtækið og
ekki síst viðskiptavini að hafa
beint samband sín í milli. Þannig
gætu viðskiptavinir, sem af ein-
hverjum ástæðum fengju úr fram-
köllun myndir sem væru óskýrar
eða ónýtar vegna galla í mynda-
töku, fengið útskýringar og leið-
beiningar fagmanna sem ynnu að
framköllun og forðast þannig að
gera sömu mistökin á ný. Taldi
hann þennan þátt þjónustunnar
F.v. Sigurður Jónsson, Axel Ölafsson og Eyjólfur Eyjólfsson. Að baki þeirra er nýja vélin.
ekki slður mikilvægari en þann
hraða sem á henni er.
í versluninni er auk framköllun-
arþjónustu boðið upp á allar al-
mennar ljósmyndavörur frá Kodak
og Konica, en í ráði er að Konica
myndavélar verði einnig seldar
þar. Myndirnar sem Framköllun á
stundinni gerir, eru I stærðinni
10x15 sentimetrar og er ákveðið
gjald, 45 kr. fyrir framköllun, og 10
kr. fyrir hverja mynd. Þá skilar
vélin hverri mynd þannig frá sér
að tölvumerkt númer er á bakhlið
hennar og má út úr því lesa allt
sem viðkemur litgreiningu mynd-
arinnar, þannig að vilji viðkom-
andi frá gert annað eintak og hafi
hann upprunalega eintakið í sínum
fórum, má stilla vélina þannig eft-
ir númerinu að enginn munur
verði á hinni upprunalegu og þeirri
sem eftir henni er gerð.
Starfsfólk Framköllunar á stund-
inni. F.v. Eyjólfur Eyjólfsson,
framkvæmdastjóri, Axel Ólafs-
son, starfsmaður, Sigurður Jóns-
son, framkvæmdastjóri, Guðrún
Kristinsdóttir, starfsmaður, og
Bryndís Halldórsdóttir, starfs-
maður.
FRAMKÖLLUN
Hans Jacob Debes
Háskóli íslands:
Færeyingur ver
doktorsritgerð
DOKTORSVÖRN fer fram í heim-
spekideild Háskóla íslands laugar-
daginn 2. júní nk. Hans Jacob Debes,
cand. mag., mun þar verja ritgerð
sína „Nú er tann stundin ... “ til
doktorsnafnbótar í heimspeki. Rit-
gerðin ber undirtitilinn „Tjóðskap-
arrörsla og sjálfstýripolitikkur til
1906 — við sögulegum baksýni," og
kom út í Þórshöfn í Færeyjum í des-
ember 1982.
Ritið er á færeysku og fjallar um
upphaf og þróun færeyskrar þjóð-
ernishreyfingar og sjálfstæðis-
stefnu fram til 1906 þegar þjóðern-
ishreyfingin klofnar pólitískt end-
anlega í Sambandsflokk og Sjálv-
stýrisflokk. Ritið er nær 400 blað-
síður.
Hans Jacob Debes er fæddur i
Gjógv í Færeyjum 17. júlí 1940.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Föroyja studentaskúla árið 1962 og
kandídatsprófi í sagnfræði og
ensku frá Kaupmannahafnarhá-
skóla árið 1972. Frá árinu 1971 hef-
ur hann verið kennari við Föroyja
studentskúla. Hans Jacob Debes er
fyrsti Færeyingurinn sem ver dokt-
orsritgerð við Háskóla Islands.
Andmælendur af hálfu heim-
spekideildar verða dr. Gunnar
Karlsson prófessor og dr. John F.
West. Deildarforseti heimspeki-
deildar, Sveinbjörn Rafnsson, pró-
fessor, stjórnar athöfninni. Dokt-
orsvörnin fer fram í hátíðarsal há-
skólans og hefst kl. 14. Öllum er
heimill aðgangur.
Stúlkan varð fyrir bifreiðinni lengst til hægri. Moruunblaftia/Júllua.
Níu ára stúlka
fyrir sendibifreið
NÍU ira gömul stúlka slasaðist þegar
hún varð fyrir lítilli Suzuki sendibifreið
á Kringlumýrarbraut í hádeginu í gær.
Stúlkan var á leið austur yfir Kringlu-
mýrarbraut þegar slysið varð — hljóp
út á götuna framhjá bifreiðum sem ek-
ið var suður Kringlumýrarbraut á
grænu Ijósi yfir gatnamótin við Lauga-
veg.
Stúlkan kastaðist frá bifreiðinni
og missti meðvitund, en komst til
meðvitundar á slysadeild Borgar-
spítalans og er líðan hennar góð eft-
ir atvikum.
Sem fyrr segir hljóp stúlkan út á
götuna, í veg fyrir stóra flutninga-
bifreið. Ökumaður hennar sá ekki til
stúlkunnar og mun hún hafa sloppið
naumlega við að lenda fyrir flutn-
ingabifreiðinni, að sögn sjónarvotta,
en varð fyrir sendibifreiðinni, sem
var á þriðju akrein og hugðist öku-
maður hennar beygja til vinstri
austur Suðurlandsbraut.
Gestaboð
ÁRLEGT gestaboð skagfirðinga-
félaganna fyrir eldri Skagfirðinga
verður haldið fimmtudaginn 31.
maí í félagsheimilinu Drangey að
Síðumúla 35. Boðið hefst klukkan
14.00.
IGNIS
Var einhver að tala um
lágt verö...?
RAFIÐJAN ..
., Ármúla 8, sími 19294