Morgunblaðið - 26.08.1984, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1984
87
ÁFÖRNUM
VEGI
£■»
íslensk
börn í Hollandi
FJÖLDI Islendinga hefur
dvalið í sumar í sumarhúsum í
Kempervennen í Hollandi á
vegum Samvinnuferða. Alla
jafna dvelja aðeins Hollend-
ingar í þessum húsum og hefur
hinn mikli fjöldi íslendinga
vakið athygli. Meðfylgjandi
mynd birtist í Eindhoven
Dagblad með frétt um íslend-
ingana og sýnir nokkur íslensk
börn, sem dvöldust í Kemper-
vennen.
íslendingur
stundar nám við
The Hebrew
University of Israel
í NÝLEGU fréttabréfi frá Hebr-
eska háskólamim í Jerúsalem er
sagt frá íslenskum manni, Hró-
bjarti Árnasyni, sem stundaö hefur
nám vid „Rothberg Schooi for
Overseas Students“ í sumar. Þessi
skóli er sérstök deild innan há-
skólans fyrir erlenda stúdenta og
stundar þar nám fólk frá öllum
heimshornum.
Haft er eftir Hróbjarti að
honum hafi þótt ísrael spenn-
andi land. „Það gerist svo margt
hér að erfitt er að fylgjast með
öllu,“ sagði hann. „Þetta er mjög
lifandi staður, þar sem hægt er
að finna margt fólk frá ólíkum
þjóðum."
Ennfremur segir í fréttablað-
inu að Hróbjartur sé guðfræði-
stúdent við Háskóla Islands og
hafi komið til ísrael vegna
ábendingar frá vini hans í
Reykjavík, sem áður stundaði
nám við skólann í eitt ár. Hró-
bjartur stundar nám í fornhebr-
esku og notar frístundir sínar til
að feröast einsamall um landið.
Hann tók einnig þátt í fornleifa-
uppgreftri f Negev.
Arlega stunda um 2.500 manns
nám við „Rothberg School for
Overseas Students". Boðið er
upp á nám f ýmsum greinum og
tungumálum. Á sumrin stunda
um 700 manns nám við skólann
og þá er einnig boðið upp á nám-
skeið í gyðinglegum fræðum,
fornhebresku, fornarabísku, nú-
tfmaarabísku og fleiru.
Hróbjartur Árnason fyrir utan skólann.
Ástrós
Gunnarsdóttir
á leið til
Bandaríkjanna
í dansiiám
ÁSTRÓS Gunnarsdóttir er mörg-
um kunn, þó sérstaklega fyrir það
að vera íslandsmeistari í diskó-
dansi og að taka þátt í heimsmeist-
arakeppni í diskódansi, sem haldin
var í London á síðastliðnu ári. Þar
hreppti hún fjórða sætið.Nú er
Ástrós á leið til Bandaríkjanna þar
sem hún mun stunda dansnám og
ræddi blaðamaður Morgunblaðs-
ins við Ástrósu fyrir nokkrum dög-
um í tilefni þess.
— Hvenær byrjaðir þú að
dansa?
„Ég byrjaði í jassballett fyrir
fjórum árum. Áður var ég f 7 ár
í fimleikum, þar af kenndi ég í
tvö ár“.
— En hvað með diskódans-
inn?
„Ja, ég hef aldrei lært diskó-
dans, en tók þátt í þessari keppni
hér heima og fór síðan út til
London. Það var mjög skemmti-
legt að taka þátt í þessu. Hópur-
inn var mjög samheldinn og
skemmtilegur. Við vorum þarna
í viku og nær allur tíminn fór í
að skipuleggja og æfa fyrir
keppnina. Sumir voru með fast-
mótað prógram. En ég gerði
bara það sem mér datt f hug á
dansgólfinu. Við fengum nefni-
lega ekki nema 25 sekúndur til
umráða á gólfinu. Þetta vissi ég
ekki fyrr en ég kom út og mér
fannst þetta allt of stuttur tími
til að vera með fastmótað prógr-
am.“
— Hefurðu mikið sýnt diskó-
dans?
„Já ég hef sýnt hér í Reykja-
vík, aðallega í Hollywood, Safari
og Sigtúni. En einnig svolítið úti
á landi. Annars er ég í raun og
veru ekki mikið fyrir diskódans
og ætla ekki að leggja hann fyrir
mig.“
— En fékkst þú ekki tilboð
um að dansa einhvers staðar er-
lendis?
„Það var plötusnúður á diskót-
eki á Madeira sem vildi að ég
kæmi út og sýndi þar í hálfan
mánuð nú í ágúst. Én þetta var
mjög óhentugur tími fyrir mig,
þar sem ég er nú önnum kafin
við að undirbúa Bandaríkjaferð-
ina. Einnig datt honum f hug að
ég kæmi þá næsta vor, en það vil
ég ekki. Þá ætla ég að vera hætt
að dansa diskódans. Mér finnst
komið nóg af þessu.“
— Hvernig skóli er þetta, sem
þú ert að fara á í Bandaríkjun-
um?
„Þessi skóli heitir Alvin Ailey
American Dance Center og er í
New York. Þarna er kenndur
jassballett, nútímaballett og
klassískur ballett. Nemendurnir
verða að læra þetta allt, og jafn-
framt listasögu og dansmúskik.
Þá er valið eitt aðalfag. Mitt að-
alfag verður jassballett. Hægt er
að velja um þriggja, sex og tólf
mánaða námskeið. Ég ætla að
byrja á því að fara á þriggja
mánaða námskeið, en vonast til
að geta haldið áfram í að
minnsta kosti eitt ár. Draumur-
Ástrós Gunnarsdóttir
inn er sá að komast sfðan f fram-
haldsnám eftir það við sama
skólann."
— Hvernig fréttir þú af þess-
um skóla?
„Fyrir nokkrum árum var hér
maður, sem hafði verið á þessum
skóla. Hann setti upp sýningu
með dönsurum á Broadway, sem
ég tók þátt í. Hann hvatti mig til
þess að sækja um. Þessi hug-
mynd kom fyrst upp fyrir tveim-
ur árum. En það er frekar stutt
síðan ég sótti um. Ég reyndi að
fá námslán, en það gekk ekki.
Það er einkaaðili sem styður mig
til fararinnar. Skólinn krefst
þess að maður hafi stuðnings-
mann.“
— Hvenær ferðu út?
„Vonandi kemst ég út 6. sept-
ember. Ég fer með tveimur vin-
konum mínum. Önnur fer i leik-
listarskóla, en hin fer að vinna
sem fyrirsæta. Við munum allar
búa saman úti. Þetta leggst allt
mjög vel í mig.“
— Hvað tekur við eftir nám-
ið?
„Mig langar til að reyna fyrir
mér sem dansari erlendis. Þetta
er þekktur skóli og gefur það
ýmsa niöguleika. En þetta getur
orðið erfitt, því samkeppnin
þarna úti er mjög hörð og maður
verður virkilega að berjast fyrir
að komast áfram. En ég er til-
búin f slaginn. Hér heima eru
svo litlir möguleikar fyrir dans-
ara. Yfirleitt er dans sýndur hér
sem uppfyllingarefni. En það
þyrfti að setja upp sýningar þar
sem dansinn er aðalatriðið.
Staðreyndin er sú að það er
varla markaður fyrir slíkt. Hér
vinnur enginn fyrir sér með því
að dansa."
— Er sá möguleiki fyrir hendi
að þú setjist að erlendis?
„Eins og er kemur sá mögu-
leiki til greina. En ég veit ekki
hvernig þetta verður þarna úti
og það verður allt að koma í
ljós.“