Morgunblaðið - 29.06.1984, Síða 12
44
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1984
GONGUBUNAÐUR
Léttur en skjólgódur
Margir sem áhuga hafa á
gönguferðum eru eflaust
búnir aö skipuleggja
lengri eöa skemmri slíkar feröir í
sumar. Eins og menn vita er ekki
alltaf nauösynlegt aö fara langt
til aö njóta fallegrar náttúru,
hana er víöast aö finna allt í
kringum okkur.
Þeir sem stundaö hafa göngu-
feröir vita hvaöa búnaöur er
æskilegur í slíkar feröir. Svona til
upplýsinga og yndisauka fyrir þá
sem ekki þekkja eins vel til þess-
ara mála ákváöum viö aö taka
nokkrar myndir af hressilegu
fólki í gönguklæönaöi, sem fæst
í versluninni Útilífi, og jafnframt
ræddum viö stuttlega viö eig-
andann, Bjarna Sveinbjarnarson,
um þennan búning. Sagöi hann,
aö þegar fariö væri í gönguferöir
væri nauösynlegt aö vera í hlýj-
um undirfatnaöi. Þessi fatnaöur
er einkum úr gerviefnum, sem
draga í sig raka, þannig aö þó aö
fólk hitni og svitni þá hleypir
hann hitanum í gegn. Síöan er
þaö góö ullarpeysa og buxur,
annaöhvort hnébuxur, sem vin-
sælar eru á sumrin, eöa síöbux-
ur, sem fremur eru notaöar á vet-
urna í kulda og snjó. Viö hnébux-
urnar eru svo litskrúöugir hné-
sokkar úr góöri ullarblöndu. Gott
er aö hafa legghlífar, þegar
blautt er á eöa snjór, því þá fer
bleytan síöur ofan í skóna. Yfir
peysunni er svo gott aö hafa létt-
an anorak, sem hrindir frá sér
vatni. Og loks regnfatnaö, sem
"andar“ og lítiö fer fyrlr, ef skell-
ur á rigning, sem gerist iöulega á
þessu landi. Góöir gönguskór
eru forsenda ánægjulegra
gönguferöa og á verslunarfólk
aö búa yfir þeirri þekkingu aö
geta ráölagt fólki um góöa
gönguskó, þar sem þeir fást.
En vert er aö minnast á að þaö
veröur aö bera rétt á skóna, svo
eitthvert gagn sé aö þeim í vætu.
Þaö á ekki aö bera á þá leöurfeiti
heldur leöurvax, sagöi Bjarni. Ef
fólk er í langferöum ætti þaö aö
hafa þaö aö venju aö bera á
skóna sína á morgnana áöur en
lagt er af staö, sagöi hann enn-
fremur.
Þaö er alltaf gott aö hafa
eitthvaö heitt eöa svalandi meö
sér í gönguferöir og ef til vili
brauöbita og suöusúkkulaöi. Til
eru ýmsar geröir af dagsferöar-
pokum, sem geyma má í nesti
eöa aukafatnaö. Eru þessir pok-
ar jafnan haföir á bakinu. Einnig
er hægt aö fá svokallaöar mittis-
töskur.
Viö spurðum Bjarna í lokin
hvort aö hann færi sjálfur í
gönguferöir?
.Þaö kemur fyrir," sagöi hann,
„þá fer ég með fjölskyldunni.
Okkur finnst gaman aö ganga á
svæöinu kringum Hengil og fara
upp aö Tröllafossi, þaö þarf ekkl
aö flengjast langt til aö finna
góöar gönguleiöir."