Morgunblaðið - 12.08.1984, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.08.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐID, SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1984 79 Mjög sérstakt fólk sem kemur hingað — segir Kristján Sigfússon, tjaldstæðisvörður í Laugardalnum EIÐFAXImT" frá ffóröungsmótíipuw •i fornustekktim og Kdtdúrmelum ■> - { 'Y *■>?* 4 ' A : V ^ Eiðfaxi NÝLEGA kom út 8. tbl. Eiðfaxa og er blaðið aðallega helgaö fjórð- ungsmótuniim tveimur sem fram fóru í sumar á Fornustekkum í Hornafirði og i Kaldármelum í Hnappadal. M.a. er rætt við Sigurð Haraldsson, yfirdómara í gæðinga- keppninni á Fornustekkum, Jón Bergsson á Ketilsstöðum og Guð- mund Jónsson, formann Hornfirð- ings. Einnig er rætt við Svavar Jens- son á Hrappsstöðum, eiganda Dúkku og Dugs, sem stóðu efst í B-flokki á Kaldármelum, Þorkel Bjarnason hrossaræktarráðunaut, Jón Guðjónsson, forman Storms á Vestfjörðum, og Ragnar Hallsson, bónda i Hallkelsstaðahlíð í Hnappadal. Þá er greint frá úr- slitum á báðum mótunum o.fl. Ritstjóri Eiðfaxa er Hjalti Jón Sveinsson. Ritstjórnarfulltrúi og auglýsingastjóri er Sigurður Sig- mundsson. „FÓLKIÐ sem kemur hingað á tjaldstæðin er alveg sérstakt," sagði Kristján Sigfússon, tjald- stæðisvörður í Laugardalnum, er blaðamaður Mbl. ræddi við hann síðastliðinn föstudag, þegar allt var á floti í Laugardalnum. í Mbl. í gær birtust viðtöl við nokkra er- lenda gesti tjaldstæðanna, en við- mælandi okkar í dag er tjaldstæð- isvöröurinn, Kristján Sigfússon. Hann og Árni Pétursson hafa báð- ir starfað í Laugardalnum undan- farin 10 sumur og er þetta 11. sumarið sem þeir starfa þar. — Hefurðu orðið var við miklar breytingar frá því þú hófst störf hér, Kristján? „Tjöldum hér hefur fjölgað. Ætli aukningin hafi ekki verið um 5—10 % á hverju sumri öll þessi ár. Verðið hér er svipað og á sambærilegum stöðum á hin- um Norðurlöndunum og aðstað- an áþekk og það sem þekkist á öðrum tjaldstæðum hér á landi. Aðstaðan hefur í sjálfu sér ekk- ert batnað, að vísu hefur salern- um verið fjölgað, en ég vona að þegar fram líða stundir verði hægt að koma hér upp þvottavél og þurrkara, og einnig einhvers konar afdrepi fyrir fólkið. Ann- ars er verið að byggja farfugla- heimili hér við hliðina á okkur, þannig að kannski geta tjald- stæðisgestir fengið að nota ein- hverja þjónustu sem þar verður boðið upp á.“ — Hvernig kanntu við starf- ið? „Mjög vel. Fólkið sem kemur hingað er mjög sérstakt. Þetta er duglegt fólk og sjálfsbjarg- arviðleitnin hjá því er mikil. Ég get nefnt sem dæmi um það, að fólk í nágrenninu kom til mín í morgun og sagði mér að nokkrir útlendingar hefðu sofið undir skýlinu hjá Laugardalslauginni í rigningunni í nótt. Þetta var fólk sem er með tjöld hér, en enginn þeirra hefur kvartað við mig. Fólkið bjargar sér sjálft og vill hafa það þannig. Þeir sem kjósa þennan ferðamáta eru fyrst og fremst komnir til landsins til að njóta náttúrunnar og skoða landið." — Koma oft upp vandræði hér, til dæmis vegna áfengis- neyslu? „Ekki lengur. Fyrstu árin kom það stundum fyrir, en þeir sem gerðust sekir um slíkt voru um- svifalaust látnir fara. Það er leiðinlegt að þurfa að segja það, en í öllum þeim tilvikum sem menn hafa verið reknir í burtu, hefur verið um íslendinga að ræða. Við höfum aldrei lent í svona vandræðum með útlend- inga. En sem betur fer eru vand- ræði vegna ölvunar svo að segja óþekkt fyrirbæri núna.“ — Koma margir íslendingar hingað? „Nei, íslendingar áttu hér 185 gistinætur í júlí, en í þeim mán- uði voru alls 6.000 gistinætur hér. Þjóðverjar eru hér í meiri- hiuta og voru í júlí með um 1.800 gistinætur, en næstir á eftir komu Frakkar með um 1.100 gistinætur. Nú eru hér um 90 tjöld, en í síðasta mánuði voru hér á milli 100 og 200 tjöld á hverri nóttu. Það er mismunandi hversu lengi fólkið dvelur hér, en algengast er að menn séu hér tvær nætur.“ — Nú er þetta sumarstarf, hvað gerirðu á veturna? „Ég er kennari í Hlíðaskóla og vinn hér á sumrin til að Iifa vet- urinn af,“ sagði Kristján Sigfús- son að endingu. Morgunbladid/Júlíus. Kristján Sigfússon við tjaldstæðin í Laugardal. Þetta er 11. sumarið sem hann starfar sem tjaldstæðisvörður þarna og kann mjög vel við starfíð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.