Morgunblaðið - 12.08.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.08.1984, Blaðsíða 2
58 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1984 RICHARD BURTON Mikill listamaður en dálítið villtur Richard Burton, leikarinn sem varð frægur ekki eingöngu sem frábær Shakespere-túlkandi og kvikmyndaleikari held- ur einnig fyrir litskrúðugt einkalíf, lést fyrir skömmu úr ______heilablóðfalli, aðeins 58 ára gamall.__ Hann er þriðji breski stórleikarinn sem deyr á nokkrum vikum, fyrst Dame Flora Robson, þá James Mason og nú Richard Burton. Richard Burton var ekki einungis þekktur sem gódur leikari heldur einnig fyrir mjög litskrúðugt einkalíf sem fjölmiðlar veltu sér upp úr í áratugi. Stoltur af uppruna sínum Richard Jenkins, eins og hann hét upprunalega, var fæddur í kolanámubænum Pontrhydfen í Wales hinn 10. nóvember 1925, og var hann tólfti í röðinni af þrettán systkinum. Móðir hans lést er hann var tveggja ára og ólst hann að mestu upp hjá aldraðri frænku sinni. Þegar leikhæfileikar Richards fóru að gera vart við sig tók kenn- ari nokkur, Philip Burton, hann upp á arma sér og kenndi honum m.a. að tala ensku án hins sterka welska hreims. Er leikferill hans hófst fyrir alvöru breytti hann eftirnafni sínu í Burton eftir nafni kennarans. Þrátt fyrir frægðina, var Rich- ard alltaf stoltur af uppruna sín- um og gleymdi ekki hvaðan hann var. Hann heimsótti Pontrhydfen alltaf reglulega þar sem margir af hans nánustu ættingjum búa enn þann dag í dag og einn þorpsbúinn sagði: „Rolls Roycinn renndi allt í einu í hlað. Það varð ekki uppi fótur og fit því hann var bara kominn heim til sín. Hann var alltaf einn af okkur." Burton fékk styrk til náms við Oxford-háskóla og gegndi síðan um tíma herþjónustu. Það má segja að er herþjónustu lauk hafi leikferill hans byrjað fyrir alvöru. Richard Burton isamt föður sínum í Pontrhydfen. Talinn frábær Shakespere-leikari Burton lék fyrst opinberlega í Liverpool árið 1943 sem Glan í leikriti Emelyn Williams, The Druid’s Rest. Leikritið var einnig sýnt í London um nokkurra mán- aða skeið, en að því búnu hélt Burton til náms í Oxford. Bæði á skólaárum og að því skeiði loknu hélt hann sig við sviðsverkin, en árið 1948 leikur hann í sinni fyrstu kvikmynd „The Last Days of Dolwen". Næstu árin leikur hann í verkum Christopher Fry svo sem Richard í „The Lady’s not for Burning" og það er einmitt það leikverk sem kallar Burton fyrst fram á sviðið í Bandaríkjunum, en fyrrnefnt leikrit var sýnt í New York. Þegar sýningum var lokið tók Burton þátt í öðru leikverki til viðbótar á sama stað. Hann snýr síðan á ný til London og tekur þátt í ýmsum sýningum, hefur á hendi aðalhlutverkið í Montserrat við Lyric Hammersmith og leikur síð- an hjá Old Vic 1953 og 1954. Næstu árin verður Richard Burt- on alkunnur fyrir magnaða túlkun á ýmsum þekktustu hlutverkum leikbókmenntanna. Nægir þar að nefna Othello og Iago og á Edin- borgarhátíðinni kemur Burton fram sem Hamlet, þar sem hann vann stóran sigur og telja ýmsir Burton vera meðal frábærustu Shakespere-leikara er uppi hafa verið. Nokkru síðar fær hann hlut- verk skálksins Philip Faulcon- bridge í King John, en það hlut- verk var álitið hæfa Richard Burt- on sérlega vel. En Hollywood freistaði. Og þangað lá leiðin hjá Richard Burt- on, sem margir telja að hafi orðið upphafið að endalokunum. Hann leikur í stórmyndinni Cleopötru, fer þar með hlutverk Antonfusar og mótleikarinn er Elísabet Taylor. Hann einbeitir sér að kvikmyndaleik á næstu árum fer með hlutverk eins og Arthur kon- ung, Camelot og síðast en ekki síst Hamlet 1964 en sú mynd var framleidd af hinum þekkta John Gielgud. Richard Burton var sex sinnum útnefndur til Óskarsverðlauna, en vann aldrei. Það væri að æra óstöðugan að fara að rekja allar þær myndir sem Richard Burton lék í um dagana enda tæplega all- ar þess virði að hafa um þær mörg orð og sumar þeirra taldar heldur misheppnaðar eins og Dr. Faust. Þó skyldi ekki gleyma að nefna kvikmyndina „Hver er hræddur við Virginiu Wolf“ eftir Edward Albee, en leikur þeirra Burtons og Elísabetar Taylor í þeirri mynd hefur mjög verið rómaður. Á síð- ari árum hefur bæði dregið úr afli og auðnu hjá Burton, leikarinn þótti vera farinn að dala og vin- sældirnar að dvína. Þó hélt hann áfram að leika og kom fram í sjón- varpsþáttum og leiknum fram- haldsþáttum, svo sem um Wagner, og árið 1977 má minnast þess að hann fluutti 26 þætti í BBC um breska einvalda frá fyrri tfð. Er hann lést var hann að vinna að kvikmynd eftir sögu Orwells, 1984. Mótleikari hans þar var John Hurt. Heimspressan gaf Burton ætfð mikið pláss í slúðurdálkum sínum og fæstir eflaust sem hafa ekki einhverja hugmynd um einkalíf þessa leikara, og ekki síst um stormasamt samband hans og Elísabetar Taylor. Sumir hafa fleygt því fram að einkalífið hafi skyggt á feril hans sem leikar. Árið 1949 gekk Burton í það heilaga með Sybil nokkurri Willi- ams og áttu þau saman tvær dæt- ur. Entist það hjónaband f 14 ár, eða þangað til 1963. Þá gerist sá frægi viðburður að Elfsabet Tayl- or og Richard Burton leika saman í „Cleopötru" og það verður ást við fyrstu sýn. Þar hefst upphafið á stormasömu sambandi þeirra er entist í meira en áratug. Blöð um allan heim veltu sér upp úr einka- lífi þeirra, skartgripunum sem hann gaf henni og orðum sem þeim fór á milli í gegnum fjöl- miðla, en bæði þóttu þau með af- brigðum skapstór. Þau gifta sig 1964 og skilja síðan tíu árum seinna. Ári seinna taka þau sig svo til og ganga í það heilaga á nýjan leik, þá í afríska ríkinu Botswana en hjónabandið varði í stuttan tíma og endaði með skiln- aði árið 1976. Richard lét þó ekki þarna við sitja og sama ár og hann skilur við Elísabetu gengur hann að eiga fyrirsætuna Suzy Hunt. Varði það hjónaband í sex ár. Fimmta og síðasta eiginkona Richards Burton var fyrrum aðstoðarkvikmynda- framleiðandi, Susan Hay, og var hún hjá eiginmanni sínum er hann lést. Eins og margir vita átti Richard við drykkjuvandamál að strfða og gerði hann oft misheppnaðar til- raunir til að drífa sig upp úr þeirri eymd. Hann viðurkenndi þó fús- lega að drykkja væri vandamál hjá honum og einhverntímann lét hann þau orð falla að drykkjan væri verri en krabbamein. I júní sl. lét Burton þau orð falla að drykkjudagar hans væru á enda og þetta væri síðasta hjónaband hans. Það næsta yrði gröfin. Róbert Arnfinnsson leikari: Góður listamaður Svo lengi sem ég man eftir hef ég dáðst að Richard Burton sem góðum listamanni. Það sem mér er minnisstæðast í svipinn er þegar þau léku saman fyrrverandi hjón- in hann og Elisabet Taylor í „Hver er hræddur við Virginiu Wolf“. Skömmu áður en ég sá þau leika var ég búinn að leika þetta hlut- verk á móti Helgu Valtýsdóttur. Kannski hefur þetta gripið mig þessvegna. Annars er leikur hans í flestu sem ég hef séð hann góður, hitt er undantekning, og öllum geta verið mislagðar hendur. Það kastar ekki rýrð á listamann sem slíkan. Því miður hef ég aldrei átt þess kost að sjá hann á leiksviði. Sir John Gielgud: Fæddur leikari „Richard Burton war fæddur leikari en dálítuð villtur og valdi kannski ekki rétt þegar hann kast- aði frá sér leikhúsferlinum fyrir kvikmyndirnar. Hann var alvar- legur, heillandi og með mikla hæfileika. Lord Olivier: Góður leikari Lord Olivier lék með Burton í mörgum myndum og hann sagði í viðtali við „The Times" nýlega: „Burton var mjög góður leikari og skjótur dauðdagi hans er mikill missir fyrir kvikmyndaheiminn, leikhúsheiminn og almenning. Ég hlakkaði til að fara að vinna með honum á nýjan leik.“ Þeir áttu að vinna að nýrri mynd í Berlín „Wild Geese Two“ þar sem Lord Olivier átti að leika Rudolph Hess og Burton tilbúna persónu er átti að eiga hlutdeild í að bjarga Hess frá fangelsi. — Gr.G

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.