Morgunblaðið - 23.10.1984, Side 1
32 SIÐUR
jreguttftfaMfr
STOFNAÐ 1913
204. tbl. 71. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Tutu á faraldsfæti
AP/Símamynd.
Tutu, biskup þeldökkra Suður- Afríkumanna, kom til New York í gær ásamt dóttur sinni
(t.v.) frá S-Afríku. Tutu hefur verið útnefndur handhafi friðarverðlauna Nóbels. Tekur hann
við verðlaununum við athöfn í næsta mánuði. Útnefning hans þykir söguleg og málstað
þeldökkra Suður-Afríkubúa til framdráttar.
Brezka kolanámadeilan:
Reynt að afstýra
lokun allra náma
Loadon, 22. oklðber. AP.
STJÓRN brezku ríkiskolanámanna
(NCB) og leiðtogar samtaka námu-
verkstjóra féllust f dag á að hefja
samningaviðræður að nýju á morgun,
þriðjudag, til að afstýra lokun allra
kolanáma landsins í vikunni.
Námaverkstjórar hafa boðað til
verkfalls á fimmtudag og segja
leiðtogar þeirra það undir því
komið hvort NCB slaki á afstöðu
sinni hvort verkfall kemur til
framkvæmda. Verði af verkfalli
þeirra lokast sjálfkrafa þær 40
námur, sem starfræktar hafa verið
þrátt fyrir verkfall námamanna,
sem orðið er átta mánaða langt.
í heilsíðuauglýsingu í brezkum
blöðum í dag sagði stjórn nám-
anna að hún gæti ekki gefið meira
eftir og komið frekar til móts við
kröfur brezkra kolanámumanna.
Upp úr slitnaði í viðræðum NCB og
samtaka kolanámamanna 15.
október sl.
Verkföll hófust í kolanámunum
12. marz er NCB tilkynnti lokun 20
óarðbærra kolanáma þar sem 20
Jafntefli í seinna sjónyarpseinyíginu:
Forskot Reagan of
mikið fyrir Mondale?
Kansas Cily, 22. október. AP.
ÁHORFENDUR að einvígi Ronald
Reagan forseta og Walter Mondale
frambjóðanda demókrataflokksins í
nótt skiptust í tvo jafnstóra hópa í
afstöðunni til þess hvor þeirra hefði
staðið sig betur, samkvæmt skoð-
anakönnunum Newsweek og ABC.
Fjórðungur aðspurðra gerði ekki upp
á milli þeirra. Mondale þótti hafa
staðið sig mun betur en Reagan í
fyrra einvígi þeirra 7. október sl., er
fjallað var um innanríkismál, en nú
voru utanríkismál til umræðu. Af
hálfu beggja frambjóðenda var sigri
hins vegar hrósað nú og fylgismenn
Reagan segja hann öruggan með sig-
ur 6. nóvember nk. Sjö manna
kappræðudómstóll AP-fréttastofunn-
ar úrskurðaði Mondale sigurvegara
með 187 stigum gegn 168 í einvíginu
í nótt
Tvær vikur eru til kosninga og
samkvæmt skoðanakönnunum síð-
ustu daga nýtur Reagan 9—25
prósentustiga meira fylgis en
Mondale. Mondale hefur sótt í sig
veðrið frá fyrra einvígi þeirra, en
fréttaskýrendur hallast að þvi að
forskot Reagan sé of mikið til að
Mondale geti gert sér vonir úr
þessu, einkum eftir jafntefli í
seinna einvíginu.
Kínverskir embættismenn, sem
fylgdust með einvíginu um gervi-
hnött, sögðu Reagan ekki hafa
haft staðreyndir á hreinu og að
Mondale hafi virst betur að sér.
TASS-fréttastofan sagði Reagan
hafa að engu haft kunnar stað-
reyndir og undirstöðuatriði er
Ronald Reagan
hann skýrði stefnu sína í varn-
armálum i einvíginu, og að hann
stæði enn í sömu sporum í afstöð-
unni til afvopnunarmála. Sagði
TASS einkum frá gagnrýni Mon-
dale á Reagan en vék ekki orðum
að gagnrýni Reagan á keppinaut
sinn. Bandarískir leiðtogar höfðu
á orði hvað Reagan hefði staðið
sig mun betur en í fyrra einvíginu.
t umræðunum drógu báðir
frambjóðendur í efa hæfni hins og
dómgreind til þess að fást við
utanríkismál. Fjallað var m.a. um
Mið-Ameríku, friðartilraunir í
Miðausturlöndum, einkum atburði
í Líbanon, afvopnunarmál og
fækkun kjarnavopna og vígbúnað í
geimnum. Mondale deildi hart á
forystuhæfileika Reagan og sagði
stefnu hans í Líbanon, Mið-
Ameríku, afvopnunarmálum og
sakborninginn dreginn til ábyrgð-
ar ef rannsókn leiddi í ljós hver
hann væri. Mondale kvað tilvist
bæklingsins eitt margra dæma um
það hve litla yfirsýn forsetinn
hefði um það sem færi fram á
stjórnarheimilinu.
Reagan nefndi Kyrrahafssvæðið
sérstaklega sem „lykilsvæði"
bandarískra hagsmuna í framtíð-
inni og lét í ljós stuðning við
Marcos Filippseyjaforseta. Lýð-
réttindi væru þar ekki í nógu góðu
horfi en „fjölmenn hreyfing
kommúnista“ sæktist eftir völdum
á Filippseyjum, og það væri verri
valkostur.
þúsund námamenn starfa. Náma-
verkstjórar boðuðu verkfall er
NCB svipti þá verkstjóra launum
er urðu við tilmælum verkfalls-
varða við starfandi námur um að
mæta ekki til vinnu.
Peter Walker orkuráðherra sak-
aði samtök námamanna um „stór-
felldar blekkingar" við hávaða-
samar þingumræður með því að
segja stjórn kolanámanna ábyrga
fyrir því að viðræður í koladeil-
unni liggja niðri.
Gemayel
óvænt
til Líbýu
Beirút, 22. október. AP.
AMIN Gemayel Líbanonforseti hélt
til Líbýn í dag í boði Moammar
Khadafy. Ferð forsetans kemur
mjög á óvart og var á henni lítill
fyrirvari. Ekki var frá því skýrt hver
tilgangur ferðarinnar væri en talið
er að hún sé fyrsta skrefíð í þeirri
viðleitni Líbana að fá Arabaríkin til
að hefja að nýju greiðslur á sérstöku
árlegu 400 milljóna dollara framlagi
til Líbanon, sem heitið var frá og
með 1979.
Gemayel og föruneyti hans ferð-
uðust í þyrlu frá forsetahöllinni til
Kýpur þar sem stigið var um borð í
flugvél forsetans, sem flogið var
fyrr um daginn frá alþjóðaflug-
vellinum í Beirút. Kaus forsetinn
þennan ferðamáta vegna bardaga í
flóttamannabúðum Palestinu-
manna við flugvöllinn í dag og gær.
Átta manns a.m.k. féllu f átökun-
um og 14 særðust. Áttust við Pal-
estínumenn og shítar.
Gemayel stýrði í morgun neyð-
arfundi ríkisstjórnarinnar um leið-
ir til að stöðva verðfall á gjaldmiðli
landsins og hugsanlegar viðræður
við Israela um Öryggisgæzlu í
Suður-Líbanon.
Ferð Gemayel til Líbýu er önnur
ferð hans þangað frá þvf hann tók
við starfi forseta 1982. Leiðtogar
fylkinga, sem barist hafa gegn for-
setanum, undir forystu Jumblatt
drúsaleiðtoga, sóttu Khadafy heim
í fyrri viku.
Walter Mondale
fleiri málum hafa lítillækkað
Bandaríkin og einungis styrkt
stöðu óvinarins. Mondale kvað for-
setann ekki þann foringja og
stjórnanda, sem til væri ætlast, og
hann fylgdist illa eða ekki með
viðkvæmum málum, sem stjórn
hans fjallaði um. Hann væri eini
forsetinn í seinni tíð, sem ekki
hefði náð vopnasamkomulagi við
Sovétmenn og hann hefði engum
árangri náð í afvopnunarmálum.
Reagan varði stefnu sína og
sagði Mondale hafa veikan mál-
stað að verja er öryggis- og varn-
armál væru annars vegar. Reagan
fordæmdi bækling, sem sagður er
hafa verið gefinn út á vegum
bandarísku leyniþjónustunnar,
CIA, er inniheldur teiðbeiningar
til andstæðinga sandinistastjórn-
arinnar í Nicaragua, m.a. um af-
tökur og mannrán. Sagði Reagan
Óbreytt olíuverð og
framleiðsluminnkun
Genf, 22. október. AP.
Olíuráðherra Saudi-Arabíu,
Sheik Ahmed Zaki, sagði í kvöld að
olíuverð yrði óbreytt enn um sinn,
og hefur náðst sarakomulag um að
OPEC-riki dragi úr framleiðslu til
að komast hjá verðlækkun vegna
aukinnar framleiðslu ríkja utan
bandalagsins og minnkandi eftir-
spurnar.
OPEC-ríkin hafa verið undir
þrýstingi um að lækka olíuverð í
kjölfar verðlækkunar Norð-
manna, Breta og Nigeríumanna.
Verð OPEC er 29 dollarar á fatið,
en Nígeríumenn lækkuðu það
niður í 28 dollara hjá sér, er Bret-
ar lækkuðu sitt verð í 28,65 doll-
ara og Norðmenn í 30 dollara fat-
ið.
Talið er að Saudi-Arabía og
Kuwait verði að draga úr fram-
leiðslu sinni um 20% til að vega
upp á móti verðlækkun Breta og
Norðmanna. Búist er við að fund-
ur OPEC í næstu viku geti orðið
afdrifarikur og að þá komi i ljós
hvort nægileg samstaða sé f sam-
tökunum til að þau fái haldið
áhrifum sínum.