Morgunblaðið - 26.08.1984, Page 14
70
MORGUNBLAÐIÐ, SITNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1984
GULLFISKAR
SPILAVÍTANNA
— öfgafullir munaðarseggir
Hvers konar menn eru það sem eyða 400 þúsund dollurum
á einni helgi í spilavíti? Þetta er spurning sem skiptir miklu
máli fyrir stjórnendur spilavíta að hafa rétt svar við. Rekstur
spilavítis er ekki eingöngu fólginn í því að fletta spilum og
halda rúllettuhjólinu gangandi: nákvæmlega sama reglan
gildir um spilavíti og önnur fyrirtæki, að laða til sín viðskipta-
vini, sér í lagi góða viðskiptavini. Um 15% af veltu spilavíta
byggist á framlagi svokallaðra „stórspilara“ eða „high roll-
ers“, manna sem leggja ekki minna undir en andvirði Seðla-
bankabyggingar á einu kvöldi. Fimmtán prósent er hátt hlut-
fall, þegar haft er í huga að af hverjum þúsund manna hópi
sem stundar fjárhættuspil að staöaldri er aðeins einn stórspil-
ari, að því er talið er. Engin furða þótt spilavítin geri sitt
ýtrasta til að draga til sín þessa menn.
Slíkar gullfiskaveiðar eru orðn-
ar að sérstakri fræðigrein f spila-
vítum vestanhafs. Hver fiskur
þarf sína sérstöku beitu og rétta
beitan finnst ekki án haldgóðrar
þekkingar á hátterni, þörfum og
löngunum fiskanna. Bitt spilaviti f
Atlantic City er með skrá yfir 12
þúsund stórspilara inni í tölvu hjá
sér, ásamt upplýsingum um þarfir
og smekk viðkomandi, hvaða rak-
spíra hann notar, hvaða vín hann
drekkur, hvaða litir falla honum
best í geð, hvernig hann vill helst
skemmta sér og svo framvegis.
Með öðrum orðum, upplýsingar,
sem hægt er að nota til að stuðla
að því að honum líði sem allra
best.
Beitan
Hver fiskur þarf sína sérstöku
beitu, sögðum við, og vist er að
gullfiskarnir lifa ekki á neinni
hungurlús. „Við skulum gleyma
öllu smáborgaralegu kjaftæði um
hófsemi sem dyggð," segir einn
stjórnandi blómstrandi spilavftis
þar vestra. „Stórspilarar eru mun-
aðarfullir öfgamenn, gráðugir á
lífsins lystisemdir á hvaða sviði
sem er. Þeir eru tígrisdýr í kinda-
hjörð, sannkallaðar kjötætur, sem
blóði væta góm. Það þýðir ekki að
bera á borð fyrir slíka menn
smærri steikur en 20 þumlunga,
svo dæmi sé tekið. Það dugir ekk-
ert minna en taumlaus hedónismi
til að fullnægja þörfum þessara
manna."
Ys og þys
Þægindi, þjónusta og munaður
eru lykilorðin. En vel á minnst,
engan hljóðlátan kóngaelegans i
anda hefðbundinna spilavíta Evr-
ópu: með þægilegum börum við
rúllettuborðin, djúpum hæginda-
stólum á víð og dreif og „kósí
korners" þar sem viðskiptavinir
geta hreiðrað um sig og masað.
Evrópuspilavftin eru stíluð á aðal-
inn, menningaraðsetur eins og
óperuhús. Hinum vinnandi manni
er ekki boðið.
„Við skulum horfast i augu við
staðreyndir," segir umræddur
spilavítisstjóri. „Viðskiptavinir
okkar eru ekki háfleygir heims-
borgarar, sem hafa mestan áhuga
á menningu og listum. Þetta eru
athafnamenn, hörkutól, sem vilja
hreyfingu, ys og þys. Líf en ekki
lognmollu. Þeir vilja heyra kliðinn
frá klingjandi spilakössum, hróp-
um viðskiptavina og skrjáfið f
spilapeningungum. Þeir vilja
finna fyrir flökti neonljósanna,
sjá glitrandi glimmerinn endur-
kastast frá speglum og krómi. Og
hafa risastórar myndir af stjörn-
um úr heimi kvikmynda og íþrótta
á veggjum.“
f spilavíti má ekkert vera sem
minnir á heiminn fyrir utan: engir
gluggar sem gætu gefið vísbend-
ingu um það hvort það er dagur
eða nótt, rigning eða sólskin. öll
önnur áreiti, eins og hungur eða
þorsti, er bæld niður í hinum alls-
ráðandi klið. Ekkert má trufla
einbeitingu spilaranna, draga at-
hygli þeirra frá spilaborðunum.
Urrið, kliðurinn, flöktið og ein-
angrunin tilheyrir „vélbúnaði"
spilavftisins, starfsfólkið er
„hugbúnaðurinn": það sveimar um
salina, kemur af stað spila-
mennsku, rabbar við viðskipta-
vini, og reynir að sjá svo um að
öllum líði sem best — við borðið.
„Mannleg samskipti eru mjög
mikilvæg," segir einn starfsmað-
urinn, „samband okkar við við-
skiptavinina er á fjölskyldulín-
unni, virkilega náið og innilegt."
Frá ás niöur í sexu
Ofannefnt spilavíti greinir stór-
spilara f sex flokka og eru ein-
kenni hvers hóps um sig skil-
greind á 47 blaðsíðna tölvuforriti,
sem er að sjálfsögðu viðskipta-
leyndarmál. Ekki eru allir stór-
spilarar jafn stórtækir, og til-
gangur flokkunarinnar er að
draga skýrar linur hvað varðar
þjónustu og dekur. „Einseyringur-
inn“ eða „ásinn" er toppurinn í
stjörnuliðinu. 1 þessum 12 þúsund
manna hópi eru um 100 ásar, en
þjónusta við þá er í algerum sér-
flokki. Það eru nánast engin
takmörk á tilkostnaðinum við að
halda þeim góðum. Ef fyrsta
flokks stórspilara klæjar í lófana
eftir spilamennsku þarf hann ekki
annað en að slá á þráðinn í spila-
vftið og gefa upp staðsetningu
sína. Hann verður sóttur í leigu-
þotu ef þvf er að skipta, keyrður í
Rolls Royce síðasta spölinn,
smjaðrandi framkvæmdastjórar,
stórstjörnur og þjónustulið taka
honum opnum örmum, og keppast,
hver um annan þveran, við að
blíðka hann og mýkja, en umfram
Aðalsmannaíburður hefur ekkert aðdríttarafl fyrir stórspilara vestanhafs.
Þeir eru meira gefnir fyrir neonljós og plaköt af kvikrayndastjörnum.
Teningunum kastað.
EINSTAKUR VIÐBURÐUR
Friedman á íslandi!
Hinn heimskunni hagfræöingur og nóbelsverölaunahafi
Milton Friedman heldur fyrirlestur í Súlnasal Hótels Sögu
laugardaginn 1. september kl. 12.
Heiti fyrirlestrarins er:
„Eru aukin ríkisumsvif óhjákvæmileg?“
Aðgöngumiðar fást í bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar Austur-
stræti 18.
Miðaverö kr. 1.200.- (hádegisverður innifalinn).
Viðskiptadeild Háskóla íslands.
Stofnun Jóns Þorlákssonar.