Morgunblaðið - 26.08.1984, Page 12
68
MORGUNBLAÐIÐ,. SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1984
Endurmenntun sívaxandi
þáttur í íslenzku menntakerfi
Margrét S. Björnsdóttir, endurmenntunarstjóri,
í viðtali við Sigríði Stefánsdóttur
Hvers konar endurmenntun eða
símenntun er vaxandi þáttur í ís-
lensku menntakerfí. Kennara-
háskóli íslands sér um endur-
menntun grunnskólakennara,
Kræóslumiðstóó iðnaðarins um
endurmenntun iðnaðarmanna,
Stjórnunarfélag íslands um endur-
menntun fólks í skrifstofu- og
stjórnunarstörfum, nokkrir tölvu-
skólar eru starfræktir, Námsflokk-
ar Reykjavíkur bjóða upp á fjöl-
þætta fullorðinsfræðslu og þannig
mætti lengi telja.
Hið nýjasta á þessu sviði er
skipulögð endurmenntun fyrir há-
skólamenn. Tekist hefur samvinna
milli Háskóla íslands, Tækniskóla
íslands, Bandalags háskólamanna,
félaga verkfræðinga og tæknifræð-
inga og Hins íslenska kennarafé-
lags um samstarf að endurmennt-
un háskólamanna. í lok árs 1982
gerðu þessir aðilar með sér sam-
ning þar að lútandi, þar sem m.a.
var ákveðið að innan Háskóla ís-
lands starfaði samstarfsnefnd aðil-
anna að þessum málum með rekt-
or skólans. Einnig var samþykkt
að ráða starfsmann — endur-
menntunarstjóra — er sæi um
framkvæmdastjórn. Margrét S.
Björnsdóttir þjóðfélagsfræðingur
var ráðin í það starf 1. júní 1983 og
námskeiðahald hófst 1. september
það ár. Rætt var við hana um þessa
nýju starfsemi.
Margrét, í hverju er starf þitt
fólgið?
— Starfið er einkum fólgið í
því að leita eftir hugmyndum að
námskeiðum, bæði hjá kennur-
um háskólans og tækniskólans,
aðildarfélögum BHM og hugs-
anlega fleiri aðilum. Síðan að
kanna áhuga fyrir þessum nám-
skeiðum, fá leiðbeinendur og sjá
um alla framkvæmd námskeið-
anna. Hafa reglulega samband
við stjórnir félaga innan BHM
og kennsludeildir háskólans og
tækniskólans um endurmenntun
á þeirra sviði. Einnig að fylgjast
með því sem er að gerast á þessu
sviði erlendis eftir því sem tök
eru á, nýta eitthvað af því hér
eða miðla upplýsingum til þeirra
sem vilja fara á námskeið er-
lendis.
Hvernig var að þessum málum
staðið áður?
— Áður var þessi endur-
menntunarstarfsemi fyrst og
fremst í höndum aðildarfélaga
BHM en þó oft í samvinnu við
háskólann og tækniskólann,
bæði við einstaka kennara þar
og kennsludeildir. Það var mis-
jafnt eftir félögum hversu um-
fangsmikið starfið var. Þannig
hefur lengi verið mikil fræðslu-
starfsemi á vegum Lögmanna-
félagsins og Læknafélags ís-
lands svo dæmi séu tekin og
vafalaust munu þau félög halda
þeirri starfsemi áfram. En erfið-
ara hefur verið fyrir ýmis minni
félög, sem hafa t.d. ekki ráð á því
að vera með starfsmann, að
halda uppi svona starfsemi.
Nokkuð hefur verið um nám-
skeið á vegum einstakra deilda
HÍ svo og stofnana háskólans,
einkum Reiknistofnunar og
Verkfræðistofnunar.
Erlendis virðist endurmennt-
un háskólamanna vera með ýms-
um hætti. Þar er slíkt bæði á
vegum háskólanna sjálfra, sér-
stakra endurmenntunarstofnana
sem gera ekkert annað en halda
slík námskeið eða á vegum ein-
stakra stéttarfélaga háskóla-
manna.
Hver var aðdragandinn að þessu
samstarfl?
— Frumkvæðið áttu félög
verkfræðinga og tæknifræðinga,
sem leituðu til hinna aðilanna
um samstarf á þessu sviði og eft-
ir nokkurn aðdraganda og um-
ræður var í lok árs 1982 gerður
áðurnefndur samstarfssamning-
ur um endurmenntun háskóla-
manna. Vorið 1983 var síðan
auglýst starf endurmenntunar-
stjóra og hóf ég störf í júní það
ár. Fyrstu námskeiðin voru
haldin í september. Síðastliðinn
vetur voru haldin um 20 nám-
skeið fyrir ýmsa hópa háskóla-
manna og sóttu þau tæplega 400
manns. Flest námskeiðanna
voru haldin í Háskóla íslands, en
kennarar voru úr háskólanum,
tækniskólanum, úr atvinnulífinu
og auk þess komu erlendir fyrir-
lesarar sérstaklega hingað til að
halda tvö námskeiðanna.
Hvaða námskeið hafa verið
haldin í sumar og hvernig hefur
þátttakan verið?
— í sumar hafa verið haldin
sjö námskeið fyrir framhalds-
skólakennara og þrjú þeirra með
erlendum leiðbeinendum, frá
Bandaríkjunum og Bretlandi.
Það voru námskeið fyrir sögu-
kennara, ensku- og dönskukenn-
ara. önnur námskeið voru fyrir
íslensku-, sálfræði- og raun-
greinakennara og almennt rit-
vinnslunámskeið. Auk þeirra
námskeiða, sem við sáum um
fyrir framhaldsskólakennara,
voru samtök líffræðikennara og
þýskukennara hvort með sitt
námskeið. Þátttakan hefur verið
góð, frá 14 og upp í 50 þátttak-
endur á námskeiði.
Er mikil þörf fyrir endurmennt-
un?
— Mér sýnis augljóst af
reynslu minni af þessu starfi og
því sem ég sé að er að gerast
erlendis, að símenntun eða
endurmenntun sé vaxandi þáttur
í menntakerfi landanna. Hvað
kennara varðar hafa orðið mikl-
ar breytingar á íslensku skóla-
starfi á síðustu 10—20 árum og
nauðsynlegt að þeim breytingum
fylgi viðbótarmenntun fyrir
starfandi kennara. Þess má geta
að innan Kennaraháskóla ís-
lands fer fram umfangsmikil
endurmenntunarstarfsemi fyrir
grunnskólakennara.
Þetta eru allt kennaranámskeið
í sumar, hvernig stendur á því?
— Mér virðist sem aðrar
starfsstéttir séu ekki tilbúnar til
að eyða sumri eða sumarfríi í
nám og flestir kjósi að nám-
skeiðin séu á þeirra vinnutíma.
En fyrir kennara er erfiðara að
fá frí frá kennslu á veturna og
því fórna þeir sínum frítíma
fyrir frekari menntun.
Finnst þér eðilegt að endur-
menntun væri í meira mæli en nú
hluti af starfl fSlks og færi fram á
vinnutíma þess?
— Að sjálfsögðu væri það eðl-
ilegast þar sem fólk á i flestum
tilfellum að verða betri starfs-
menn en áður og menntunin því
ekki síður hagur vinnuveitand-
ans. Og það má kannski bæta því
við hér að starfsemi af þessu
tagi er mikilvægur þáttur í að
tengja skóla atvinnulífinu, eins
og nú er lögð vaxandi áhersla á,
m.a. af núverandi menntamála-
ráðherra. Ég tel slík tengsl mjög
mikilvæg, ekki síður fyrir skól-
ana sjálfa og kennara þeirra en
atvinnulífið.
Hvernig eru ákvarðanir um
námskeið teknar?
— Eins og áður sagði koma
hugmyndir að námskeiðum frá
ýmsum aðilum. Um þessar hug-
myndir fjallar síðan áðurnefnd
samstarfsnefnd og tekur ákvarð-
anir, en séu námskeiðin á
kennslusviði deilda háskólans þá
skulu þau skipulögð í samvinnu
og eftir samkomulagi við þær.
Gefa þessi námskeið einhverjar
gráður eru tekin einhver próf að
þeim loknum?
— Yfirleitt eru engin próf
tekin og ekki eru veittar há-
skólagráður í venjulegum skiln-
ingi en þátttakendur á nám-
skeiðinu fá skjal, sem vottar
þátttöku þeirra, og í kjarasamn-
ingum sumra háskólamanna eru
ákvæði sem meta slíkt til
námsstiga og hækkunar í launa-
flokkum.
Fyrir hverja eru námskeiðin?
— Þau miðast einkum við
þarfir háskólamenntaðs fólks í
atvinnulífinu. Frá því eru þó
undantekningar eins og þær að
við höfum haldið þrjú námskeið
í samvinnu við Blaðamannafélag
íslands fyrir starfandi blaða-
menn. Námskeiðin eru hins veg-
ar öllum opin sem telja sig geta
haft af þeim eitthvert gagn.
Hvar fær fólk upplýsingar um
námskeið?
— Námskeiðin eru öll kynnt í
blaði BHM , Fréttablaði Hí og
fréttabréfum þeirra aðildarfé-
laga BHM, sem viðkomandi
námskeið eru talin höfða til.
Auk þess er hægt að fá allar
upplýsingar á skrifstofu minni í
Nóatúni 17, sími 23712.
Hvað er í undirbúningi núna;
hvað er framundan í vetur?
— Við erum að ganga frá
námskeiðaáætlun fyrir fyrri
hluta næsta vetrar. Aætluð eru
13 til 15 námskeið fram að jól-
um, fyrir ýmsa hópa, allt frá
íslenskunámskeiði fyrir starfs-
menn fjölmiðla til námskeiðs um
liðavernd í raforkukerfum, sem
er afar sérhæft námskeið fyrir
starfsmenn rafmagnsveitna.
Yið færum okkur um set
og erum komin meö skrifstofuna og lagerinn aö
Borgartúni 24. Þar höfum viö nýjan síma og aö
sjálfsögöu nýtt símanúmer sem er 29544.
Hljómplötuverslunin er og verður auövitaö á sínum góöa og
gamla staö aö Laugavegi 33.
Skrifttofa og lager 29544
Verslun Laugavegi 11508