Morgunblaðið - 12.08.1984, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1984
83
Aðalfundur Prestafélags íslands
Mánudaginn 25. iúní var aðal-
fundur Prestafélags íslands haldinn
í Hallgrímskirkju í Reykjavík og
hófst fundurinn kl. 13.30. Formaður
félagsins, sr. Guðmundur Þorsteins-
son, setti fundinn og bauð fundar-
menn velkomna og þá sérstaklega
biskup fslands, herra Pétur Sigur-
gcirsson, er einnig sat fundinn.
Eftir að sr. Karl Sigurbjörnsson
hafði leitt fundarmenn í bæn var
gengið til fundarstarfa og var sr.
Þorbergur Kristjánsson skipaður
fundarstjóri.
Formaður félagsins flutti
skýrslu stjórnar. Hann bauð nýj-
an vfeslubiskup í Skálholtsstifti,
sr. Olaf Skúlason dómprófast,
velkominn til starfa og þakkaði
jafnframt fráfarandi vígslubisk-
upi, sr. Sigurði Pálssyni, störf
hans öll fyrir prestafélagið, kirkju
og kristni. Þá minntist hann Lút-
ersársins 1983 og yfirstandandi
Biblíuárs í tilefni 400 ára afmælis
Guðbrandsbiblíu. Ennfremur gat
hann þess, að á þessu ári kæmi út
50. árgangur kirkjuritsins, er
Prestafélag íslands hefur gefið út
frá upphafi og lét þess getið, að
siðla á þessu ári kæmi út vandað
afmælisrit í tilefni þessara tíma-
móta. í máli formanns kom fram,
að um síðustu áramót lét dr.
Gunnar Kristjánsson af ritstjóra-
störfum við ritið, en við tók Hall-
dór Reynisson guðfræðingur og
forsetaritari. Þá gerði formaður
félagsins kjaramálin sérstaklega
að umtalsefni, ræddi um kjara-
samningana frá síðastliðnum
vetri, gat um nýjar reglur, er tekið
höfðu gildi um greiðslu embætt-
iskostnaðar, er ætlað væri að
koma í veg fyrir að prestar bæru
sjálfir kostnað af rekstri embætta
sinna. Þá minntist hann á nýjar
reglur um námsmat — og náms-
leyfi presta, er staðfestar hafa
verið, ræddi um samskipti presta-
félagsins við prestafélögin á Norð-
urlöndum auk margra annarra at-
riða, er fram komu í máli hans.
Því næst gerði gjaldkeri félags-
ins, sr. Karl Sigurbjörnsson, grein
fyrir reikningum félagsins og voru
þeir samþykktir.
Þá voru fluttar skýrslur starfs-
nefnda.
Sr. Þórir Stephensen rakti störf
námsmats- og námsleyfanefndar,
sr. Þorvaldur Karl Helgason flutti
skýrslu kjaranefndar og sr. Þór-
hallur Höskuldsson gerði grein
fyrir störfum starfskjaranefndar
og útskýrði hinar nýju reglur um
greiðslu embættiskostnaðar.
Að loknum skýrslum stjórnar
og starfsnefnda urðu miklar um-
ræður um þær og tóku margir til
máls. Kom fram í máli manna, að
nauðsyn væri á að efla eftir föng-
um kjör félagsmanna, sem víða
væru hin erfiðustu.
Þá flutti Halldór Reynisson
cand. theol. ritstjóri Kirkjuritsins
skýrslu ritnefndar og mælti fyrir
mismunandi tillögum um framtíð-
arstefnu í útgáfumálum ritsins og
frú Þórhildur Ólafsdóttir, fram-
kvæmdastjóri ritsins, fylgdi
Leiðrétting
í FRÉTT á bls. 18 í Morgunblað-
inu í gær, þar sem rætt er um þing
norrænna stærðfræðinga, sem
haldið er hér á landi dagana
_ 13.—17. ágúst, misritaðist nafn
erlenda fyrirlesarans, Svend
Bundgaards. Hlutaðeigendur eru
beðnir velvirðingar á þessum mis-
tökum.
Námskeið í
hugleiðslu
NÁMSKEIÐ I hugleiðslu hefst
annað kvöld, mánudagskvöld, að
Frakkastíg 12A á vegum Ananda
Marga. I fréttatilkynningu frá
Ananda Marga segir að sérþjálf-
aður hugleiðslukennari, Didi Sus-
ama Acarya, sjái um námskeiðið
og það hefjist kl. 20.30.
reikningum þess úr hlaði og voru
þeir síðan samþykktir.
Urðu miklar umræður um
Kirkjuritið og voru menn þeirrar
skoðunar, að prestafélagið héldi
áfram útgáfu ritsins, en teknar
yrðu upp viðræður við útgáfuna
Skálholt um að hún sæi um rekst-
ur ritsins í umboði prestafélags-
ins.
Úr stjórn félagsins gengu nú sr.
Karl Sigurbjörnsson og sr. Þor-
bergur Kristjánsson, er lokið
höfðu kjörtíma sínum skv. félags-
lögum. Voru þeim þökkuð mikil og
góð störf i þágu fálagsins.
Stjórn Prestafélags íslands
skipa nú eftirtaldir menn: Sr.
Guðmundur Þorsteinsson, Reykja-
vík, formaður, sr. Þórhallur Hösk-
uldsson, Akureyri, varaformaður,
sr. Geir Waage, Reykholti, ritari,
sr. Sigurður Sigurðsson, Selfossi,
gjaldkeri, sr. Valgeir Ástráðsson,
Reykjavík, meðstjórnandi.
Aðalfundinn sátu 65 félagsmenn
víðs vegar af landinu.
(Frétiatilkynning.)
Píanó — Flyglar
Steinway & Sons
Grotrian — Steinweg
Ibach
Pálmar ísólfsson & Pálsson.
Pósthólf 136, Reykjavík,
símar 30392,15601, 20357.
vaxtakjor
Með titvísun til tilkynningar Seðlabanka íslands um vexti og verðtryggingu sparifjár og
lánsfjár o fl. dags. 2 ágúst 1984, hefur Iðnaðarbankinn ákveðið vexti og verðbótabátt af
inn- og útlánum. Vextir alls eru samansettir af grunnvöxtum, sem eru mismunandi eftir
inn- og útlánsformum og verðbótaþætti, sem er í öllum tilvikum 12,0% p.a. Vextirnir eru
breytilegir samkvæmt ákvörðun bankaráðs Iðnaðarbanka íslands hf.
Frá og meö 13. ágúst verða vaxtakjör okkar meö eftirfarandi hætti:
Vextirp.a Nýjirvextir Dæmium
fyrir p a frá árs-
brevtingu 13 ág '84 ávöxtun
1. Sparisjóösbækur' ..............
2 Sparisj reikn. með 3ja mán. uppsögn2
3. Sparisj reikn. með 6 mán. uppsögn2
4. SPARISJ REIKN MEÐ 6 MÁN UPPSOCN
0C 1.5% BÖNUS3:
m
n
Verðtr reikn með 3ja mán uppsögn
Verðtr reikn með 6 mán uppsögn
Verðtr reikn með 6 mán uppsögn
og 1,5%bónus32 .....................
lB-reikningar4 ...... .............. 17
Innlendir gjaldeyrisreikningar
a) i dollurum .....................
b) í sterlingspundum
c) i v - þýskum mörkum
d) i dönskum krónum ...........
ÁVlSANA- 0C HLAUPAREIKNINGAR8 . . .
Sérstakar verðbætur af verðtr reikn5
15,0%
17,0%
19,0%
20,5%
00,0%
2,5%
4,0%
19,0%
26,0%
1. FORVEXTIR VlXLA ..........
2 Yfirdráttarlán á hlaupareikn6
3 Afurðalán, endurseljanleg’ .
4. NÝ SKULDABRÉF9 ...........
5 Eldri skuldabréf1
6 Ný verðtn/ggð lán allt að 21/2 ár
7. Eldri verðtrvggð lán allt ár’
8. Ný verðtryggð lán lengri en 21/2 ár .
9. Eldri verðtryggð lán lengri en 21/2 ár’
10 Vanskilavextir17
18,5%
18.0%
18,0%
21,0%
4,0%
5,0%
2,5%
22,5%
22,0%
18,0%
25,0%
21,0%
9,0%
4,0%
10,0%
5,0%
2,75%
29,1%
1) Samkvæmt ákvörðun Seðlabanka islands
2) Vextirreiknasttvisvaráári
3) Bónus greiðist til viðbótar vöxtum á alla 6 mán reikninga sem ekki er tekið út af
þegar innistæða er laus og reiknast bónusinn tvisvar á ári, i júli og janúar
4) Vextir verða 20% p a á IB-reikningum við 3ja-5 mánaða spamað, en 23,0% p a
ef um lengri sparnað er að ræða
5) Sérstakar verðbætureru 1% á mánuði
6) Crunnvextir eru 10% p.a og reiknast af heimild mánaðarlega fvrirfram en
verðbótaþáttur er 12,0% p.a., reiknast af skuld mánaðarlega eftir á.
7) Gildirfrá 1. september 1984
8) Vextir reiknast af lægstu stöðu á hverjum 10 dögum
9) Ávöxtun 6 mánaða skuldabréfs með tveimur gneiðslum á 3ja mánaða fresti.
Lántökugjald 0,8%.
Mnaðaitankjnn
Fereigin leiöir -fyrir sparendur.