Morgunblaðið - 02.06.1984, Page 24

Morgunblaðið - 02.06.1984, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1984 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNt 1984 25 tfgmstÞlftfclfe Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraidur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 275 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 25 kr. eintakiö. Tíðindalítill NATO-fundur Utanríkisráðherrar 16 að- ildarríkja Atlantshafs- bandalagsins hafa lokið þriggja daga fundi í Wash- ington þar sem meðal annars var minnst 35 ára afmælis bandalagsins og flutt voru kveðjuorð til Joseph Luns, framkvæmdastjóra banda- lagsins, sem lætur af störfum undir lok þessa mánaðar fyrir aldurs sakir. Þessi ráðherra- fundur var tíðindalítill fyrir þá sök að ráðherrarnir brydd- uðu ekki uppi á neinu nýju til að fá Sovétmenn til viðræðna um afvopnunarmál. Sú stað- reynd er alls ekki til marks um að ráðherrarnir eða aðildar- ríki NATO vilji ekki ræða af- vopnunarmálin heldur hitt að þau hafa nú þegar gengið eins langt með tillögum um niður- skurð allra vopnategunda að þau geta ekki gengið lengra. Það er undir Sovétmönnum komið hvort þessum viðræðum verður fram haldið eða ekki og hvort einhver árangur verður af þeim. A árinu 1967 samþykktu utanríkisráðherrar NATO- ríkjanna svonefnda Harmel- skýrslu, en hún er kennd við Pierre Harmel, þáverandi utanríkisráðherra Belga. í skýrslunni var fjallað um framtíðarverkefni Atlants- hafsbandalagsins og komist að þeirri meginniðurstöðu að skynsamlegast væri fyrir NATO-ríkin að fylgja stefnu sem byggðist í senn á því að tryggja öryggið með vopna- búnaði sem væri nægilega öfl- ugur til að halda óvinunum í skefjum og á því að ræða við Sovétmenn um slökun spennu og afvopnunarmál. Leo Tinde- mans, núverandi utanríkis- ráðherra Belga, lagði til á ráðherrafundi NATO í des- ember síðastliðnum að á ný yrði gerð svipuð úttekt og 1967 og var skýrsla um samskipti austurs og vesturs lögð fram á fundinum í Washington nú í vikunni. Niðurstaðan nú er hin sama og 1967 nema hvað minni áhersla lögð á slökun spennu en þá vegna þess að mönnum er Ijóst að slökunar- tímann í Evrópu hafa Sovét- menn notað til að færa sig upp á skaftið annars staðar. Ahug- inn á afvopnun sem leiði ekki til minna öryggis bandalags- þjóðanna er hins vegar síst minni nú hjá utanríkisráð- herrum NATO-ríkjanna en 1967. Eins og ætíð á 35 ára ferli Atlantshafsbandalagsins I beinist athygli fjölmiðla ekki síst að þeim ágreiningsefnum sem uppi eru meðal aðildar- þjóðanna. Miðað við það veður sem jafnan hefur verið gert út af slíkum ágreiningi ætti bandalagið að hafa splundrast fyrir löngu. Það hefur ekki gerst og engar blikur eru á lofti sem ógna varnarsam- starfi lýðræðisþjóðanna innan frá. í þessu samhengi líta menn nú til Hollands af því að ríkisstjórn og þing þar í landi hafa ekki getað tekið ákvörðun um hvernig staðið skuli við skuldbindinguna frá 1979 um að setja niður 48 bandarískar stýriflaugar með kjarna- oddum í landinu. Ákvörðun um þetta mál ætla Hollend- ingar að taka fyrir lok þessa mánaðar. Hlaupist þeir undan fyrri skuldibindingum hefur það auðvitað alvarleg pólitísk og sálræn áhrif og veikir varn- ir NATO meira með þeim hætti en hernaðarlega. Afsökun fráNT Til orðahnippinga hefur komið milli NT og Morg- unblaðsins vegna þess að í ritstjórnardálki NT sem ritað- ur er af nafnleysingjanum Skugga var því dróttað að dr. Jóhannesi Nordal, seðlabanka- stjóra, að honum hefði verið „mútað" með afmælisgjöf frá Alusuisse. Á miðvikudaginn segir í leiðara NT: „Enda þótt NT leggi áherslu á harðan og krefjandi fréttaflutning, legg- ur blaðið jafnframt áherslu á sanngirni jafnt í fréttum sem stjórnmálaskrifum. Hafi ein- hvern tímann verið troðið á sanngirnissjónarmiðum á síð- um NT, hlýtur blaðið að harma slíka yfirsjón. Hér er sérstaklega átt við þau greina- skrif í NT, sem fylgdu í kjölfar sextugsafmælis Jóhannesar Nordals og fólu í sér ósæmi- legar getgátur varðandi hugs- anlega gjöf frá svissneska ál- félaginu í því sambandi. Slíkar dylgjur eru óréttmætar og ber að harrna." Morgunblaðið endurbirtir þennan kafla úr forystugrein NT vegna þess að hann á að vera öllum þeim sem starfa við fjölmiðla eða halda uppi málflutningi á opinberum vettvangi til fyrirmyndar um viðbrögð þegar of langt hefur verið gengið. Heimsreisuklúbbur Útsýnar: Siglir á Níl í október I fréttatilkynningu, sem Morgunblaðinu hefur borizt frá Heimsreisuklúbb Útsýnar segir, að þátttakendur í næstu heims- reisu, sem farin verður í októ- ber muni fara í einkasiglingu á Níl frá Luxor til Aswan og sé skipið, sem farið verður með fljótandi lúxushótel. í fréttatil- kynningunni segir: „Samkvæmt skoðanakönnun tímaritsins „Business Traveller", var Mandarín hótelið í Singapore valið besta hótel heimsins árið 1983, en þar dvöldust þátttakend- Veggrayndir úr konungagröf. ur í „Heimsreisu IV“ í lok ferðar í fyrra. Heimsreisan í ár verður á vit merkustu fornminja heims í Egyptalandi, og verður mjög til hennar vandað eins og hinna fyrri. Til dæmis hafa samningar tekist við hið nýja, Sheraton Gez- irah hótel í Kaíró, sem reist var á gróðursælli eyju úti í Níl með út- sýni yfir miðborgina og er að mati kunnugra í tölu glæsi- legustu hótela heimsins. Eftir þriggja daga dvöl í Kaíró og kynnisferð um borgina til pýramídanna miklu við Giza, Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra við opnun Listahátíðar: 22,2 millj. kr. hagnaður af rekstri Hafskips í fyrra: „Með Listahátíö gerum við okkur dagamun, það þurfa allir að gera“ Hafskip tap- aði 19,5 millj. á Eddunni Vöruflutningar Rainbow Navigation Inc.: „Engin samkeppni er í þessu dæmi“ — sagði Björgólfur Guðmundsson forstjóri Hafskips „ALVARLEGASTUR hnekkir í rekstri félagsins getur orðið tekjutap á siglingaleiðinni til og frá Banda- ríkjunum, þar sem bandarísk yfir- völd virðast, á þessari stundu, láta viðgangast, að nýgræðingar í skipa- rekstri geti, í skjóli úreltra einokun- arlaga, yfirtekið markaðinn. Engin samkeppni er í þessu dæmi, hvorki hvað farmgjöld eða þjónustu varðar," sagði Björgólfur Guðmundsson, forstjóri Hafskips, ^0' *»««*»*•■*•*^ •* * * ® • * ' •'* 3\\* mmmfr. má. » m n a m m m m mm m w t« m «t wt — 'átr****«p- ■ - Skemmtiferðaskip Sheraton á ánni Nfl. Memfis og Sakkara, verður flogið til Luxor og haldið beint um borð í skipið „Anni“, eitt af fljótandi : ■ lúxushótelum Sheraton-hrings- ins, sem siglir milli Luxor og Aswan. Dvalist verður um borð í 4 daga og komið við á ýmsum stöðum til að skoða hinar stór- fenglegu fornminjar meðfram ánni Níl. Einnig verður fjögurra daga dvöl í Luxor, og gefst þá tækifæri til að skoða hin ein- stæðu hof í Luxor og Karnak, ásamt konungadalnum með grafhýsi Tutankhamons og 60 annarra faróa Egyptalands. Fundur konungagrafanna árið 1922 er talinn mesta uppgötvun fornleifafræðinnar. Að lokinni dvöl í Egyptalandi gefst þátttakendum kostur á að framlengja ferðina til ísrael, og litast um á slóðum Krists og fljúga til baka frá Tel Aviv. Heimsreisa IV til Bangkok, Balí og Singapore, sem vakti gíf- urlega athygli og vinsældir í fyrra, verður einnig endurtekin í nóvember.“ í ræðu sinni á aðalfundi félagsins um vöruflutninga bandaríska skipafélagsins Rainbow Navigat- ion Inc., sem hafið hefur vöru- flutninga fyrir bandaríska varnarliðið á Keflavíkurflugvelli. Ragnar Kjartansson, stjórnarfor- maður Hafskips, tók í sama streng í ræðu sinni og sagði að „þessari aðför“ mætti líkja við ofbeldi hins stóra í garð hins smáa. Einörð af- staða íslenskra stjórnvalda, undir forystu utanríkisráðherra, gefur tilefni til að ætla, að lausn fáist og fullt jafnræði verði í það minnsta tryggt, þótt óvænlega horfi í bili,“ sagði Ragnar Kjartansson. Heildarflutningar Hafskips minnkuðu um 4%árið 1983 FLUTNINGSMAGN Hafskips til landsins í tonnum minnkaði árið 1983 um 7,3% frá árinu á undan; hins vegar jukust flutningar frá landinu um 3,2% í tonnum. Því minnkaði vegið heildarflutnings- magn um 4% miðað við 1982. Haf- skip, sem varð 25 ára í nóvember sl., hefur nú 7 skip í íætlunarsiglingum til og frá landinu. Eitt skip bættist í skipastól Hafskips á síðasta ári — ms. Rangá, sem áður var norska skipið Barrok. Hafskip rekur nú svæðisskrif- stofur í 5 borgum erlendis: Kaup- mannahöfn, Hamborg, Ipswich, New York og Rotterdam, en sú síðasttalda var opnuð 1. apríl sl. Þá er í undirbúningi að opna sjöttu umboðsskrifstofu félagsins seinna á þessu ári. Á sl. ári stofn- aði félagið svo dótturfyrirtækið Hafskip Holdings Inc. í New York, en það keypti í fyrra haust banda- ríska flutningafyrirtækið Cosmos Shipping Co. Cosmos rekur skrif- stofur í fimm borgum í Banda- ríkjunum, en framkvæmdastjóri þess er Gunnar Andersen og starfsmenn um 50 talsins. í ársskýrslu Hafskips kemur fram að rösklega 230 manns störf- uðu hjá móðurfyrirtækinu á árinu 1983. Hjá erlendu dótturfyrir- tækjunum, á leiguskipum á áætl- unarsiglingum og við aðra starf- semi erlendis störfuðu 120 manns. Því var heildarfjöldi starfsmanna Hafskips um 350. Mikill mannfjöldi sótti opnunarhátíð Listahátíðar í Laugardalshöll í gærkvöldi. Morgunblaöiö RAX. HLUTUR Hafskips í tapi Farskips hf., sameiginlegs fyrirtækis Eim- skips og Hafskips, sem rak bif- reiða- og farþegaferjuna Eddu sl. sumar nam 19,5 millj. kr. í máli Björgólfs Guðmundssonar for- stjóra Hafskips á aðalfundinum kom fram að eftir að hafa grandskoðað möguleika á áfram- haldandi rekstri hefði stjórn Far- skips ákveðið að hætta starfsemi fyrirtækisins. Ragnar Kjartansson stjórnarformaður Hafskips flytur ársskýrslu félagsins á aðalfundi þess í gær í Domus Medica. Hjá honum frá vinstri sitja við borðið: Ólafur B. Ólafsson varaformaður, Björgólfur Guðmundsson forstjóri, Jón Magnússon fundarstjóri, Jón Hákon Magnússon framkvæmdastjóri, Páll Bragi Kristjónsson framkvæmdastjóri og Helgi Magnússon endurskoðandi félagsins. MIKIÐ fjölmenni var saman komið í LaugardalshöII í gær- kvöldi þegar Listahátíð í Reykjavík var formlega sett. Kvöldið í gær var eiginlega tvískipt, fyrst formleg setning menntamálaráðherra, frú Ragnhildar Helgadóttur, og skemmtiatriði en síðan dans- leikur, sem dunaði fram á nótt. Veitingar voru bornar fram og erlendir iistamenn voru með uppákomur. Eftir að Garðar Cortes, „veislu- stjóri“, hafði boðið gesti velkomna með stuttu ávarpi tók Sinfóníu- hljómsveit íslands við og lék Hátíð- armars Páls ísólfssonar áður en Ragnhildur Helgadóttir, mennta- málaráðherra, flutti setningarræðu sína. Ráðherra sagði m.a.: „Til Listahátíðar fyrir okkur Is- lendinga er efnt á tveggja ára fresti og alltaf á þessum árstíma, þegar sumar er að leysa vorið af hólmi og nóttin er björt, eiginlega engin nótt. Til hvers erum við að halda Listahá- tíð? Við spyrjum ekki til þess að draga í efa að svo skuli gert heldur til að skilja hvað við getum þangað sótt okkur til sáluhjálpar. Við höldum Listahátíð til að hvílast um stund, ekki eins og „lokið sé leið“ heldur til að taka mið, til að njóta, til að ein- beita okkur að einstökum úrvalsvið- burðum, lyfta huganum í þær hæðir sem við hvert og eitt megum mest ná fyrir atbeina listarinnar. Með Lista- hátíð gerum við okkur dagamun, það þurfa allir að gera.“ Eftir ræðu menntamálaráðherra tók Sinfóníuhljómsveitin við að nýju en nú kvað við annan tón. Verkið sem hún flutti var nefnilega syrpa dæg- urlaga frá árunum 1964 —74 í útsetn- Ragnhildur Helgadóttir menntamála- ráðherra setur Listahátíð 1984 í gær- kvöldi. Kenndi þar ýmissa grasa, m.a. var að finna lagið Sísí fríkar út. Síðari syrp- unni var ekki síður tekið en þeirri fyrri. Upp úr miðnætti hófst svo dans- leikur við undirleik hljómsveitar Gunnars Þórðarsonar og dunaði dansinn enn er Mbl. fór í prentun. ingu nemenda úr tónfræðideild Tón- listarskólans í Reykjavík. Hafði Karólína Eiríksdóttir umsjón með verkinu. Hófst syrpan á laginu Fyrsti kossinn og fór ekki leynt að gestir í Laugardalshöll í gærkvöldi kunnu vel að meta flutning hljómsveitarinnar þótt óneitanlega sé hún kunnari fyrir flutning klassískrar tónlistar. „Big- band“ FlH tók því næst við og lék þrjú lög áður en Islenski dansflokkur- inn hélt danssýningu, en að henni lok- inni tók Bigbandið aftur við og lék fram að hléi. Á meðan á hléinu stóð skemmti Whoope-hljómsveit Bob Kerr gestum og vakti mikla hrifningu. Ekki aðeins fyrir hljóðfæraleik, heldur fyrir sprell sitt og brandara. Því næst tók Morse-látbragðshópurinn við og kom gestum á óvart með atriðum sínum. Islenski dansflokkurinn tók við að nýju áður en Sinfóníuhljómsveitin tók síðari dægurlagasyrpu sína. „Aí koma skipafélagsins verður að teljast góö“ — sagði Ragnar Kjartansson stjórnarformaður HEILDARHAGNAÐUR Hafskips hf. árið 1983 nam 41,5 milljónum króna. Tap skipafélagsins af Farskip hf., sera rak skemmtiferðaskipið ms. Eddu síðasta sumar, nam rösklega 19 milljónum, svo að hreinn hagnað- ur Hafskips varð 22,2 milljónir króna. Þetta kom m.a. fram á aðal- fundi Hafskips, sem haldinn var í Domus Medica í gær. Samkvæmt Stjórnin endurkjörin ENGAR mannabreytingar urðu við stjórnarkjör á aðalfundi Hafskips í gær. Verður Ragnar Kjartansson því áfram stjórnarformaður, Ólafur B. Ólafsson varaformaður og Sveinn R. Eyjólfsson ritari. Aðrir sem endurkjörnir voru í stjórnina eru: Bjarni Magnússon, Davíð Scheving Thorsteinsson, Guðlaugur Bergmann, Gunnar Þór Ólafsson, Hilmar Fenger, Jón Helgi Guðmundsson, Jón Snorra- son, Jónatan Einarsson, Páll G. Jónsson, Pétur Björnsson og Víðir Finnbogason. Forstjóri félagsins er Björgólfur Guðmundsson og framkvæmdastjórar þeir Jón Há- kon Magnússon og Páll Bragi Kristjónsson. ársskýrslu, sem lögð var fram á fundinum námu rekstrartekjur rúmlega 580 milljónum, og jukust þær um 76,1% frá árinu 1982 sam- tímis því að rekstrargjöld jukust um 67,5%. Hagnaður af rekstri fyrir af- skriftir og fjármagnsgjöld varð því 128 milljónir kr., sem jafngildir 22% af rekstrartekjum miðað við árið 1982. Enn fremur nam rekstrarhagn- aður 99,1 millj. kr. eða 17,1% af rekstrartekjum í samanburði við 13,l%árið 1982. „Þessar tölur tala sínu máli um þau tök, sem náðst hafa á beinum rekstrarlegum þáttum í starfi fé- lagsins, það er að segja þeim þátt- um sem starfsmenn þess og stjórnendur geta að einhverju leyti haft í hendi sér,“ sagði Björg- ólfur Guðmundsson, forstjóri Haf- skips, m.a. í ræðu sinni á aðal- fundinum. Hann sagði enn fremur að flest þeirra markmiða, sem sett voru árið 1977 þegar endurreisn félagsins hófst, þegar náðst en samt sem áður væri hin litla eig- infjármyndun skipafélagsins bagaleg. Sagði Björgólfur orsak- anna að leita í hinum „óstýranleg- um ytri þáttum hins almenna efnahagsástands sem ríkt hefur undanfarin ár“. Um rekstraráætl- un ársins 1984 sagði Björgólfur að hún gæfi tilefni til hóflegrar bjartsýni, en ekkert mætti út af bregða til að hún stæðist ekki. í ræðu Ragnars Kjartanssonar, stjórnarformanns Hafskips, kom m.a. fram að afkoma skipafélags- ins verði að teljast góð, „ekki síst þegar haft er í huga að á undan- förnum misserum hefur almennur stykkjavöruflutningur til landsins dregist saman um 12—14%, en magnsamdráttur hjá félaginu á sama tíma verið innan við 10%. Ragnar vék enn fremur að gagn- rýni, sem komið hefur fram vegna þess að íslensk kaupskipaútgerð hefur tekið erlend skip á leigu. Sagði hann að við umbyltingu ís- lenzku skipaútgerðarinnar á und- anförnum árum hefði skipum fækkað samhliða því sem þau hefðu stækkað. Því hefðu fjölmörg þessara leiguskipa bæst í íslenzka kaupskipaflotann. Svo hefði t.a.m. verið með þau 3 skip sem Hafskip hefði fest kaup á undanfarin ár. „Þjóðhagslegt mikilvægi kaupsigl- inga byggir á öryggi og ítrustu hagkvæmni í þágu þjóðarheildar, og íslenzkar siglingar á íslenzkum skipum eru að sjálfsögðu sameig- inlegt markmið þorra hugsandi manna. Hins vegar verður að líða þessum atvinnurekstri sem öðr- um, ráðrúm til tilrauna og sveigj- anleika til þess m.a. að geta mætt hugsanlegum áföllum,“ sagði Ragnar Kjartansson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.