Morgunblaðið - 29.06.1984, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 29.06.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JÚNl 1984 55 „Lemmy“ lemur frá sér á nýjan leik + Eddie „Lemmy“ Constantine. Þeir, sem komnir voru til vits og ára fyrir 1960, œttu að muna eftir þessari hetju, sem alltaf bar sigur úr býtum í öllum sín- um ævintýrum á hvíta tjaldinu. Lemmy er enn í fullu fjöri þótt á ýmsu hafi gengiö í lífi hans. „Skrifaöu, aö mér gangi allt í haginn. Ef þú segir, aö ég sá búinn aö vera, skal ég lemja þig í klessu,“ sagöi hann við blaöa- mann, sem tók hann tali um miðjan síöasta áratug. Þá var Lemmy oröinn öreigi, haföi lif- aö fullhátt og gerst svo djarfur að halda, aö hann gæti leikið á skattalögregluna frönsku á sama hátt og skúrkana í kvik- myndunum. Þar skjátlaöist honum. Lemmy svindlaöi á skattinum og skatturinn náöi sér niöri á honum meö því aö hiröa af hon- um hvern einasta eyri. Banka- reikninginn, þaö sem eftir var þar, oöalssetrið i sveitinni og alla veöhlaupahestana hans, sem voru líf hans og yndi. Lemmy lét þó ekki bugast heldur haföi þaö í huga, aö þegar neyðin er stærst er hjálpin næst. Hann settist niöur og skrifaöi tvær bækur, sem báöar uröu met- sölubækur og voru kvikmyndaö- ar. Þannig kom hann fótunum undir sig á nýjan leik og gat jafn- aö reikningana viö ríkiskassann. Önnur bókin er um áhugamál Lemmys, veöhlaupln, og ekki síst um glæpastarfsemina, sem þar er á bak viö tjöldin. J bókinni afhjúpaði ég veö- hlaupamafíuna. Sagöi frá starfs- aðferöum hennar en nefndi eng- in nöfn. Ef ég heföi gert þaö væri ég ekki lengur til frásagnar," segir Lemmy. Lemmy fæddist áriö 1917 og hóf feril sinn sem söngvari á næturklúbbum, m.a. með söng- konunni Edith Piaf. Síöan freist- aöi hann hamingjunnar í Holly- wood, en komst aldrei lengra þar en aö Ijá Clark Gable söng- röddina sína án þess aö sjást sjálfur. Á sjötta áratugnum sló hann loks í gegn í frönsku Lemmy-myndunum og var hinn ókrýndi James Bond þeirra tíma. Lemmy átti sér fjölmennan að- dáendahóp og þar sem þaö er nú í tísku aö rifja upp flest, sem var skemmtilegt á árunum milli ’50 og ’60, er nú aftur fariö aö sýna Lemmy-myndirnar víöa um lönd. Hvernig væri ef íslenska sjónvarpiö hugaöi aö því líka fyrir gamla Lemmy-aödáendur hér á landi. COSPER — Hversvegna ég ligg hér? I>aö var allt upppantað á Hótel Sögu. YZ * • Kopunnn M DPCTAIIDAMT RESTAURANT Auðbrekku 12, Kópavogi í kvöld leikur hljómsveitin Haukar Ijúfa tónlist fyrir matargesti og síöan veröur dansaö til kl. 03.00. • Opið í hádeginu og frá kl. 18.00—03.00. • Viö leggjum áherslu á steikur og bjóö- um upp á fagurt útsýni. • Borðapantanir í síma 46244. LESBOK HNIGNUN EVRÓPU Gamli heimurinn, sem hefur verið í margskonar for- ustuhlutverki í 2000 ár, er nú aö láta öörum eftir ýmiskonar frumkvæöi — og sameining Evrópu er fjarlægur draumur. GRÓÐUR ÍSLANDS Fyrsta grein af þremur eftir þá Yngva Þorsteinsson og Sigurö Blöndal um Fjallkonuna, sem vissulega er á götóttum kjól. NÝJA SJÁLAND minnir nátturufarslega á ísland, nema hvaö loftslagiö er margfalt betra. Sveinn Sæmundsson kom þar viö i hnattferö sinni og segir frá landi og þjóö. FRAMTÍDARBÍLLINN LCP 2000 er frá Volvo og þaö er ekkert smá stökk inn í framtíö- ina, sem Svíar hafa tekiö þarna. Jón B. Þorbjörnsson skrifar um bílinn. Vöndud og menningarleg helgarlesning Þú svalar lestrarþörf dagsins ‘ ijöum Moggans! iHöVáOlSVONISAIOnV

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.