Morgunblaðið - 12.08.1984, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 12.08.1984, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1984 65 Tölvunámskeiðin sem fyrirtækin treysta Tölvufræðsla Stjórnunarfélagsins hefur nú um 2ja ára skeið þjálfað ritvinnslukennara sinn í notkun flestra þeirra ritvinnslukerfa sem náð hafa einhverri útbreiðslu hérlendis, og búum við því að geysimikilli þekkingu á tölvurit- vinnslu hérlendis. í vetur munum við halda reglulcga námskeið í ritvinnslukerfunum WORD, WORDSTAR og APPLEWRITER og fleiri námskeið eru nú í undirbúningi. Af námskeiðum sem haldin hafa verið áður má nefna ETC og SCRIPSIT en þau verða ekki haldin nema sérstakar óskir komi fram þar um. Efni námskeidanna: Námskeiðin eru að langmestu leyti í formi verklegra æfinga sem leyst eru á tölvubúnaði SFÍ undir handleiðslu kennara. Farið er í allar helstu skipanir kerfanna og þær útskýrðar. Aðalleiðbeinandi: Ragna Sigurðardóttir Guðjohnsen, ritvinnslukennari hjá Stjórn- unarfélagi íslands sl. 2 ár. Starfaði áður sem einkaritari. Á næstunni verða haldin neðantalin námskeið: WORD Ritvinnslukerfið Word er nýjasta ritvinnslu- kerfið á markaðnum. Það er sérhannað fyrir IBM PC tölvur oj> er á góðri leið með að verða útbreiddasta ritvinnslukerfið hérlendis. Það þykir ákaflega fullkomið en nokkuð flókið fyrst í stað. Tími: 20.-23. ágúst kl. 13.30-17.30. WORDSTAR Ritvinnslukerfið Wordstar er tvímælalaust útbreiddasta ritvinnslukerfið sem fram hefur komið, enda mjög öflugt. Það er notað á tölvur sem vinna undir stýrikerfi CP/M en íslensk útgáfa af því hefur verið gerð í Televideo tölvur. Tími: 3.-5. september kl. 13.30-17.30. RITVINNSLU NÁMSKEIÐ SFÍ BASIC FORRITUN Á undanförnum árum hefur fjöldi smátölva á íslandi margfaldast. Flestöllum þessum smátölvum fylgir eða getur fylgt forritunar- málið BASIC. Basic er alhliða forritunarmál, iem þó er auðvelt í notkun. Markmið: Tilgangur þessa námskeiðs er að kenna forritun í Basic og þjálfa þátttakendur í meðferð þess. Að námskeiðinu loknu eru nemendur færir um að leysa eigin verkefni. Efni: Kennslan fer fram með verklegum æfingum undir leiðsögn kennara. Farið verður yfir skipanir í Basic, þær útskýrðar og helstu aðferðir við mátaða forritun kynntar. Raunhæf verkefni verða leyst. Þátttakendur: Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra forritun í Basic. Leiðbeinandi: Björn Guðmundsson forritari. rekur eigin forritunarþjónustu. Tími: 27.-30. ágúst kl. 9.(KL13.00. GRUNNNÁMSKEIÐ UM TÖLVUR Markmið: Að fræða þátttakendur um undirstöðuatriði er varða tölvur, kynna helstu hugtök og tækjabúnað. Tilgangur námskeiðs- ins er að þátttakendur átti sig á því hvernig tölvan vinnur og hvað sé hægt að framkvæma með henni. Efni: Grundvallarhugtök í tölvufræðum. - Stutt ágrip af sögu tölvuþróunarinnar. - Lýsing helstu tækja sem notuð eru í dag. - Hugbúnaður og vélbúnaður. - BASIC og önnur forritunarmál. - Notendaforrit: Kostir og gallar. - Æfingar á tölvur. - Kynnig á notendaforritum. Þátttakendur: Námskeiðið er ætlað starfs- mönnum fyrirtækja sem nota eða munu nota tölvur og öllum þeim sem hafa hug á að kynnast tölvufræði. Leiðbeinendur: Björn Guðmundsson, forritari. Starfrækir eigin forritunarþjónustu. Ragna S. Guðjohnsen, ritvinnslukennari. Tími: 20-23. ágúst kl. 9.00-13.00. 10-13. sept kl. 9.00-13.00. Tölvur eru í dag fyrst og fremst notaðar við úrvinnslu gagna. Samt er það svo að hefð- bundin forritunarmál s.s. Basic og Fortran eru fyrst og fremst ætluð fyrir töiulega útreikninga ogþví ekki þjál við gagnavinnslu. Gagnasafns- kerfi hafa því augljósa kosti fram yfir önnur mál, þegar unnið er með gagnasöfn. Dæmi um gagnasöfneru m.a. birgðaskrár, fasteignaskrár og viðskiptamannakrár. Markmið: Eitt vinsælasta gagnasafnskerfið á markaðnum í dag er DBASE II sem fá má á velflestar smátölvur. Á þessu námskeiði fá þátttakendur innsýn í það hvernig skal skipuleggja gögn, gagnameðhöndlun og gagnaúrvinnslu, og eftir námskeiðið eiga menn að vera færir um að nota DBASE II í þessu skyni. Efni: Tölvur sem gagnavinnslukerfi. - Skipulag gagna til tölvuvinnslu. - Gagnasafns- forrit kynnt og borin saman. - Verkefni og æfingar í DBASE II, á tölvubúnað SFÍ. Þátttakendur: Námskeiðið er ætlað stjórn- endum og öðrum þeim sem vilja tileinka sér notkun gagnasafnskerfa á smátölvur. Leiðbeinandi: Valgeir Hallvarðsson, véltæknifræðingur. Lauk prófi frá Odense Teknikum 1978, en starfar nú sem rekstrarráð- gjafi hjá Hagvangi h/f. Tími: 3.-5. september kl. 9.00-13.00. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og starfsmenntunarsjóður Starfsmannafélags ríkisstofnana styrkja félagsmenn sína til þátttöku á námskeiðunum og þurfa þátttak- endur að sækja beiðni þar að lútandi á viðkomandi skrifstofu. Hpplýsingar um námskeið sem Verslunar- mannafélag Reykjavíkur stvrkir félagsmenn sína til þátttöku á, fást á skrifstofu VR. Tilkynniö þátttöku ísíma 82930 BJARNI OAGUR AUGl TEIKNISTOfA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.