Morgunblaðið - 23.10.1984, Síða 32

Morgunblaðið - 23.10.1984, Síða 32
ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. Viðræður VSÍ, VMSÍ og iðnverkafólks: Skattalækkunarleið til samninga úr sögunni? UPP úr miðnætti í nótt benti allt til, að viðræöur Vinnuveitendasambands íslands, Verkamannasambandsins og Landssambands iðnverkafólks um kjarasamninga, er byggðust i verulegum skattalækkunum, yrðu árangurs- lausar. Þess í stað munu fulltrúar launþegafélaganna, samkvæmt beimildum iVlbl., ætla að leggja áherzlu á að ná fram prósentuhækkunum launa í samræmi við þá samninga sem gerðir hafa verið við nokkur bæjarfélög og bókagerðarmenn. Er Mbl. ræddi við þá Guðmund J. Guðmundsson formann Verka- mannasambandsins og Karl Stein- ar Guðnason varaformann laust eftir miðnætti reiknuðu þeir með að fundurinn gæti staðið eitthvað fram eftir nóttu. Aðspurðir sögðu þeir félagar, að nýjustu fréttir af samningum á launamarkaðinum hefðu sett strik í reikninginn hvað varðar þær umræður sem í gangi hefðu verið hjá þeim. Guðmundur J. Guðmundsson sagði m.a.: „Samningar bæði bæjarfélaga og eins aðildarfélags VSÍ hafa gert okkur það ákaflega erfitt að semja á þessu stigi um lægra kaup en aðrir eru búnir að semja um.“ Karl Steinar sagði: „Það hefur verið boðið upp í dans. Það er ósanngjarnt að okkar mati að ætl- ast til þess að við klípum af laun- um okkar fólks á sama tíma og aðrir fengju sömu skattalækkanir og til umræðu hafa verið við okkur.” Guðmundur og Karl Steinar vildu hvorugur spá um niðustöður fundarins. Magnús Gunnarsson framkvæmdastjóri Vinnuveit- endasambandsins sagði aðeins, er Mbl. ræddi við hann laust eftir miðnættið, að á fundinum færi fram lokaumræða um skattalækk- unarleiðina og óljóst væri hvenær henni lyki. Sjá viðtöl við Steingrím Her- mannsson forsætisráðherra og Þorstein Pálsson formann Sjálf- stæðisflokksins um stöðu samn- ingamála í miöopnu. MorKunblaöið/RAX. 300 verkfallsverðir í Sundahöfn Verkfallsverðir BSRB hafa að undanfórnu látið nokkuð til sín taka og meðal annars hafa þeir sinnt verkfallsvörslu á athafnasvæði Eimskipafélagsins við Sundahöfn, þar sem þeir hafa komið í veg fyrir að skipin fái tollafgreiðslu. í gærmorgun voru um 300 verk- fallsverðir til taks við Sundahöfn þar sem þessi mynd var tekin, en ekki dró þó til tíðinda, eins og sumir höfðu búist við. Eimskipafé- lagið hefur nú krafist lögbanns á verkfallsaðgerðir og segir nánar frá því í frétt á miðopnu Morgunblaðsins í dag. Vænzt er sáttafundar í BSRB-deilunni í dag; BSRB leggur höfuðáherzlu á kaupmáttartryggingu EINN forystumanna BSRB sagði í samtali við blm. Morgunblaðsins í gær- kveldi að staða samninganna væri á „mjög viðkvæmu róli“ eins og hann - orðaði það. Samninganefnd BSRB, sem skipuð er 60 manns, hafði þá verið að ræða hinar ýmsu leiðir í framhaldi af síðasta sáttafundi með fjármálaráð- herra. Þar kröfðust BSRB-menn meiri kauphækkunar en boðin hafði ver- ið og tryggingar á kaupmætti út samningstímabilið. Samninga- nefndarmaðurinn kvað samtökin opin fyrir hvers konar kaupmátt- artryggingu, hvort sem hún kæmi fram í formi áfangahækkana, verðbóta eða svokallaðra „rauðra strika“. bá munu BSRB-menn telja skattalækkunarleið til lausn- ar samningum úr sögunni. Innan BSRB gera menn ráð fyr- ir sáttafundi í dag, en ríkissátta- semjari, Guðlaugur Þorvaldsson, hafði í gærkveidi ekki ákveðið, hvort deiluaðilar yrðu boðaðir til fundar. Guðlaugur kvaðst í dag árdegis myndu ræða við deiluaðila og eftir þau samtöl ákveða hvort boðað yrði til fundar. Kristján Thorlacius, formaður BSRB, sagði í gær að hann liti svo á, að fjármálaráðherra hefði stöðvað samningaviðræður með því að segjast ekki vera til viðtals um kröfur BSRB, sem lagðar voru fram á sáttafundi á sunnudag. Al- bert Guðmundsson, fjármálaráð- herra, sagði hins vegar í samtali við blm. Morgunblaðsins, að gagn- tilboð BSRB á sunnudag hefði ver- ið af sömu stærðargráðu og upp- haflegar tillögur eða hærri og taldi hann það ekki sýna samn- ingsvilja af hálfu BSRB. Kvaðst hann telja tilboð ríkisins nú þegar hærri en þjóðarbúið þyldi. Sjá viðtöl við Albert Guðmunds- son fjármálaráðherra og Kristján Thorlacius formann BSRB í mið- opnu. Bensín- birgðir á þrotum Olíuskip væntan- legt í vikunni BENSÍNBIRGÐIK í landinu eru nú á þrotum að sögn Þórðar Ás- Íeirssonar forstjóra Olíuverslunar slands. „Við höfum haldið allri bens- índreifingu í lágmarki en nú er svo komið að birgðir eru á þrot- um,“ sagði Þórður. „Sovéskt olíuflutningaskip er væntanlegt hingað til lands siðar í þessari viku og fari svo að það verði los- að strax, munu endar ná saman og menn þurfa ekki að óttast bensínskort." Aðspurður sagði Þórður að svartolíu- og gasolíubirgðir í landinu myndu endast vel fram í nóvembermánuð. „Sovéskt olíuflutningaskip með svartolíu hefur sem kunnugt er legið hér við land í vikutíma án þess að geta losað og er áhöfnin nú tek- in að ókyrrast. Það getur orðið dýrt spaug fyrir okkur ef skipið fer án þess að losa, því að ekki er von á öðru svartolíuskipi fyrr en í desember. Ég vil benda á að það er geysi- lega dýrt að láta skipin liggja hér við land og ef verkfallsmenn koma í veg fyrir að þau verði losuð þá kemur það niður á neytendum í landinu í hækkuðu olíuverði," sagði Þórður að end- ingu. Leigði menn til innbrots hjá sjálfum sér VERZLUNAREIGANDI í Reykjavík hefur játað að hafa fengið ívo menn til þess að fara inn í verzlun sína með það fyrir augum að svíkja fé út úr tryggingum og átti að láta líta svo út, sem um innbrot hefði verið að ræða. Reksturinn gekk ekki sem skyldi hjá eigandanum og því var það að hann fékk mennina til þess að „brjótast inn“ hjá sér. Tóku mennirnir hressilega til hendinni og var tjónið sem þeir ollu metið á um 100 þúsund krónur. Þó munu þeir ekki hafa unnið eins mikið tjón og um var samið. Innbrotið var framið í septem- ber, en maðurinn var úrskurðaður í gæzluvarðhald þann 16. október síðastliðinn að kröfu Rannsókn- arlögreglu ríkisins. Honum var sleppt úr haldi í gær. Vegna skamms vinnslutíma er MorgunblaðiA aðeins 32 síður í dag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.