Morgunblaðið - 30.05.1984, Page 35

Morgunblaðið - 30.05.1984, Page 35
Stjórn SFG hefur ítrekað bent þessum aðilum á, og hvatt þá til, að gera annað tveggja, að gerast félagar í SFG, eða að stofna með sér önnur sölusamtök og boðist jafnvel til að verða þeim hjálpleg í þeim efnum. Af augljósum ástæð- um, sem of langt mál væri að rekja hér, hafa þeir fram til þessa hvorugan kostinn valið. e) 6. og 7. gr. Þarfnast ekki um- sagnar okkar Almennar athugasemdir Lög um Framleiðsluráð land- búnaðarins nr. 95/1981 (og eldri lög um sama efni) hafa í reynd aldrei náð til ylræktarbænda (grænmetisframleiðenda) né til sölusamtaka þeirra, SFG, sem flestir ylræktarbændur og nokkrir útiræktarbændur eiga aðild að. Það eina sem verulegu máli skiptir fyrir þessa framleiðendur er sú vernd sem felst í stjórn inn- flutnings grænmetis, svo og hæfi- lega há aðflutningsgjöld af slíkum innflutningi. Um hið fyrra atriðið er það að segja, að litlu máli skiptir hvort sú stjórn er eða verður í höndum þessa eða hins ráðuneytisins, heldur að sjálfsögðu hvernig með verður farið. Að viðskiptaráðu- neytið veiti leyfi til innflutnings (4. gr.) en landbúnaðarráðuneytið hafi á hendi yfirstjórn innlendrar matjurtaframleiðslu o.s.frv. (3. gr.) sýnist þó naumast ráðlegt og aðeins vel til þess fallið að valda óþarfa vinnu, umstangi og tog- streitu, sé á annað borð ætlunin „að stuðla að því að fullnægt verði sanngjörnum óskum framleiðenda og neytenda", með því „að ráðfæra sig við samtök innlendra rækt- enda (ótilgreind) og samtök kaup- manna (ótilgreind)", eins og segir i frumvarpinu. Að gefa innflutning frjálsan, þó ekki sé nema tfmabundið ár hvert, krefst mikils eftirlits og upplýs- ingaöflunar af þeim aðila sem slíkt yrði falið. Upplýsinga sem erfitt getur reynst að afla, ein- faldlega vegna þess að þær eru hvorki né geta verið fyrir hendi þegar þeirra er mest þörf. Nægir þar að nefna 'íslenskt veðurfar, sem á svipstundu og án fyrirvara getur gjörbreytt uppskeru og/eða Við Ástarhóla hefur ástfangið fólk auðvitað hópast saman og verið í friði í gamla daga fyrir efnis- hyggjunni og ræktað sinn garð, ótruflað af volæði heimsins. Að vorlagi hefur það hlaupið um tún og engi frá Skólapiltahólum yfir að Stúiknahólum, ekki til að láta skrifa uppá víxil eða í þeim erind- um að kanna hvort búið væri að endurnýja happdrættismiðana. Nei, piltar hafa t.d. hlaupið um nesið og safnað í blómvönd handa þeirri stúlku sem átti hug þeirra allan. { dag er lítil byggð yst í Laugarnes- inu og auð svæði þar sem bragga- hverfið var áður fyrr. Það er engin ástæða til að koma þar upp stórhýs- um, raðhúsum eða einbýlishúsum, spurning hvort ekki er rétt að hlúa þar að gróðri í umhverfi sem er sér- stætt og í næsta nágrenni við þétt- býliskjarnann. Fjölmargir borgarbúar eiga minningar tengdar Laugarnesinu og vonandi flestar góðar. Eg á það- an t.d. minningar um rólur og sandkassa og bragga og í endur- minningunni er þetta ævintýra- heimur kannski engum líkur. í ljóði Þórbergs um Seltjarnarnesið segir: „Seltjarnarnesið er lítið og lágt, lifa þar fáir og hugsa srnátt." Laugar- nesið er að vísu frekar lítið og lágt og þar lifa nú fáir en hugsa stórt. Þar skapaði Sigurjón heitinn Ólafsson t.d. sín ódauðlegu lista- verk og þar eru stórfyrirtæki í næsta nágrenni sem dafna vel, Kassagerðin, Tollvörugeymslan, Klettur og Sambandið á Kirkju- sandi að ógleymdu bifreiðaverk- stæðinu í þokkalegum skúr. Hraðbraut hefur verið lögð út i Laugarnes frá Borgartúni, tvær akreinar, malbikaðar og tilvalið fyrir fólk í rómantískri stemmn- ingu að aka þar um eða ganga nú eða að horfa á útsýnið af nesinu í fögru veðri. Þaðan er frábært út- sýni til Esjunnar, eyjanna Viðeyjar og Engeyjar og borgarinnar. MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1984 35 uppskeruhorfum. Eru undanfarin sumur (og vetur og vor hvað yl- rækt varðar) gott dæmi um slíkt. Um síðara atriðið, aðflutn- ingsgjöldin, skal það eitt sagt, að hér er um veigamikið stjórnunar- tæki (vernd) að ræða, sem nauð- synlegt er að beita, þar sem ís- lenskir grænmetisframleiðendur ráða t.d. ekki skráningu gengis ísl. gjaldmiðilsins, og geta því ekki látið skrá krónuna „rétt“ miðað við sínar þarfir. Á það má einnig benda í sam- bandi við framkomið frumvarp, að garðyrkjubændur hafa ekki til þessa notið neinnar niðurgreiðslu né uppbóta vegna framleiðslu sinnar, og lengst af greitt há að- flutningsgjöld af innflutningi nauðsynlegra rekstrar- og fjár- festingarvara. 1 þessu felst mikill aðstöðumunur ef tekin eru mið af öðrum atvinnuvegum s.s. landbún- aði, sjávarútvegi og, á síðari tím- um, iðnaði. Garðyrkjubændur hafa með öðrum orðum staðið, og viljað standa, á eigin fótum án óeðlilegra afskipta eða fyrirgreiðslu hins opinbera. Þeir eru reiðubúnir til að gera það áfram, ef ekki koma til ógrundaðar og ótímabærar að- gerðir, svo sem samþykkt um- rædds frumvarps, sem a.m.k. í óbreyttu formi myndi leggja þessa ungu atvinnugrein í rúst á skömmum tíma. Fari hinsvegar svo að þing og stjórn telji æskilegt og mögulegt að afnema almennt alla styrki, uppbætur og niður- greiðslur svo og aðflutningsgjöld og takmarkanir á innflutningi hverskonar landbúnaðar-, sjávar- útvegs- og iðnaðarvara, munu garðyrkjubændur fagna slíku og taka heilshugar þátt í hverskonar samkeppni sem af því leiddi — á j af nréttisgrundvelli. Því má ekki gleyma í þessu sam- bandi, að framleiðendur grænmet- is eru einnig neytendur, ekki bara sinnar eigin framleiðslu þó góð sé, heldur líka — og fyrst og fremst — allra annarra neysluvara sem heyra til lífsmáta nútíma þjóðfé- lagsþegna. Ódýrar innfluttar neysluvörur myndu því verða þeim til hagsbóta ekki síður en öðrum, og gera þeim kleift að framleiða grænmeti á hagstæðara verði en hingað til og þar með væri a.m.k. vissum tilgangi náð. Þar sem ekki er líklegt að þessi verði raunin á í bráð a.m.k., leggj- um við til að umrætt frumvarp verði fellt, en nefnd skipuð til að taka út og meta stöðu yl- og úti- ræktar (grænmeti) með það fyrir augum m.a. að fá úr því skorið hvort ræktun grænmetis sé æski- leg við hérlendar aðstæður, og ef svo þykir, þá með hvaða hætti, svo allir geti við unað — framleiðend- ur sem neytendúr. II. Ennfremur má benda á tillögu um sama efni, sem samþykkt var á nýafstöðnum aðalfundi Sambands garðyrkjubænda svohljóðandi: „Aðalfundur Sambands garð- yrkjubænda haldinn 18. maí 1984 fagnar þeirri miklu umræðu er verið hefur að undanförnu um framleiðslu og neyslu grænmetis sem sýnir áhuga almennings I landinu á breyttum og hollari neysluvenjum. Hinsvegar varar fundurinn ein- dregið við hverskonar lítt hugsuð- um skyndiákvörðunum sem kynnu, ef framkvæmdar yrðu, að skaða bæði hagsmuni neytenda og framleiðenda, samanber það frumvarp til laga nr. 76 er nú ligg- ur fyrir Alþingi. Aðalfundurinn ítrekar þá ósk til stjórnvalda að hraðað verði úttekt á stöðu íslenskrar garðyrkju með það fyrir augum að ljóst verði hvert hið raunverulega ástand er. Fundurinn telur innflutning grænmetis nauðsynlegan og sjálfsagðan þegar innlenda fram- leiðslan er ekki fyrir hendi. í því sambandi skiptir höfuðmáli hvernig þeim innflutningi er stjórnað." Hr. formaður Neytendasamtak- anna, Jón Magnússon. Bendir ofanritað til einokunar eða einok- unarhneigðar Sölufélags garð- yrkjumanna, eða ísl. garðyrkju- bænda aimennt? Ég held að erfitt sé að finna slíkri skoðun stað. Virðingarfyllst, Reykjavík, 25. maí 1984. 1‘orraldur Þorsteinsson er fram- kræmdastjóri Sölufélags garö- yrkjumanna. Eigi skal ras- að um ráð fram Hljóm nrrrTTT? Siguröur Sverrisson Bubbi Morthens Ný spor Safari Þegar ég hlustaði fyrst á nýj- ustu sólóplötu Bubba þótti mér lítið til hennar koma. Eftir því sem oftar var hlustað vann platan hins vegar á og nú er ég þeirrar skoðunar, að sumt á henni standi jafnfætis því besta, sem Bubbi hefur sent frá sér á tiltölulega skömmum en ótrúlega viðburðaríkum ferli. Heiti plötunnar, Ný spor, er hins vegar öfugmæli að mestu leyti. Auðvitað má segja sem svo, að hver ný plata marki ný spor, en það fer ekki leynt, að meginþorri laga þessarar plötu er aðeins nýr meiður af göml- um stofni. Stofninn stendur enn nokkuð réttur, en fái hann ekki næringarríkari áburð en í vetur er þess ekki langt að bíða að hann taki að visna. Á Fingraförum Bubba var oft á tíðum að finna afturhvarf til uppruna hans. Slík einkenni er einnig að finna hér. Pönk- svíta nr. 7 er t.d. með keimlíkan undirtón og Jón pönkari á Is- bjarnarblúsnum. Þá finnst mér lagið Þeir ákveða hvað er klám minna mjög á annað tveggja laga á plötu hljómsveitarinnar Lolu. En Bubbi á góð lög á þessari plötu, það verður ekki aftur tekið né sniðgengið. Strákana á Borginni þekkja allir nú orðið, en lög á borð við Vilmund og tvö framangreind koma þar skammt á eftir. Yrkisefni Bubba eru að vanda fjölbreyti- leg en textagerðin ekki alltaf eins beitt og áður. í laginu Þeir ákveða hvað er klám er þó að finna gott dæmi um hvassa ádeilu: „Ykkur er nauðgað allt árið, daginn út og inn, brosandi .segið: „l>að er ekkert við því að gera.“ l»ið lengið vinnudaginn og borgið reikninginn. Er það þannig sem þið viljið vera?“ Hljóðfæraleikur á plötunni, sér í lagi gítar- og trommuleik- ur, er skemmtilegur og upptak- an vel gerð. Hljómurinn þó ekki nema miðlungi góður. Á heild- ina litið er þessi nýjasta sóló- plata Bubba vel fyrir ofan með- allag — mun sterkari en t.d. nýja plata Egósins. Hins vegar verður Bubbi að gera það upp við sig hvort hann ætlar að festast í sama farinu eða þróa stíl sinn. Með sömu afköstum og verið hafa er óumflýjanlegt að hann staðni og það fyrr en síðar. HEIMSÞEKKT VÖRUMERKI VILTU GLEÐJA VIN VINNUFÉLAGA EÐA ÆTTINGJA? ÞÁ EIGUM VIÐ GJAFIR VIÐ FLEST TÆKIFÆRI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.