Morgunblaðið - 23.10.1984, Síða 18

Morgunblaðið - 23.10.1984, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1984 Vestur-Þýskaland: Barzel ætlar að sitja áfram — segir ásakanir á hendur sér mannorðsmorð Bobb, 22. oktiber. AP. Í DAG sat forysta Kristilega demó- krataflokksins á rökstólum um ásakanir sem bornar hafa verið á forseta þingsins, Rainer Barzel, og voru skoðanir skiptar um það, hvort honum bæri að víkja úr embætti, að sögn embættismanna flokksins. Barzel, sem berst fyrir að halda embætti sínu sem forseti neðri Ítalíæ Tékki í felum Geoúa, 22. oktúber. AP. MEÐUMUR tékknesks sundknatt- leiksliðs hefur verið tilkynntur týnd- ur frá því á laugardag í Genúa á Ítalíu. Telur ítalska lögreglan, að maðurinn kunni að hafa flúið í felur í því skyni að biðjast hælis í landinu sem pólitískur flóttamaður. Tékkneska liðið hélt heimleiðis með langferðabíl i morgun, eftir að fararstjórar liðsins höfðu til- kynnt hvarf Baciks til ítalskra yfirvalda. deildar þingsins, neitar að hafa þegið greiðslur frá Flick-fyrir- tækinu og kveður þá, sem sakað hafa hann um slikt, hafa gerst seka um mannorðsmorð. Heiner Geissler, ritari flokks- ins, sagði fréttamönnum eftir stjórnarfundinn, að engin ákvörð- un hefði verið tekin í málinu. Hann varaði við fyrirfram dómum og kvað hið sanna koma í ljós á miðvikudag, þegar Barzel svaraði spurningum rannsóknarnefndar þingsins. Engin ákæra hefur verið lögð fram á hendur Barzel, en fjölmiðl- ar í Vestur-Þýskalandi segja það koma fram í skjölum ákæruvalds- ins, að Flick-fyrirtækið hafi greitt Barzel 566 þúsund dollara og notið til þess milligöngu lögfræði- fyrirtækis í Frankfurt, sem Barzel hóf störf hjá, þegar hann vék úr starfi flokksformanns CDU og þingflokksformanns árið 1973. I morgun kvaðst Barzel ekki hafa í hyggju að segja af sér störf- um. Orofa samstaða í Frakklandi: Dómurinn yfir Abouchar í Afganistan fordæmdur Pbtíb, 22. oktúbcr. AP. ÓROFA samstaóa er um þaö í krakklandi aö fordæma handtöku og fangelsisdóm yfir franska sjón- varpsfréttamanninum Jacques Ab- ouchar í Afganistan. Hafa allir stjórnmálaflokkar landsins, þ.á m. kommúnistar, lýst andúö sinni á meöferöinni á Abouchar. Margir kunnir menntamenn hafa kvatt sér hljóös honum til stuónings, s-s. leik- arinn Yves Montand og heimspek- ingurinn Andre Glucksmann. Abouchar, sem er 53 ára að aldri og starfar fyrir Antenne 2, eina af þremur ríkisreknum sjón- varpsstöðvum I Frakklandi, var handtekinn 17. september sl. um 25 km frá landamærum Pakistan. Hann var í föruneyti frelsissveita Afgana er sovéskir og afganskir hermenn komu að þeim og tóku þá fasta. Kvikmyndatökumenn, sem voru með Abouchar, komust hins vegar undan á flótta. Frá því var greint í Kabúl á laugardag, að Abouchar hefði ver- ið dæmdur í 18 ára fangelsi fyrir samstarf við „and-byltingarsveit- ir“, fyrir að afla upplýsinga er stefndu öryggi Afganistan í voða og fyrir að hafa komið inn í landið með ólögmætum hætti. Blaðamenn í Frakklandi hafa gert harða hríð aö sovéskum Fran.sk i sjónvarpsfréttamaöurinn Jacques Abouchar. Símamynd AP. stjórnvöldum fyrir dóminn yfir Abouchar og segja að þau séu að reyna að fá fréttastofur á Vestur- löndum til að hætta að flytja fregnir af stríðinu í Afganistan. Fréttamönnum hefur ekki verið leyft að koma til landsins frá inn- rás Sovétmanna árið 1979 og hefur eina leið þeirra til að afla upplýs- inga frá fyrstu hendi verið að smygla sér yfir landamærin frá Pakistan í föruneyti frelsissveit- anna. Ódæðisyerkið í Brighton: Tefur ágreiningur lög- regluhópa rannsóknina? Loadon 22. október. AP. BKESKA blaðið The Sunday Times staðhæföi I gær, að ósamkomulag milli þeirrar deildar bresku rann- 'sóknarlögreglunnar, Scotland Yard, sem fæst við hryöjuverk og héraös- lögreglunnar í Brighton tefói fyrir rannsókn á ódæöisverkinu 12. október, þegar nærri var búið að ráða bresku ríkisstjórnina af dögum. Scotland Yard og lögreglan I Brighton hafa neitað að kannast ' við að frétt hlaðsin^ hafi við rök aið styöjast. The Sunday Times segir að ákvörðun lögreglunnar í Brighton að lýsa eftir skeggjuðum manni, grunuðum um að hafa komið fyrir sprengjunni á Grand Hotel í Brighton, sem olli dauða fjögurra manna og særði 32, hafi mælst illa fyrir hjá Scotland Yard. Hafi rannsóknarlögreglan viljað, að upplýsingum um manninn yrði haldið leyndum á meðan frekari rannsókn færi fram og telji hún að eftirlýsingin hafi spillt rann- sókninni. AP/Símamyna. Áhöfn spænska togarans Sonja, sem björgunarþyrlur brezka flughersins björguðu af sökkvandi skipi undan Eng- landsströndum um helgina. Togarinn hafði orðið fyrir skotárás tveggja írskra strandgæzluskipa á fostudagskvöld. Togarinn var sagður að ólöglegum veiðum í írskri landhelgi, en komst undan eftir fimm stunda eltingaleik. Þeir skutu án viðvörunar — segir skipstjóri spænska bátsins sem írar sökktu Madrkl, 22. október. AP. SKIPSTJÓRINN á spænska fiski bátnum, sem írskt herskip skaut á og sökkti við suðausturströnd ír- lands í fyrri viku, sagði í dag, að hann hefði enga viðvörun fengið um, að hann væri að ólögmætum veiðum innan írskrar lögsögu. „Við lögðum strax á flótta þar sem þeir hófu skothríð umyrða- laust er þeir komu auga á okkur,“ sagði hann. Skipstjórinn, Victor Nikmíu, 22. október. AP. BARDAGAR írana og fraka héldu áfram í dag í lofti og á láði. Hinar opinberu fréttastofur f löndum stríósaðila segja að mikið mannfall hafi orðið í liði andstæðingsins og að miklar skemmdir hafi verið unnar á hergögnum, hertækjum og hernaðar- mannvirkjum. Þrír dagar eru síðan Íranir hófu Echevarria, kom til Madrid í dag ásamt tveimur öðrum af 16 manna áhöfn bátins. Hinir koma til Spán- ar á morgun. Engan þeirra sakaði. írska varnarmálaráðuneytið segir að spænski fiskibáturinn hafi virt að vettugi aðvörunarskot og alþjóðleg kallmerki um að stöðva ferð sína. Nær 600 skotum var hleypt af með þeim afleiðing- um að báturinn sökk, sem fyrr segir. nýja sókn og segjast þeir hafa fellt 3.600 íraska hermenn á þessum tíma. írakar segja á móti, að frá því á fimmtudag hafi þeir fellt 2.099 íranska hermenn. Vestrænir fréttamenn geta ekki gengið úr skugga um hvað hæft er í þessum fregnum þar sem bardagasvæðið er þeim algerlega lokað. Veður víða um heim Amttsfdam 14 rignlng Aþena 34 bjtrt Bwtin 13 tkýjaó Chicago 13 tký|aó Donpaur 30 bjart Dubtin 17 bjart Frankfwt 13%ignlng Qanf 14 bjart Unlainki miiuiKi • tkýjaö Hong Kong 28 akýjaó Jerútalam 23 bjarl Jóhannettrborg 16 bjart Kavó 2» bjart Kaupmannahðfn 11 tkýjaó Uaaabon 20 heióakírt London 17 afcýjaó Loa Angalat 23 heiótkfrt Uartiid 20 heMekirt Miamj 28 heiðekfrt Moakva 14 heiðakfrt NýiaDaiM 34 heiótkfrt rvew totk 20 rignlng OM 12 tkýjaó Parit 15 haióakírt Peking 20 bjart Perth 21 tkýjaö Riode Janeiro 27 heióaklrt Rðmaborg 20 hetóakfrt San Francitco 19 hetóakírt Stokkhðbnur 11 rigning Sydney 20 tkýjað Tel Aviv 29 hefótkfrt Tókýó 20 helótkfrt Toronto 19 rigning Vhmrborg 18 heMekfrt Vartjá 14 heiðekírt Rússar smíða nýja kröftuga geimflaug LBBdÚBUBi. 22. október. AP. Persaflóasiyrjöldin: Mikið mannfall í nýrri sókn írana HÓPUR áhugamanna í Bretlandi um geimvísindi hefur tilkynnt að Sovétmenn hafí smíðað gríðarstóra eldflaug til þess að flytja vistir og tæki til geimrannsóknarstöðvar sem þeir ætli að smíða. Segja talsmenn hópsins að eldflaugin sé mun kröft- ugri en „Naturn 5“ hin bandaríska. Hópurinn sem um ræðir er hinn virti „Kettering-hópur“ og tals- maður hans, Grant Thompson, rit- aði nýverið ýtarlega grein um eldflaugina í tímaritið „Nature Magazine“. Thompson segir í grein sinni, að vitneskjan sé byggð á myndum sem áhöfn bandarísku geimskutlunnar Columbia tók I desember síðastliðnum. Á mynd- unum hafa Kettering-menn séð þrjár geysistórar byggingar og „skugga sem sé trúlega eldflaugin sjálf“, eins og Thompson kemst að orði. Myndirnar eru teknar af geimrannsóknamiðstöð Sovét- manna við Baikonur, austur af Aralvatni. Giskaði Thompson á að nýja eldflaugin væri um 90 metrar á hæð. Hann sagði einnig að þriggja kílómetra löng flugbraut hefði verið gerð fyrir geimskutlur á þessum slóðum. ERLENT Grænfriðungar hindra brottför flutningaskips Le Havre, Frakklandi, 22. október. AP. ÁTTA Grænfriðungar í gervi mör- gæsa hlekkjuðu sig í dag við búnað á þilfari norsks fíutningaskips, sem liggur hér í höfn. Er þetta gert til að koma í veg fyrir, að skipið sigli til Suðurskautslandsins með tæki sem nota á við gerð umdeildrar fíug- brautar í nágrenni franskrar vís- indastöðvar þar syðra. Umhverfisverndarsamtök Grænfriðunga halda fram, að flugbraut þessi muni valda al- varlegri röskun í lífríki staðarins og ógna mörgæsabyggðinm á Adelie-ströndinni, sem er undir stjórn Frakka. Norska flutningaskipið, „Polar Björn", átti að láta úr höfn á morgun, þriðjudag. Sökuðu Grænfriðungar frönsk yfirvöld um að hafa ætlað að hefjast handa við þessa umdeildu fram- kvæmd, áður en fengnar væru niðurstöður úr rannsóknum á af- leiðingum hennar fyrir umhverf- ið. Ekkert hefur komið fram um þetta mál af hálfu franskra yfir- valda.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.