Morgunblaðið - 12.08.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.08.1984, Blaðsíða 1
Sunnudagur12. ágúst hestbaki frá Laugarvatni um Kjöl í Skagafjörð Iferðinni voru tuttugu borg- andi ferðamenn, 13 bæversk- ir, 5 íslenskir (þeirra á meðal blm. Morgunblaðsins), einn franskur og annar danskur. Leið- sögumenn voru fjórir. Þeir stjórn- uðu ferðinni, ráku stóðið (hestar í ferðinni voru 59) og fengu stund- um til þess aðstoð úr túrhesta- hópnum. í fjallatrukk frá Úlfari Jacobsen var eldhúsið með tveim- ur yfirkokkum og bílstjóra. Is- hestar hafa aðsetur í Miðdal hjá Guðm. Birki Þorkelssyni, kennara og ábúanda á jörð FIP. Hann og Einar Bollason, kennari í Hafnar- firði og körfuboltastjarna, eru ís- hestar. Þeir segjast hafa kynnst í körfuboltaleik með þeim hætti að Þaö er ekki reimt á KiU - nema nálastungulækningar teljist yfimáttúrulegar Það er eins og inni í hausnum ennþá kveði Ekki man ég allt sem skeði en þó er víst að það var gleði. Við annað tækifæri myndi þessi lýsing af magnaðri hestaferð í síðasta mánuði látin nægja — hún er býsna nærri lagi. Línurnar þær arna eru hluti af söng, sem á einkar vel við á fjöllum uppi enda var hann sunginn bæði ótt og títt þegar sest var á kvöldum og jórykið sungið úr raddböndunum. Það átti ýmislegt eftir að drífa á daga „túrhestanna“ og leiðsögumanna þeirra frá íshestum í Miðdal áður en sungið var í síðasta sinn í Steinsstaðaskóla í Skagafirði. Þá voru að baki að minnsta kosti 200 km á hestbaki — frá Laugarvatni yfir Kjöl á sex dögum. til stympinga kom á milli þeirra og báðir voru reknir út af. Og það hafi verið betra að tala saman en að gera ekki neitt. Manni sýnist fljótlega að þeir séu góðir vinir. Þýskir hlýðniknapar Það er fjörlegt að koma heim í Miðdal þegar hópur er að leggja upp. Menn eru misjafnlega kunn- áttusamir og þurfa margs að spyrja. íslendingarnir í hópnum hafa allir komið á hestbak áður en það var varla að allir Þjóðverjarn- ir hefðu séð íslenska hesta fyrr. Þeir eru félagar í hestamannafé- lagi Bayer-auðhringsins í Lever- kusen og margir unnu hjá ein- hverju fyrirtækja félagsins í plássinu. I hestamannafélaginu eru stundaðar ýmsar kúnstir, hlýðniæfingar af margvíslegum toga og hlaupið er í hringi í reið- höllinni með knapann standandi í ístöðunum. Eitthvað var dálítið minna um útreiðartúra. Vanur Fjallasýn er víia tignarleg þegar farið eryfir Kjöl — eins og tii dæmis hér, þar sem sér til Jarl- hetta í Langjökli. hestamaður, sem hafði séð slíka reiðlist í Þýskalandi, yppti öxlum og sagði: „Æ, ég veit það ekki. Þetta er bara lásí." En allir fengu á endanum hest og upp úr hádeg- inu var svo lagt í fyrstu dagleiðina af sex — riðið makindalega upp með hlíðinni í átt til Geysis. Sólin skein og fuglar sungu í mó. Mýið sótti á mann í andvaranum og nokkrir fyrirhyggjusamir drógu upp flugnanet þegar áð var á grös- ugum bala. Hesta þurfti að girða betur, sumir lengdu eða styttu í ístöðunum, hrossunum var hrósað og spenna var í loftinu. Gaman hjá kónginum Þetta var falleg byrjun. Leiðin að Miðhúsum er i gegnum skóg mestallan timann. Fjöllin blasa við nær allan hringinn, Hekla er sönn drottning. Farið eru um kon- ungsveginn frá 1907, sem byggður var fyrir Friðrik VIII. Hann vildi vist ekki, þegar til kom, fara þar um í hestakerru — hann reið mest ofan og neðan við veginn í gegnum skóginn og upp í fja.ll. Honum hafði ekki þótt svona gaman í háa herrans tíð. Vegurinn var samt notaður lengi á eftir og nú eru mjúku moldargöturnar heppilegur reiðvegur. Á leiðinni er farið yfir Brúará, þá viðsjárverðu drós, SJÁ SÍÐUR 76, 77, 78.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.