Morgunblaðið - 30.05.1984, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1984
33
Skólasafniö, fræðslu- og
upplýsingamiöstöð skólans
- eftir Jónínu
Friðfinnsdóttur
„Skólasafnið er
slagæð skólans“
„í skólasafninu slær
hjarta skólans“
„Sýndu mér skólasafnið
og ég skal segja þér
hvernig skólinn er“
Þessar setningar og fleiri álíka
urðu fleygar á ráðstefnu, sem
Skólamálaráð Kennarasambands-
ins gekkst fyrir, föstudaginn 30.
mars sl., um skólasöfn í grunn- og
framhaldsskólum. Skólamálaráð
gerði málefni skólasafna að aðal-
viðfangsefni sínu í vetur og ber að
fagna því. Mikill áhugi kom fram
meðal ráðstefnugesta, sem voru
um 150, um framgang og þróun
skólasafnanna í náinni framtíð.
Þessi ráðstefna hefur orðið til
þess að umræður um skólasöfnin
hafa orðið meiri og markvissari.
Umræður hafa nú komist á það
stig að flestir gera sér ljósa grein
fyrir því, að um þessi mál verður
ekki fjallað frekar, án þess að skýr
stefnumörkun liggi fyrir þar um
frá opinberum aðilum.
Menntamálaráðuneytið hefur
ekki enn mótað sína stefnu, og
ekki gefið út neitt sem varðar
stöðu eða rekstur skólasafna. Við
þetta ástand verður ekki öllu leng-
ur unað. 1 grunnskólalögunum frá
1974 kveður skýrt á um, að við
hvern skóla í landinu skuli vera
skólasafn. Þar segir einnig: „Að
skólabókasöfnum skal þannig bú-
ið, að þau geti gegnt því hlutverki
að vera eitt af meginhjálpartækj-
um í skólastárfinu."
Eftir tíu ára aðlögunartíma lag-
anna er vert að staldra ögn við og
athuga stöðu mála.
Kennarasamband Islands hefur
samþykkt ýmsar ályktanir um
skólasöfn, bæði hvað varðar yfir-
stjórn þeirra og kjör og menntun
þeirra sem á þeim starfa. Allar
ályktanir Kennarasambandsins
um þessi mál hafa miðað að því að
grunnskólalögin geti náð tilgangi
sínum, en heildarstefna verður
ekki framsett um þessi mál nema
stefna menntamálaráðuneytis
liggi fyrir.
Kennarasamband íslands, Félag
skólasafnvarða (stofnað 1975),
sem eru samtök kennara sem
starfa á skólasöfnum í grunnskól-
um, og Fræðsluráð Reykjavíkur
hafa í gegnum árin mótað þá
stefnu um starfshætti skólasafna
sem viðhöfð er í flestum skóla-
söfnum í dag.
í grunnskólalögunum segir ekk-
ert um starfshætti skólasafna
utan það, að það skuli gegna því
hlutverki að vera eitt af megin-
hjálpartækjum i skólastarfinu. Á
meðan engin heildarstefna er í
þessum málum hljóta að koma
upp skiptar skoðanir um starfs-
hæ(ti og stöðu safnanna innan
skólans.
Umræður allar verða ómark-
vissar því heildaryfirsýn vantar.
Margar spurningar koma upp og
sýnist sitt hverjum t.d. hver er
staða skólasafnsins innnan skól-
ans? Er skólasafnið barnabóka-
safn staðsett innan skólans, eða
órjúfanleg heild hans? Hverjir
eiga að starfa á söfnunum og
hvernig og hvar á að skipuleggja
menntun þeirra?
Ég ætla að íhuga frekar þessar
spurningar og reyna að finna
skynsamleg svör við þeim. Staða
skólasafnsins er samkvæmt
grunnskólalögunum skýr. Þar er
fjallað um skólasöfnin sem órjúf-
anlega heild skólans og hljóta þau
þvf í allri umræðu að fylgja hon-
um í heild sinni. Skólasafnið verð-
ur því ekki skilgreint sem ein
safnategund innan skólans. Sér-
staða þeirra er fólgin í notendum
og markmiðum. Skólasafn þjónar
aðeins einum ákveðnum skóla (hér
er ekki miðað við samsteypusöfn)
og notendur þess eru kennarar og
nemendur þess skóla. öll starf-
semi safnsins miðar fyrst og
fremst að því, að það nýtist kenn-
urum og nemendum f kennslu og
námi. Kappkosta skal, að allur
safnskostur sé sem virkastur og
markvisst miðaður við allar
kennslugreinar skólans. Markmið
skólasafnsins er að verða virkt og
þátttakandi í allri kennslu og
námi viðkomandi skóla, allt frá
lestrarkennslu yngstu barnanna
upp í flóknar heimildarritgerðir
eldri nemenda.
Með hliðsjón af því hve mikil-
vægt hjálpartæki skólasafnið er f
öllu skólastarfi eru flestir orðnir
sammála um það að þeir sem ráð-
ast til starfa á skólasöfnum séu
fyrst og fremst kennarar, með
innsýn í alla uppeldis- og kennslu-
fræðilega þætti skólanna. Ekki
nægir kennaramenntun ein heldur
þurfa kennarar framhaldsmennt-
un í skólasafnsfræðum sem ekki
hefur verið til staðar hér á landi.
Kennaraháskóli íslands hefur nú
markað sína stefnu í þessum efn-
um, og er það vel. Skólaráð KHÍ
telur æskilegt að KHÍ geti veitt
kennurum og kennaraefnum sem
hyggjast starfa sem skólasafn-
verðir sérhæfða menntun. Þessi
mál eru enn á umræðustigi en
stefnumörkun er komin fram og
það er stórt skref í rétta átt.
Háskóli íslands hefur frá 1979
boðið upp á eins vetrar nám fyrir
kennara sem starfa eða hyggjast
starfa á skólasöfnum. Nám þetta
er hluti af bókasafnsfræði (30
ein.) og er opið öllum nemendum
sem stunda nám í bókasafnsfræð-
um. Nám þetta er, eins og er, ekki
sérstaklega sniðið fyrir þá kenn-
ara sem þar stunda nám.
Menntamálaráðuneytið hefur
Jónína Friðfinnsdóttir
„Umrædur allar verða
ómarkvissar því heildar-
yfirsýn vantar. Margar
spurningar koma upp og
sýnist sitt hverjum t.d.
hver er staða skóla-
safnsins innan skólans?
Er skólasafnið barna-
bókasafn staðsett innan
skólans, eða órjúfanleg
heild hans? Hverjir eiga
að starfa á söfnunum og
hvernig og hvar á að
skipuleggja menntun
þeirra?“
nú ákveðið að þeir kennarar, sem
hafa lokið námi í bókasafnsfræði
sem aukagrein fyrir skólasafn-
verði, hafi rétt til þess að gegna
stöðu skólasafnvarða á grunn-
skólastigi. Einnig hefur mennta-
málaráðuneytið staðfest að bóka-
safnsfræðingar sem lokið hafa
námi í uppeldis- og kennslufræð-
um (30 ein.) frá félagsvisindaeild
Hl hafi rétt til þess að gegna
stöðu skólasafnvarða á grunn-
skólastigi.
Þessi ákvörðun er raunar það
eina, sem frá ráðuneytinu hefur
komið um málefni skólasafnanna.
Ákvörðun þessi má teljast nokkuð
undarleg ráðstöfun, í ljósi þess að
ekki hefur áður komið fram
stefnumörkun um starfshætti
skólasafnanna. Ekki hefur ráðu-
neytið heldur sett fram skilgrein-
ingu á því hvernig námið skuli
uppbyggt sem sérfræðimenntun
fyrir skólasafnverði.
Það hlýtur að vera ljóst að sér-
fræðimenntun skólasafnvarða
verður að vera í tengslum við hið
almenna kennaranám og þvi eðli-
legt að aðalmenntastofnun kenn-
ara, KHÍ, geti boðið upp á nám
fyrir skólasafnverði. Verkaskipt-
ing og samstarf við Hí er að
sjálfsögðu æskilegt í þessu efni.
Það er mikið hagsmunamál fyrir
kennarastéttina og alla skóla
landsins að þetta mál verði far-
sællega til lykta leitt.
Grunnskólalög hafa verið
endurskoðuð og frumvarp þar um
lá fyrir þingi í vetur en því miður
voru þau lög ekki afgreidd að
þessu sinni. Við verðum að vona
að lögin verði afgreidd á næsta
þingi, og að í kjölfar þeirra verði
sett á reglugerð um skólasöfn.
Ekki er æskilegt að reglugerð
verði sett á nema með hliðsjón af
nýjum grunnskólalögum.
Ef athuguð er staða í uppbygg-
ingu og þróun skólasafna í landinu
kemur í ljós að Reykjavík hefur
algjöra sérstöðu í þeim málum og
gegnir þar forystuhlutverki. I
Reykjavík hafa nær allir skólar
flokkað og skráð safn og þar hafa
söfnin starfað eftir reglugerð sem
Fræðsluráð Reykjavíkur sam-
þykkti 1977. Sú reglugerð er nú í
endurskoðun. Á Reykjanesi er
hlutfallið ekki eins hagstætt og
þar eru enn stórir skólar, sem ekki
hafa komið sér upp safni eða nýti-
legum bókakosti. Ástandið út um
landið er í þessum efnum víða
mjög slæmt, nema í stærri kaup-
stöðunum. I þessum efnum kemur
fram gífurlegur aðstöðumunur
milli þéttbýlis og dreifbýlis.
Kennslumiðstöðvar við fræðslu-
skrifstofurnar gætu brúað þetta
bil að einhverju leyti og ber að
fagna þingsályktunartillögu um
kennslumiðstöðvar sem fram kom
á alþingi í vetur. Erfitt getur
reynst að byggja upp skólasöfn í
fámennum skólum út um land.
I grunnskólalögum er gert ráð
fyrir að við uppbyggingu skóla-
safna skuli miða við 10 bækur á
nemanda. I fámennum skólum sjá
allir að ekki verður byggt upp gott
skólasafn innan þess ramma.
Kennslumiðstöðvar gætu átt
Kaffisala í
Laugarnessókn
ÉG VIL vekja athygli á því að hin
árlega kaffisala Kvenfélags Laug-
arnessóknar er á morgun — upp-
stigningardag — í nýja safnaðar-
heimilinu við Laugarneskirkju.
Allur ágóði af kaffisölunni mun
renna til safnaðarheimilisins.
Þó að safnaðarheimilið sé komið
undir þak eru margir kostnaðar-
samir þættir eftir. Það er eftir að
ganga frá flestu innanhúss og
kaupa nauðsynlegan húsbúnað,
svo að hægt sé að nýta heimilið
eins og fyrirhugað er. En það er
vissulega brýnt að það geti orðið
sem fyrst.
Á undanförnum árum hafa
mörg sóknarbörn lagt sitt af
mörkum til að safnaðarheimili
Laugarnessóknar geti orðið að
veruleika. Það ber sannarlega að
þakka. En mest hefur munað um
framlag Kvenfélags Laugarnes-
grunnsafn bóka og námsgagna
sem gæti bætt úr brýnni þörf
þessara skóla og þannig dregið úr
þessum aðstöðumun. I Reykjavík
hefur skólasafnamiðstöð starfað í
mörg ár með góðum árangri.
Skólasafnamiðstöð þessi sér um
alla tæknihlið safnanna, svo sem
flokkun, skráningu og allan frá-
gang á bókum og gögnum. Söfnin
fá allan sinn safnkost fullfrágeng-
inn með spjaldskrárspjöldum og
tilbúinn til notkunar strax og
hann kemur í safnið.
Þetta er eina sveitarfélagið í
landinu, sm komið hefur upp þjón-
ustumiðstöð fyrir skólasöfn sín.
Þessi þjónusta hefur mjög mikið
að segja í allri uppbyggingu á
rekstri skólasafnanna. Það er ljóst
að til þess að skólasöfnin utan
Reykjavíkur geti rækt hlutverk
sitt verða þau að eiga kost á
hliðstæðri þjónustu.
Það er mjög kostnaðarsamt að
koma upp góðu skólasafni. Þvi
verður öll' uppbygging að vera
markviss frá upphafi. Skólasöfnin
verða að sanna gildi sitt og sýna
fram á að þeim fjármunum sé vel
varið sem fara í uppbyggingu
þeirra. Skólasafnamiðstöðvar eru
best settar í tengslum við fræðslu-
skrifstofurnar og gætu verið hluti
af kennslumiðstöðvunum.
Skóli sem ekki hefur skólasafn
getur ekki sinnt hlutverki sínu
sem skyldi og honum er ætlað
samkvæmt lögum. Ljóst er í allri
skólamálaumræðu að skólasöfnin
eru ómissandi i námi og kennslu i
dag, ef frumkvæði nemenda og
sjálfstæð vinnubrögð í sveigjan-
legu skólastarfi eiga að njóta sín
að fullu. En það verður alltaf í
höndum hvers og eins kennara,
hvernig hann nýtir sér safnið til
kennslu. Það verður því miður að
segjast að enn fá kennaranemar
ekki nægjanlegan undirbúning í
námi sínu hvað varðar það að nýta
sér það stórkostlega hjálpartæki
sem vel uppbyggt og starfrækt
skólasafn er.
Jónína Frióflnnsdótlir er kennari
og bókasaínsfræðingnr. Starfar
sem skólasafnrörður rið Öldu-
túnsskóla í Hafnarfírði.
sóknar. Það hefur stutt byggingu
safnaðarheimilisins af miklum
myndarskap. Án stuðnings kven-
félagsins værum við skammt á veg
komin.
Ég vil skora á Laugarnesbúa og
aðra velunnara að fjölmenna í dag
í hið nýja safnaðarheimili Laug-
arnessóknar og fá sér gott kaffi.
Ekki þarf að efast um að veitingar
verða rausnarlegar að vanda. Um
leið styðjið þið gott málefni.
HADEGISMATSEÐILL
Pönnusteiktur karfi á karrýsósu
Rifjasteik að dönskum hætti
1/1 255.- - 1/2 195.-
I tilefni þriggja ára afmælis bjóðum við öllum ijómatertu í eftirrétt.
Hvíldarstaður í hádegi höll að kveldi