Morgunblaðið - 12.08.1984, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 12.08.1984, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1984 85 skemmtunum og ýmsum öðrum hætti. Þá veitir hið opinbera í sumum löndum fjármagn til starfseminnar. Dvölin í búðunum er kostuð af landi gestgjafa, en ferðakostnaður og annað þess háttar er greitt af gestunum sjálf- um.“ 11 ára besti aldurinn — Hvers vegna verða börnin að vera 11 ára er þau dveljast í búð- unum? „Þessi spurning heyrist mjög oft og því er eðlilegt að þú spyrjir. Ólíkir aldurshópar hafa verið reyndir í alþjóðlegu sumarbúðun- um og niðurstaðan er sú að 11 ára er besti aldurinn fyrir þessa sér- stöku starfsemi. 11 ára gömul börn eru nægilega gömul til að dveljast að heiman og til að skilja tilgang samverunnar, en einnig nægilega ung til að taka hvert öðru án fordóma. Þau eru einnig yfirleitt í góðu líkamlegu jafn- vægi, sem hjálpar þeim að aðlaga sig fljótt og vel að breyttum að- stæðum. Það hefur komið í ljós að 11 ára börn eru i betra andlegu jafnvægi en unglingar og eru jákvæðari og viljugri til samneyt- is. Auk þessa eru þau nægilega ólik til að setja á búðirnar raun- verulegan alþjóðlegan svip.“ — Eru alþjóðlegar sumarbúðir barna tengdar ákveðnum trúar- söfnuðum eða stjórnmálastefn- um? „Nei. Sumarbúðirnar eru algjör- lega utan við stjórnmálaskoðanir, annað væri óheiðarlegt gagnvart þeim foreldrum og löndum sem treysta okkur fyrir bðrnum sín- um.“ — Hvað hafast börnin að í búð- unum? „Þau fara í ýmiskonar leiki, stunda íþróttir, föndra, syngja, fara i náttúruskoðunarferðir og margt fleira. Ennfremur hafa þau dvalist á islenskum heimilum. { stuttu máli felst starfsemin hér í störfum þar sem börnin ná saman i vináttu og glaðværð án þess að þurfa sameiginlegt tungumál til að tjá sig.“ Myndir og texti: BRYNJA TOMER Erika, Alan, Miloika og Mauricio frá Costa Rica. Heima hjá sér fá þau aldrei að fara út að leika sér eftir kvöldmat og því fannst þeim það „alveg frábært" að fá að vera úti hér langt fram eftir kvöldi. Fjögur börn komu alla leið frá Costa Rica í sumarbúðirnar í Hlíð- ardalsskóla. Þau heita Miloika, Al- an, Erika og Mauricio, en fararstjór- inn þeirra heitir Ronald. Hann sagði, er blaðamaður ræddi við hann, að hann hefði sjálfur farið í alþjóðlegar sumarbúðir barna, er hann var 11 ára. Hann hefði heillast af starfseminni og verið meira og minna viðloðandi hana síðan. Allir krakkarnir eru frá San José, höfuðborg Costa Rica, og sögðu þeir að ísland hefði komið þeim mikið á óvart. Miloika hafði búist við því að snjór hyldi allt landið, Alan átti von á miklu meiri kulda, Mauricio hafði ein- hvers staðar heyrt að á íslandi væru engin fjöll og Erika átti ekki von á því að ísland væri svo tæknivætt þjóðfélag sem raun bar vitni. Varðandi íslenskan mat, sögðu þau að hann væri mjög ólíkur þeim sem þau ættu að venjast, en mjög góður. Þau voru sammála um að í fyrstu hefði verið erfitt að sofna á kvöldin, því kvöldin og næturnar væru svo bjartar hér á íslandi. „Við erum vön því að um kvöldmatarleytið sé orðið dimmt og í Costa Rica fáum við aldrei að fara út að leika okkur eftir kvöld- mat. Hér fáum við hins vegar að vera úti langt fram eftir kvöldi og það er alveg frábært!" Öll sögðust þau ætla að hafa samband við vini sína, sem þau hefðu eignast í búðunum, og sögð- ust vonast til að geta heimsótt sem flesta þeirra þegar fram liðu stundir. Hluti þátttakenda í alþjóð- legu sumarbúðunum. Alls dvöldust þar 44 börn frá 11 börnum. Börnin sýndu dansa frá löndum sínum á opna deg- inum. Hér sjást tvö sýnis- horn af danssýningunni. Börnin á dansmyndunura eru frá Kanada og Frakk- landi. „Kossaleikirnir skemmtilegastir“ — segja Ben og Rachel frá Bandaríkjunum Þau Rachel og Ben voru meðal bandarísku þátttakendanna í sumar- búðunum í Hlíðardalsskóla. Þau þekktust aðeins áður en þau komu til ísiands, því bróðir Ben og systir Rachel voru saman í alþjóðlegum sumarbúöum í Noregi fyrir tveimur árum og hafa haldið sambandi hvort við annað eftir dvölina þar. Hvernig kunnið þið við ykkur hérna? „Mjög vel,“ segja þau bæði. „Það er virkilega gaman hérna, en það eina sem er leiðinlegt er veðrið hér sem er ekki nógu gott. Við erum bæði frá Detroit og fórum þaðan í sólskini og góðu veðri. Annars skiptir veðrið engu meginmáli, það er svo gaman hérna,“ segir Ben og brosir hálfafsakandi. Hvað er skemmtilegast hérna? „Kossaleikirnir," segir Rachel og skellir uppúr. „Mér finnst líka skemmtilegast í kossaleikjunum," segir Ben. „Maður fær nefnilega að kyssa svo ofsalega margar stelpur!” Hvernig gengur ykkur að ná sambandi við hina krakkana? „Bara vel. Sumir tala svolitla ensku, en við hina tölum við bara fingramál, eða táknmál sem við búum sjálf til." Saknið þið fjölskyldna ykkar í Bandaríkjunum? „Nehei! Auðvitað hlökkum við til að hitta þær aftur, en við sökn- um þeirra ekkert. Það er alltaf svo mikið um að vera alltaf, að maður hefur engan tíma til að hugsa um það hvort maður saknar ein- hverra. Við höfum félagsskap af svo mörgu góðu fólki hérna, farar- stjórunum og öllum krökkunum. Það hafa örugglega allir krakk- ar gott af því að fara í svona sumarbúðir, maður lærir svo margt og kynnist svo mörgum að það er alveg ótrúlegt. Við erum búin að eignast marga vini hérna og ætlum að skrifast á við þá eftir að við komum heim. Kannski heimsækjum við þá líka. Kannski eigum við eftir að fara til allra þessara landa einhvern tíma seinna og heimsækja vinina sem við eignuðumst hér á íslandi þeg- ar við vorum 11 ára. Það er skrít- ið... “ sagði Rachel að lokum og lét hugann reika um ókomna tíð — þegar hún yrði ekki lengur 11 ára og þátttakandi í sumarbúðun- um norður á íslandi. Rachel og Ben frá Bandaríkjunum. „Við erum búin að eignast marga vini hérna og ætlum að skrifast á við þá eftir að við komum heim.“ Mjög erfitt að sofna á björtum sumarnóttum Spjallað við Alan, Eriku, Mauricio og Miloiku frá Costa Rica Gammar í hæstu hæðum Hljóm- plotur Siguröur Sverrisson Gammar Gammar Geimsteinn Samlíkingar kunna að vera ~ hvimleiðar. Stundum eru þær nauðsynlegar, stundum líka hreint óþarfar. í þessu tilviki verður ekki hjá samlíkingu kom- ist. Hvort sem mönnum líkar það betur eða verr á Gömmunum eftir að verða stillt upp við hlið Mezzoforte á vogarskálunum. Báðar leika þessa sveitir nefni- lega bræðing (fusion á ensku) þótt ólíkur sé hann. Sjálfur ætla ég að stilla þessum flokkum upp hlið við hlið og kveða upp eigin úrskurð: Tónlist Mezzoforte kann að vera fágaðri og „þétt- „ ari“, en lífið og ferskleikinn hjá Gömmunum er svo miklu meiri. Sama gildir um beitingu hljóð- færanna. í mínum eyrum hafa Gammarnir vinninginn átakalít- ið. Fyrirfram hafði ég talið víst * (svona getur maður nú verið for- dómafullur) að Steingrímur óli Sigurðarson, trommari, og Þórir Baldursson, hljómborðsleikari, reyndust veikustu hlekkirnir í Gömmunum. Þetta var ástæðu- laus ótti, í Gömmunum er nefni- lega enginn veikur hlekkur. Ekki svo að skilja, ég vissi vel hvað j Þórir getur en átti einhvern veg- inn ekki von á því að hann færi £ jafn létt með að spila þetta og » raun ber vitni. Þórir virðist á heimavelli í allri tónlist. Hina þrjá þekkti ég betur og vissi upp á hár hvað þeir geta, eða svo hélt ég. Þeir koma manni sífellt á óvart þessir sveinar og það er erfitt að hafa taumhald á ' lýsingarorðaflaumnum þegar jafn færir menn eiga í hlut. Björn Thoroddsen er i mínum eyrum einhver mesti tónlistar- maður þessarar þjóðar. Gítar- leikur hans unaðslegur. Sama má segja um bassaleik Skúla Sverrissonar (með öllu óskyldur undirrituðum haldi menn að fjölskyldupólitík ráði ferðinni í gagnrýninni) og blástur Stefáns Stefánssonar. Leikni Skúla á slaggígjuna ferstrengdu er með ólíkindum. Blástur Stefáns er svo tær og þrunginn innlifun að engum getur dulist að þar fer toppmaður. Stundum þó kannski full „skólaður". Vel má vera að þessi umfjöll- un sé orðin fimmfalt hástemmd- ari en upphaflega var stefnt að. Það gerir bara ekkert til sona endrum og sinnum. Gammarnir eiga skilið allt þetta lof og miklu meira og ég vona að platan fái þá athygli, sem hún á svo sann- arlega skitið. Lögin á þessari plötu Gamm- anna eru átta talsins. Björn á þrjú, Stefán þrjú og Þórir tvö. Þau eru nokkuð svipuð að styrk- leika, en mest hafði ég gaman af Fuglum, Bláu skóflunni og Óðnum, þar sem rokkið ólgar undir niðri á köflum. Sóló Björns í því lagi er hreint magnað. A VJterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamióill!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.