Morgunblaðið - 12.08.1984, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 12.08.1984, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1984 63 Nýjasta skipið í íslenska togaraflotanum, Gullver frá Seyðisfírði. plássi vilja allar stelpur fá vinnu þar. En í frystihúsið fara þær ekki nema í neyð. Eins er þetta að verða með sjómannastéttina, þá stétt sem hefur haldið þessu gang- andi í gegnum tíðina. Það þarf að auka aftur virðingu manna fyrir þessum störfum enda hætta á að bankar og önnur þjónustufyrir- tæki þrifust illa ef þessi störf legðust niður. Nei, ég held að eng- inn heilvita maður geti meint það i alvöru að leggja niður togara- útgerð. Afkoma landsmanna byggist á þessari útgerð og það verður að finna henni traust og viðunandi skilyrði. Líttu til dæmis á stað eins og Seyðisfjörð, allt byggist þetta á útgerðinni. Svo þarf maður að hafa sér eins og hver annar beiningamaður á sama tíma og rándýrar bensínstöðvar spretta upp í hverju plássi. Fyrir hvaða peninga heldurðu að þeir byggi þetta?" - • - Þegar hér var komið höldum við niður á bryggjuna við Fiskvinnsl- una þar sem verið er að búa Gull- ver til veiða, en ætlunin er að senda hann út strax um kvöldið. Þetta er glæsilegt skip og ólafur hefur á orði að réttast væri að breyta því í skemmtiferðaskip. I brúnni hittum við skipstjórana tvo, þá Jón Pálsson og Axel Ág- ústsson, en Jón á skipið með Ólafi og hafa þeir verið saman í útgerð í 25 ár. Axel er hins vegar yngri, en hefur þó starfað við útgerðarfyr- irtæki ólafs og Jóns frá árinu 1965. Þeir féiagar eru að vonum ánægðir með úrslit mála og hafa á orði að þetta sé besti veiðitíminn og því slæmt að stoppa einmitt nú. Talið berst að vanda togaraút- gerðar og m.a. þeirri umræðu að togaraflotinn sé of stór. Þeir eru ekki sammála því og segjast vera vantrúaðir á að færri togarar gætu aflað þess, sem til þyrfti til að halda þjóðarbúinu gangandi. Hins vegar megi kannski deila um tegundir skipa og samsetingu flot- ans. f Fiskvinnslunni er vinna enn í fullum gangi. Óskar Þórarinsson, verkstjóri, segir að hráefnið muni endast fram að helgi, en þá verði líklega vinna stöðvuð í nokkra daga, þangað til Gullver kemur aftur úr fyrsta túrnum. Þá færist lífið í plássinu aftur í sitt fyrra horf, a.m.k. á meðan útgerðinni er haldið gangandi. Það er farið að birta til á Fjarð- arheiði þegar ég yfirgef Seyðis- fjörð. Sólin er að búa sig undir að verma Austfirðinga næstu dag- ana, enda er Atlavikurhátíðin framundan. Og það er hálf svekkj- andi að þurfa endilega að fara aft- ur í slagviðrið fyrir sunnan. Óskar Þórarinsson, verkstjóri í Fiskvinnslunni, ásamt seyðfírðskri blómarós í vinnusalnum. Vanar hendur við verðmætasköpun. Texti og myndir: SVEINN GUÐJÓNSSON Það er margt sem minnir á útgerð og sjávarútveg á Seyðisfírði. Hér hefur einn Seyðfirðingur, Ásgeir Emilsson, málað húsvegg sinn á táknrsnan hátt # tekurvið ðarsem endar MARKMIÐ: Lotus 1-2-3 er hugbúnaður sem náð hefur gífurlegri útbreiðslu um allan hinn tölvuvædda heim undanfarin misseri. Lotus 1-2-3 er fáanlegt á letur gerðir 16 bita smátölvur, s.s. IBM RC og samskonar vélar, Ranbow PC, Wang PC, og einnig fáanlegt fyrir Mclntosh. í þessum hugbúnaði sameinast öflugur tölfu- reiknir (spreadsheet), gagnagrunnskerfi (base) og síð- ast en ekki síst grafisk framsetning upplýsinga. Þessi , þrjú kerfi vinna náið saman (intergrated), og með því hafa náðst áður óþekktir möguleikar í gagnavinnslu á minni tölvur. Efni námskeiðsins: - Kenna á þá möguleika sem 1-2-3 býður í tölvu- vinnslu - Notkun allra skipana og verkþátta kerfisins með hjálp tölvu - Notkun gagnagrunns og grafisk framsetning - Samtenging kerfanna 1-2-3 og samtenging við önnur tölvukerfi. Á námskeiðinu er notaður tölvubúnaður sem keyrir Lotus 1-2-3. ÞÁl l lAKENDUR: Stjórnendur fyrirtækja og stofn- ana, fjármálastjórar, deildarstjórar hagdeilda, rekstr- arráðgjafar og þeir sem ábyrgð bera á notkun tölvuk- erfa við áætlanagerð. TÍMIOG STAÐUR: Hótel Loftleiðir, Kristalssalur. 29.-31. ágúst kl. 9-17, alla dagana. LEIDBEINANDI: Dan Remenyi, B.Soc.Sc. MBA, forstjóri og aðalráðgjafi fyrirtækisins The Management Centre í London. Hans aðalstarfsvið er hagnýting við- skiptatölva í stórum og smáum fyrirtækjum og vinnur hann sem ráðgjafi, útgefandi og kennari á því sviði. Hans fyrri störf eru m.a. hjá ÍBM UK, og Barclays Mcrchant Bank. TILKYNNIÐ ÞÁTTTOKU í SÍMA 82930 STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS iffa^o23 BJARNIOAGUR/AUGL TEIKMSTOFA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.