Morgunblaðið - 29.06.1984, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 29.06.1984, Blaðsíða 15
HVAD ER AÐ GERAST UHIHELGINA? MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1984 47 Gallerí Langbrók: Verk Zenku Rusovu Tékkneska listakonan Zenka Rusova opnar sýningu í Gallerí Langbrók á morgun kl. 14. Á sýn- ingunni eru grafíkmyndir og er hún opin kl. 12—18 virka daga og 14—18 um helgar. Sýningin mun standa í tvær vikur. Selfoss: Verk Hans Christiansen Hans Christiansen, myndlistar- maöur, opnar sýningu á verkum sínum á morgun kl. 14. Á sýning- unni, sem haldin er í Safnahúsi Árnessýslu á Selfossi, eru rúmlega 30 vatnslita- og pastelmyndir. Þetta er 7. einkasýning lista- mannsins, og er hún opin um helg- ar frá kl. 14—22 og virka daga kl. 16—22. Listamiðstöðin: Grafíkverk Nú stendur yfir í sýningarsal Listamiðstöövarinnar í nýja húsinu viö Lækjartorg sýning á verkum 5 grafíklistamanna, þeirra Einars Hákonarsonar, Ingibergs Magn- ússonar, Ingunnar Eydal, Jóns Reykdals og Ríkharðs Valtingojer. Sýningin er opin daglega frá kl. 14—18 og lýkur henni á sunnu- dag. Norræna húsið: Myndlist og ís- lenskt prjón Sænski búningahönnuöurinn Ulla-Britt Söderlund heldur nú sýningu í anddyri Norræna húss- ins. Á sýningunni eru búninga- teikningar úr tveimur kvikmyndum, sem teknar hafa veriö hérlendis, „Rauða skikkjan“ frá árinu 1966 og „Paradísarheimt“. Sýningin er opin á venjulegum opnunartíma hússins. f bókasafni Norræna hússins er nú sýning á heföbundnu íslensku prjóni, að mestu leyti byggö upp af munum úr þjóöminjasafni íslands. Sýningin er opin kl. 9—19 virka daga og 14—17 á sunnudögum. Sumarsýning Norræna hússins í ár nefnist „Landiö mitt, ísland". Á sýningunni, sem er haldin í sam- vinnu viö Félag íslenskra myndlist- armanna, eru 140 verk, unnin af 4—14 ára börnum úr dreifbýli og þéttbýii. Verkin fjalla um ísland, land og þjóö. Sýningin er opin daglega frá kl. 14—19 og stendur hún til 22. júlí. Gerðuberg: Lýðveldið 40 ára í menningarmiöstööinni Geröu- bergi stendur nú yfir sýning unnin af nemendum i Fossvogsskóla. Verkin eru unnin í tilefni af 40 ára afmæli lýðveldisins. Sýningin er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 16—22 og föstudaga til sunnu- daga frá kl. 14—18. Henni lýkur á sunnudag. laugarvatn: Verk Erlu Sigurbergs Erla Sigurbergs, myndlistar- maöur, sýnir nú 21 olíumálverk í Menntaskólanum á Laugarvatni. Erla hefur áöur haldiö tvær einka- sýningar í Keflavík. Sýning hennar er opin alla daga vikunnar. SAMKOMUR Árbæjarsafn Árbæjarsafn er nú opiö alla virka daga, nema mánudaga, frá kl. 13.30—18 og frá kl. 10, sunnu- daga og laugardaga. Arkjtektafélag íslands: Arkitektúr á norðurhjara Arkitektafélagiö heldur nú sýn- ingu í Ásmundarsal viö Freyjugötu Ábending ÞEIM aðilum som hafa hug á aö senda fréttatilkynningar í þátt- inn „Hvað er að gerast um helg- ina?“ er bent á að skila þeim eigi síðar en kl. 18.30 á miðvikudög- um. Efni í þáttinn er ekki tekið í gegnura síma, nema utan af landi._ _ _ _____ á verkum arkitektanna Elin og Carmen Corneil. Á sýningunni eru verk þeirra frá norölægum slóöum í Kanada, Finnlandi, Noregi og í Vestmannaeyjum. Sýningin er opin frá kl. 14—22 alla daga en henni lýkur á sunnudag. Háholt: Saga skipanna „Saga skipanna, svipmyndir úr siglingum og sjávarútvegi" nefnist sýning sem nú er í Háholti í Hafn- arfirði. Þar er sýnd þróun útgerðar á Islandi, meö ýmsum munum, s.s. skipslíkönum og myndum. Einnig eru sýndir gripir í eigu Landhelg- isgæslunnar, t.d. klippurnar frægu úr þorskastríöinu. FERÐIR Ferðafélag íslands: Þórsmörk og Herdísarvík Feröafélag islands leggur í kvöld kl. 20 af staö í helgarferöir til Þórs- merkur, Landmannalauga og Hagavatns. Á morgun veröur söguferö um Borgarfjörö og einnig veröur lagt í vöröuhleöslu í Reykja- nesfólkvangi. Á sunnudag er gönguferö um Selvogsgötu til Herdísarvíkur og veröur m.a. Strandakirkja skoöuö. Útivist: Skarfanes og Viðey Útivist leggur upp í þrjár helgar- feröir t kvöld kl. 20, til Þórsmerkur, Fimmvöröuháls og Skarfaness. Á sunnudag kl. 13 veröur ferö í Miödal og m.a. skoöaö Kerlingar- gil. Sama dag kl. 13.30 er sögu- skoðunarferö í Viöey og veröur fariö frá kornhlöðunni, Sundahöfn. NVSV: „Umhverfið okkar“ Náttúruverndarféiag Suövest- urlands hefur nú feröaröð sem nefnist „Umhverfiö okkar“. Fyrsta feröin í rööinni er til Viöeyjar á morgun kl. 13.30 og veröur fariö frá Sundahöfn. Meö í förinni veröa jaröfræöingar og líffræöingar. Fríkirkjan: Sumarferð Á sunnudaginn kl. 9 veröur sumarferð Fríkirkjunnar farin. Aö þessu sinni veröur fariö um Borg- arfjarðarhérað og komiö viö í Kalmannstungu og Húsafelli. Ferö- in hefst viö Fríkirkjuna. Þingvellir: Gönguferðir i sumar eru skipulagöar göngu- ferðir um Þingvelli. Föstudaga til þriöjudaga gengur starfsmaöur þjóögarösins meö gestum frá hringsjá á brún Almannagjár til Lögbergs, „Kastala" og á Þing- vallastaö. Feröin hefst kl. 8.45. Á föstudögum og laugardögum kl. 14 er gengið frá „Kastölum“ aö Skógarkoti og Leirum. Sömu daga kl. 16 er gengiö frá Vellandkötlu aö Klukkustíg. i öllum þessum feröum njóta þátttakendur leiösagnar. t:7UÐM€IN Tjarnarborg Ólafsfirði í kvöld föstudagskvöld, Miögarður laugardagskvöld, Sjallinn Akur- eyri sunnudagskvöld, Hlaðir Hvalfjarðarströnd laugar dagskvöld, 7. júlí mmmm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.