Morgunblaðið - 26.08.1984, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 26.08.1984, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1984 65 Árbók landbún- aðarins komin út NÝLEGA kom út hjá Framleiðslu- ráði landbúnaðarins Arbók landbún- aðarins fyrir árið 1983. Að venju eru í bókinni ítarlegar skýrslur um starf- semi Framleiðsluráðs og þróun verð- lags á búvörum á síðasta ári. Meðal efnis er yfirlit um ís- lenska hestastofninn sem Egill Bjarnason og Bjarni Guðmunds- son hafa tekið saman. Þar er gerð grein fyrir þróun í hrossaræktinni og sölu lífhrossa og hrossakjöts á undangengnum árum, og bent á að hverju beri að stefna í hrossa- ræktinni. Gísli Kristjánsson, fyrr- verandi ritstjóri, skrifar grein um útlendinga við sveitastörf hér á landi. Þá er gerð úttekt á fram- leiðslu nautakjöts af Halldóri Eiðssyni líffræðingi. Þá skrifar Gunnar Guðbjartsson, fram- kvæmdastjóri Framleiðsluráðs, grein sem hann nefnir „Er viðhald dreifbýlisbyggðar landbúnaðar- mál?“ Af ýmsu öðru efni er að taka, en Árbókin er 191 bls. að stærð. Ár- bókin fæst hjá Framleiðsluráði landbúnaðarins og kostar 250 krónur. LANDBÚNAOARINS 1983 Alkalískemmdir? Stööviö alkalíefnabreytingar í útveggjum meö Silan-úðun. Vörn gegn vatni gegnir lykilhlutverki í viðleitninni viö að draga úr alkalískemmdum. Silan-úðun hindrar rakainnstreymi í steypta fleti og útþurrkun hefst. Viö Silan-Úðum og not- um Silan-efni í samræmi viö ráöleggingar Rann- sóknarstofnunar byggingariönaöarins. Sumariö er rétti tíminn. Pantið Silan-úöun í síma 33349 alla daga. Ráðherrar funda um samstarf Norður- landa RÁÐHERRAR, sem fjalla um sam- starf Norðurlanda, héldu nýlega fund á Jótlandi. Matthías Á. Mathi- esen ráðherra er fulltrúi íslands og formaður ráðherranefndarinnar, en auk hans sat fundinn af hálfu lands Jón Júlíusson. Á fundi ráðherranna bar hæst það mál, hvernig og hvort sameina ætti skrifstofur ráðherranefndar- innar í Ósló og Menningarmála- skrifstofuna í Kaupmannahöfn. Hugmyndir um samruna skrif- stofanna hafa verið ræddar í nefndum, sem nú hafa skilað áliti og gerð hefur verið úttekt á því, með hvaða hætti mætti standa að samruna fjárlagagerðar skrifstof- anna tveggja. Var samþykkt á fundi ráðherranna, að fengur væri að því að skipuleggja samstarf ríkisstjórna Norðurlanda með því að sameina fjárlagagerð skrifstof- anna og skrifstofurnar sjálfar. Vegna þessa máls var haldinn sameiginlegur fundur mennta- málaráðherranefndar Norður- landa, en formaður hennar er Ragnhildur Helgadóttir ráðherra og ráðherra sem fjalla um sam- starf Norðurlanda. Einnig var haldinn fundur með forsætisnefnd Norðurlandaráðs. Nú er beðið eft- ir endanlegri niðurstöðu ríkis- stjórna hvers einstaks lands, fyrst og fremst afstöðu til sameiningar fjárlaga og skrifstofa. Á fundinum á Jótlandi var samþykkt að setja á laggirnar sérstaka skipulags- nefnd, sem m.a. á að gera tillögur um skipulag nýrrar skrifstofu. Ráðherrar munu á næstu vikum taka mál þetta til umræðu hver í sinni ríkisstjórn. (tlr frétutilkynninfni.) R s-ÍÍ STORLÆKKAÐ VERÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.