Morgunblaðið - 12.08.1984, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 12.08.1984, Blaðsíða 36
92 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1984 ást er ... ... aöfá koss aftan á háls- inn. TM Rea U.S Pat Ott -all rights reserved ®19ft4 Los Angeles Tímes Syndicate HÖGNI HREKKVÍSI „GBSTOR. KVDLPSIN5..,, MOKKUf?. 5EM EKKI pARFAÐ KYNMA . " Getum vart hreykt okkur af frelsi JVJ á ísafirði skrifar: Kæri Velvakandi! Eftirfarandi bréf, sem birtist í ensku blaði, þykir mér verðskulda að koma fyrir sjónir íslenzkra les- enda. Ég þýði það óbreytt að öðru leyti en því, að hér eru settar tölur um fósturdráp á íslandi í stað brezkra talna (tvær milljónir fóst- urdrápa 1967-1983). - JVJ. Saklaus börn hafa alltaf orðið að þjást fyrir sakir pólitískrar hentisemi. Þið minnist Heródesar, sem óttaðist að missa völd sín, þegar vitringarnir sögðu honum frá stjörnunni, sem þeir höfðu séð og vísaði þeim veginn til nýfædds konungs. Þessi ótti Heródesar við ung- barnið kom honum til að úthella blóði allra drengja upp að tveggja ára aldri í Betlehem og nágrenni. Kirkjan minnist þessara „heil- ögu sakleysingja" á sérstakan hátt, því að þeir standa Kristi svo nærri sem hinir fyrstu píslarvott- ar. (Messudagur þeirra, sem hald- inn hefur verið hátiðlegur síðan í fornkirkjunni, er 28. desember. í grísku kirkjunni er messan kennd við „hin 14.000 heilögu börn“. — Aths. þýð.) En kirkjan þarf einnig að minnast þess, að um 4700 börn hafa verið drepin hér á landi með „lögum um fóstureyðingar" síðan vorið 1975. Ennþá misnotum við aðra í þágu pólitiskrar hentisemi, og ennþá drepum við sakir ótta. Þjóð- félag, sem telur sér vera ógnað af ófæddu barni, getur naumast hreykt sér af því frelsi, sem það er sagt meta svo mikils, né heldur af þeim mannréttindum, sem það þykist berjast fyrir. Hvenær ætlum við, eins og María móðir Jesú, að segja Já“ við kærleika guðs og því lifi, sem hann gefur? Hvenær ætlum við að geta lifað í samræmi við það, að við vorum sköpuð sem ímynd hans og til lík- ingar við hann — og að gera okkur grein fyrir því, að einnig barninu i móðurkviði var gefin sú óafmáan- lega virðing? (Stephen Callus) Svart/hvítar myndir í sjónvarpi rifja upp minningar frá gömlu góðu dögunum. Minnir á gömlu góöu dagana Kolfinna Þórisdóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: „Yfir mörgu geta menn kvart- að hér í dálkum Veivakanda og á margt vafalaust fullkomlega rétt á sér. Eitt hefur þó óneitan- lega vakið furðu mína og það er að fólk skuli vera að kvarta und- an því að sífellt sé verið að sýna svart/hvítar myndir í sjón- varpinu og lætur það jafnvel að því liggja, að það sé okkur ekki samboðið, þar sem við borgum afnotagjöld fyrir litsjónvarp! Mikill má nú vera nirfilshátt- urinn í mönnum að una því ekki að vid og við séu sýndar svart/hvítar myndir í sjónvarpi. Að mínu mati rifjar það upp minningar frá gömlu, góðu dög- unum að horfa á myndir í svart/hvítu og þó að þær séu endursýndar og fimmtíu ára gamlar! Mætti ég frekar biðja um þannig myndir en þvæluþáttinn eftir þýska gullkálfinn Rainer Werner Fassbinder eða sænsku myndirnar sem keyptr vorú í hundraða tali og ganga aðeins út á eymd, volæði og barnsnauðir." Hvaða Jónsbók? A.G. hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: „Við þekkjum öll Jónsbók, ekki satt? í útvarpsþættinum „í bít- ið“ er stundum lesið úr Jónsbók, og mig hefur lengi langað til að spyrja um hver hafi skrifað þessa svokölluðu Jónsbók sem úr er lesið, þvi þaö er ekki sú eina sanna sem allir þekkja. Venjan er nú sú, að getið sé um höfund bóka sem lesið er upp úr og eins hver það er sem les. Þannig er því hins vegar ekki farið í áðurnefndum þætti. Finnst mér það móðgun við höf- und bókarinnar og flytjanda og lítilsvirðing við hlustendur. Er þetta annars yfirleitt leyfilegt? í dag, föstudaginn 10. ágúst, var meirihluti tónlistarinnar í þættinum rokk og popp, eintómt væl og garg. Þess konar tónlist er farin að ná yfirhöndinni í þættinum. Þó eru föstu dag- skrárliðirnir á sínum stað, s.s. trimmið kl. 7.25 sem reyndar er oft á rugluðum tíma, þ.e. rólega leikfimin er höfð í fyrri tíman- um og það ekki svo mikið sem afsakað fyrir útvarpshlustend- um. Loks eitt sem brennur á vör- um afar margra. Ef talið er haft á útvarpinu á þeim styrkleika sem þægilegt er að hlusta á, þá verður að þjóta til og lækka niður í tækjunum þegar tónlistin er sett á, því hún er ætíð alltof hátt stillt. Manni er sagt að þetta sé af tæknilegum ástæð- um, en því á ég bágt með að trúa. Það hlýtur að vera hægt að út- varpa tónlistinni lægra svo að maður ærist ekki hreinlega einn daginn.“ Listasafnið lokað yfir aðal ferða- mannatímann Kristín Gestsdóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: „Getur Listasafn íslands leyft sér það að hafa lokað yfir aðal ferðamannatímann? Síðastliðinn laugardag, 4. ág- úst, fór ég með sex útlendinga til að skoða Listasafn íslands. Þess- ir útlendingar komu hingað til að ferðast um landið og ætluðu síðasta dag ferðalagsins að skoða það sem markverðast er í Reykjavík. Á ferðaskrifstofu hafði þeim verið bent á að skoða Listasafn Islands til að kynna sér málaralist þjóðarinnar. En viti menn. Á Listasafninu var band strengt fyrir stigann og öllum meinaður aðgangur. Stúlkurnar í fordyrinu tjáðu okkur að Listasafnið væri I sumarleyfi. Þetta kom mér spánskt fyrir sjónir, er ekki ann- ars sjálfsagt að Listasafnið sé opið um aðal ferðamannatím- ann? Margir útlendingar jafnt sem íslendingar hafa áhuga á ís- lenskri málaralist og því er þetta mörgum vonbrigði. Er fjárhag- urinn svo bágborinn að loka verður um hásumarið? Lista- safnið hefur skyldum að gegna.“ Sýniö íslensku myndirnar aftur E.K.K. hringdi og hafði eftir- farandi að segja: „Ég er hér með eina ábendingu til eigenda kvikmyndahúsa borg- arinnar. Á sumrin eru staddir hér á landi fjöldinn allur af Is- lendingum sem annað hvort eru búsettir erlendis eða eru þar við nám, og telst ég í þeirra hópi. Við missum ætíð af öllum ís- lenskum kvikmyndum sem sýnd- ar eru hér á veturna og þykir okkur það að vonum míður. Hvernig væri nú að sýna ís- lensku kvikmyndirnar í einhvern tíma yfir sumarið, svo allir geti séð þær sem vilja? Að vísu er verið að sýna Útlagann, en sú mynd er búin að ganga mjög lengi og hefur jafnvel verið sýnd erlendis, svo að flestir eru búnir að sjá hana. Ég er ekki ein um þessa skoð- un heldur er fjöldi fólks á sama máli. Því vonum við öll að eig- endur kvikmyndahúsa borgar- innar taki þetta til athugunar, því yrðu ótal margir fegnir." Frá Listasafni íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.