Morgunblaðið - 23.10.1984, Síða 23

Morgunblaðið - 23.10.1984, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1984 23 Francois Truffaut: Kyndilberi nýju bylgjunnar látinn Paris, 22. október. AP. FRANCOIS Truffaut, kyndilberi nýju bylgjunnar f franskri kvik- myndalist, lést í gær, sunnudag, á Bandaríska sjúkrahúsinu í París, 52 ára að aldri. Heilsu hans hafði hrak- að mjög á síðustu mánuðum og eftir að hann var fluttur á sjúkrahúsið fyrir tíu dögum var hann að mestu meðvitundarlaus. Var banameinið kxIí í heila. Truffaut var í fararbroddi fyrir nýju bylgjunni svokallaðri í franskri kvikmyndalist og gerði uppreisn gegn „verksmiðjufram- leiðslunni" á sjötta áratugnum. Hann lagði megináhersluna á daglegt líf, ástir og örlög venju- legs fólks, og varð frægur með sinni fyrstu mynd, „Les quatre cents coups“, „400 högg“, árið 1959. Sína síðustu mynd, „Vivement Dimanche", gerði hann í fyrra. Gagnrýnendur töldu Truffaut fremstan í flokki þeirra manna, sem gera hvort tveggja að skrifa kvikmyndahandritið og leikstýra myndinni, og myndir hans þóttu mjög persónulegar eða eins og hann sagði sjálfur, eins og „sendi- bréf milli elskenda, ástríðuþrung- ið en ekki of berort". Af kunnum kvikmyndum hans má nefna „Síð- ustu lestina", „Jules og Jim“, harmsögu tveggja vina, sem unna sömu konunni, og „Söguna um Adele H“, en hún var um sinnis- veika og ástsjúka dóttur Victors Hugo. Truffaut lagði sjaldan leið sína í stóru kvikmyndaverin heldur gerði hann myndir sínar úti í hversdagslífinu og leikhljóðin voru ysinn og þysinn á strætunum eða niður lækjarins úti í sveit. I augum Truffauts voru tilgerðarl- aus og hversdagsleg samtöl leynd- ardómurinn við góða mynd. „Sá sálræni sannleikur, sem felst i Francois Truffaut tveggja manna tali, kemur áhorf- andanum til finnast sem hann standi á hleri,“ sagði Truffaut eitt sinn í viðtali. Francois Truffaut fæddist í París 6. febrúar árið 1932 og var faðir hans arkitekt að mennt. Hann var 11 ára gamall þegar hann uppgötvaði aðdráttarafl kvikmyndanna og eftir það áttu þær hug hans allan. Bandarískir repúblikanar: Minni líkur á stórsign Washington, 22. oklðber. AP. SÉRFR/EÐINGAR bandaríska Demókrataflokksins halda því fram, að heldur hafi hallað undan fæti fyrir Reagan, forseta, að undanfórnu og að ekki séu lengur horfur á að repúblikanar muni stórauka þing- mannatölu sína í fulltrúadeildinni, sem demókratar ráða nú. Sérfræð- ingar repúblikana telja hins vegar forsetann jafn vinsælan og fyrr en viðurkenna þó, að um verulegar breytingar verði ekki að ræða. Frambjóðendur repúblikana til fulltrúadeildarinnar hafa bundið miklar vonir við vinsældir forset- ans en frammistaða hans í fyrra sjónvarpseinvíginu við Walter Mondale 7. október sl. hefur slævt þær nokkuð. Þrátt fyrir það telja repúblikanar ekki með öllu útilok- að að ná tökum á deildinni en þar eru demókratar nú miklu fleiri, 266 á móti 167 repúblikönum. Demókratar hafa ráðið fulltrúa- deildinni í 30 ár samfleytt og hef- ur það bundið mjög hendur for- seta úr flokki repúblikana. Málum er hins vegar þannig háttað nú, að tekist hefur samstarf með repú- blikönum i deildinni og 50 full- trúum demókrata og þess vegna þarf Repúblikanaflokkurinn i raun ekki að bæta við sig nema 25 þingsætum til að geta stjórnað henni. Kasparov missti af vinningi SEXTÁNDU einvígisskák Sovét- mannanna Karpovs og Kasparovs um heimsmeistaratitilinn í skák lauk í gær í Moskvu með jafntefli eftir 37 leiki. Staðan í einvíginu er því enn þannig að Anatoly Karpov, beimsmeistari, hefur hlotið fjóra vinninga en áskorandinn, Garry Kasparov hefur engan vinning hlot- ið. Tólf skákum hefur lokið með jafntefli, en þau eru ekki talin með, heldur sigrar sá sem fyrr vinnur sex skákir og eru engin takmörk sett fyrir því hve margar skákirnar geta orðið. Byrjunin í skákinni í gær var drottningarindversk vörn. Að sögn sérfræðinga leit lengi vel út fyrir að Kasparov, sem hafði hvítt, hlyti sinn fyrsta vinning, en á mikilvægu augnabliki brást hon- um bogalistin og heimsmeistaran- um tókst að halda sínu. Plaslmo^ lakrennur og fylgihlutir 10 ára ábyrgð. LIFTBOY fjarstýrðir bílskúrs- hurðaropnarar Nú þarftu ekki lengur út í kuldann eða rigninguna til að opna bílskúrinn, LIFTBOY gerir það fyrir þig. ★ Auðveld uppsetning ★ Einföld bygging ★ Lág bilanatíðni ★ Sérstaklega gerður fyrir íslenskar heilar flekahurðir ★ Hita og þunga- álagsvörn Sparaðu þér sporin með LIFTBOY. FUNAHÖFÐA 1 - REYKJAVÍK S. 91-685260 ~^\uglýsinga- síminn er 2 24 80 Vetraiskoðun Stendur frú 15. október og út desember 1. Vélarþvottur 2. Hreínsun og feíti á geYmissambönd 3. Mælíng á rafgeymi 4. Mæling á rafhleðslu 5. Hreínsun á blöndungi 6. ísvari settur í bensín 7. Skipt um kerti 8. Skipt um platínur 9. Stilling á viftureim 10. Rúðusprautur stilltar 11. Mælíng á frostlegi 12. Vélarstíllíng 13. Ljósastilling Verð: 4 cyl. kr. 2.054 - 6 cyl. kr. 2.640 ATH! Skipt um olíu og olíusíu ef óskað er (Olía og olíusía ekki innifalin) SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.