Morgunblaðið - 02.06.1984, Blaðsíða 33
33
\
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JtJNÍ 1984
Sumarsýning Ásgrímssafns
ÁRLEG sumarsýning Ásgrímssafns viö Vestmannaeyjum frá árinu 1903, sem er eitt af
Bergstaöastræti veröur opnuö á sunnudag. Þar elstu verkum safnsins. Sumarsýningin verður
verða sýndar olíu- og vatnslitamyndir, m.a. nokk- opin alla daga nema laugardaga frá kl. 13.30—16 í
ur stór málverk frá Húsafelli og olíumálverk frá júní-, júlí- og ágústmánuöi.
Málverk Sigurbjörns
E. Logasonar
SIGURBJÖRN Eldon Logason, olíumyndir, en þetta er þriöja
myndlistarmaöur, opnar í dag einkasýning Sigurbjörns. Hún
kl. 14 málverkasýningu í félags- veröur opin nú um helgina og
heimili Ölfusinga í Hverageröi. um þá nœstu frá kl. 14—22.
Á sýningunni eru vatnslita- og
menningarmiöstööinni Geröu-
bergi. Verkin á sýningunni eru 40
talsins, myndvefnaöur, tauþrykk
og verk unnin meö blandaöri
tækni.
Sýningin stendur til 17. júní,
opin mánudaga—fimmtudaga frá
kl. 16—22 og föstudaga—sunnu-
daga frá kl. 14—18. Sýningin er
liöur í Listahátíö 1984.
Ásmundarsalur:
Sýning Bjarna
Ragnars
Myndlistarmaöurinn Bjarni
Ragnar sýnir nú verk sín í Ás-
mundarsal viö Freyjugötu. Á sýn-
ingunni, sem er 4. einkasýning
hans, eru um 30 myndir, olíumál-
verk og teikningar sem hann hefur
málað frá árinu 1978. Sýningin
veröur opin daglega frá kl. 14—22
fram til 6. júní.
Listmunahúsið:
Hamskipti og
skepnuskapur
Magnús Tómasson myndlistar-
maöur sýnir nú 32 olíumálverk í
Listmunahúsinu viö Lækjargötu, á
sýningu sem ber yfirskriftina
„Hamskipti og skepnuskapur".
Sýningin er opin alla virka daga,
nema mánudaga, frá kl. 10—18 og
um helgar frá kl. 14.—18. Henni
lýkur 11. júní.
Gallerí Portið:
Myndir Stefáns
frá Möörudal
Stefán Jónsson, myndlistar-
maöur frá Möörudal, heldur um
þessar mundir sýningu á verkum
sínum i Gallerí Portinu á Laugavegi
1. Á sýningunni eru um 500 verk,
olíumálverk og vatnslitamyndir,
sem Stefán hefur málaö á undan-
förnum þremur árum.
Sýningin í Gallerí Portinu er opin
alla daga vikunnar frá kl. 15—20.
TÓNLIST
Kópavogskirkja:
Skólakór
Kársness
Skólakór Kársness heldur i dag
kl. 16 tónleika í Kópavogskirkju,
undir stjórn Þórunnar Björnsdótt-
ur. Á tónleikunum kemur „Litli kór-
inn“ úr Kársnesskóla einnig fram.
Hlégarður:
Álafosskórinn
Álafosskórinn heldur kvöld-
skemmtun í Hlégaröi í kvöld, kl.
21. Einsöngvarar meö kórnum eru
IHelgi Einarsson og Dóra Reyndal,
en söngstjóri er Páll Helgason. Á
kvöldskemmtuninni veröur sýndur
tískufatnaður frá Álafossi.
Myndlist
á Mokka
HANNES Siguröarson, mynd-
listarmaöur, hefur nú opnaö
sýningu á verkum sínum í
Mokka-kaffi viö Skólavöröu-
stíg. Sýningin stendur til 18.
júní, opin á opnunartíma
hússins.
SAMKOMUR
Árbæjarsafn opiö
Árbæjarsafn hefur nú verið
opnað á ný eftir vetrarhlé. Safniö
veröur að vanda opiö alla virka
daga, nema mánudaga, frá kl.
13.30—18 og frá kl. 10 sunnudaga
og laugardaga.
í Eimreiöarskemmunni stendur
nú yfir sýning á þeim hluta skipu-
lagssýningarinnar sem var á
Kjarvalsstööum og tekur yfir gaml-
ar Ijósmyndir og uppdrætti. Kaffi-
veitingar eru einnig í Eimreiðar-
skemmunni.
Hótel Loftleiðir:
Stúdentsafmæli
Bekkjarráö stúdenta frá MH
voriö ’74 gengst fyrir samkomu í
kvöld kl. 19.30 á Hótel Loftleiöum.
Meöal atriða á skemmtuninni
verður myndasýning frá skólaár-
unum og fleira.
Vindáshlíð:
Sumarstarfið
hafið
Sumarstarf KFUK í Vindáshlíö
hefst á sunnudag, meö guösþjón-
ustu í Hallgrímskirkju og í Vind-
áshlíð í Kjós, sem hefst kl. 14.30
og veröur kaffisala aö henni lokinni
í sumarbúöunum.
Hafnarfjörður/.
Reykjavík:
Sjómannadag-
urinn
Útihátíöarhöld sjómannadags-
ins í Reykjavík hefjast kl. 13.30 á
sunnudag viö Reykjavíkurhöfn, en
á sunnudagsmorgun verða fánar
dregnir aö húni á skipum í höfninni
kl. 8, kl. 10 leikur Lúörasveit
Reykjavíkur viö Hrafnistu í Reykja-
vík og Minningarguösþjónusta
veröur í Dómkirkjunni kl. 11, þar
sem Pétur Sigurgeirsson, biskup,
minnist látinna sjómanna. Kl.
13.30 leikur lúöraveitin viö Reykja-
víkurhöfn, en síöan hefst samkoma
þar sem flutt veröa ávörp og aldr-
aöir sjómenn heiðraöir. Kappróöur
veröur í höfninni og Björgunar-
sveitin Ingólfur veröur meö björg-
unarsýningu. Þá flytjast atriöi
Listahátíöar, sem áöur voru aug-
lýst á Lækjartorgi, aö Reykjavíkur-
höfn.
í Hafnarfiröi hefst sjómanna-
dagurinn meö leik Lúörasveitar
Hafnarfjaröar viö Hrafnistu kl. 10
og kl. 11 verður sjómannamessa í
kapellu Hrafnistu, prestur veröur
sr. Siguröur H. Guðmundsson. Á
milli kl. 15 og 17 veröur kaffisala í
samkomusal Hrafnistu og sýning á
vinnu vistmanna. Þá veröa vernd-
aöar þjónustuíbúöir aldraöra i
Garöabæ til sýnis á sama tíma.
Á sunnudagskvöld veröur síðan
haldiö Sjómannadagshóf í Súlna-
sal Hótel Sögu og hefst þaö kl.
19.30.
FERÐIR
Ferðafélag íslands:
Verbúðarústir
og tófubyrgi
Ferðafélagiö fer á sunnudag í
tvær gönguferöir. Kl. 10 er ferö um
Klóarveg, sem er gömul leiö milli
Grafnings og Hverageröis. Gangan
hefst viö Villingavatn í Grafningi og
leiöin endar viö Gufudal.
Klukkan 13 er ferö á Seltanga,
sem er gömul verstöö miöja vegu
milli Grindavíkur og Krísuvíkur.
Veröa þar skoöaöar gamiar minj-
ar, s.s. verbúðarústir og tófubyrgi,
en þær eru nú friðlýstar.
Gróður
og garðar
Gróður og garöar er nýtt tímarit sem hentar þeim fjölmörgu sem áhuga hafa á
garðrækt, blómarækt og gróöri. Fjölbreytt efni og glæsilegt útlit gera Gróður
og garða aö blaði sem menn geyma og lesa aftur og aftur.
Meðal efnis í 1. tbl.
★ Matjurtarækt ★ Pottablóm og umhirða þeirra ★ Skipulag garða ★ Áhrif
veðurfarsins á gróður og garða ★ Trjárækt ★ Úöun garða ★ Garðyrkjuskóli
ríksins.