Morgunblaðið - 04.11.1984, Síða 6
70
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1984
Skiptinemar til Bandaríkjanna/Kanada
ASSE ISLAND gefur íslenskum unglingum kost á því
aö fara sem skiptinemar til ársdvalar í Bandaríkj-
unum/Kanada í eitt skólaár.
Ef þú ert 16—18 ára í ágúst á næsta ári og hefur
áhuga á aö lenda í meiriháttar ævintýri haföu þá
samband viö skrifstofu ASSE ISLAND til aö fá nánari
upplýsingar.
mVASSE.
American Scandinavian Student Exchange
Laugavegi 28, 3. hæö. 101 Reykjavík. Sími 621455.
Orðsending frá versluninni
Dalakofanum
Tískuverslun í Hafnarfirði. Vorum aö taka fram fjöl-
breytt úrval af vetrarvörum. Kápur vatteraöar meö
hettum, úlpur meö hettum og hettulausar, jakka
margar geröir, dragtir og buxur. Tökum fram á
mánudag kjóla í fjölbreyttu úrvali.
Dalakofinn,
Linnetsstíg 1, Hafnarfiröi,
sími 54295.
tölvan
í gegn!
tölvur hafa verið prófaðar af Háskólanum og valdar til
kaupa fyrir ráðuneyti og aðrar ríkisstofnanir.
er íslensk tölva, framleidd fyrir íslenskan
markað.
hf. og mjög margir aðrir, innlendir og erlendir
framleiðendur, bjóða hugbúnað fyrir ATLANTIS tölvur.
hf. hvetur þig til að gera gæða- og verðsamanburð
og þú munt komast að því hvers vegna ATLANTIS
hefur slegið í gegn.
Vinsamlegast hringið eða komið í heimsókn.
Hundrað
þúsund á
fundi hjá
Mondale
Bonton og New York, 1. nóvember. AP.
TAUÐ er að um eitt hundrað þús-
und manns hafí verið á fundi, sem
Walter Mondale, forsetaefni
bandarískra demókrata, og Ger-
aldine Ferraro, varaforsetaefni,
efndu til í New York í dag. Mond-
ale var óvenju harðorður í garð Re-
agans forseta, sem hann sakaði
um ósæmilegar aðdróttanir. For-
setinn haföi gagnrýnt, að ekki var
gerð sérstök samþykkt gegn
fjandskap í garð gyðinga i þingi
dcmókrata í sumar. „Herra for-
seti“, sagði Mondale, „þessi um-
mcli segja meira um þig en demó-
krata. Bandaríkjamenn kunna
ekki að meta svona pólitík.“
Fundur Mondales f dag hefur
verið borinn saman við fund
Johns F. Kennedy í New York í
kosningum árið 1960, sem
svipaður fjöldi sótti. Kennedy,
sem þá var forsetaefni demó-
krata, sigraði f kosningunum.
Ronald Reagan efndi til kosn-
ingafundar f Boston f dag og
beindi orðum sínum jafnt til
demókrata sem repúblikana.
„Um leið og við eflum efnahag
okkar," sagði hann, „styrkjum
við þau verðmæti, sem tengja
okkur saman, og Bandaríkja-
menn sem þjóð lista og lærdóms
og trúar og ástar á guði, sem
hefur skapað okkur og veitt
okkur meiri blessun en nokkurri
annarri þjóð.“
íri verður
framseldur
Lauaanne, 1. nóvember. AP.
Talsmaður dómsmálaráðuneytis-
ins sagði í dag að ákveðið hefði verið
að framselja írska hryðjuverka-
manninn Seamus Maccharra til
írska lýðveldisins og er búist við að
það gerist von bráðar.
Maccharra, sem er 57 ára, var
handtekinn í Basel í apríl og var
hann þá strax sakaöur um ólög-
legan vopnaburð. Reyndi hann að
fá komið í veg fyrir framsal með
því að halda því fram að hann
væri pólitískur afbrotamaður, en
þeirri kröfu var hafnað á þeirri
forsendu að sprengjutilræði gætu
ekki talist samrýmast pólitísku
takmarki.
Qlympíuleikarnir 1988:
Haldið verður
fast við Seoul
Róm, 2. nóvember AP.
JUAN Antonio Samaranch, forseti
Alþjóða Ólympíunefndarjnnar lýsti
því yfír í dag, að ekki yrði látið und-
an bótunum sumra ríkja um að taka
ekki þátt í Ólympíuleikunum, sem
halda á í Seoul í Suður-Kóreu 1988.
„Við munum fara til Seoul, al-
veg eins og við fórum til Moskvu
og Los Angeles," sagði Samaranch
í viðtali við tvö ítölsk blöð í dag.
Sagði hann þetta í tilefni þess, að
tillögur hafa komið fram um
„hlutlausara land“ til þess að
koma í veg fyrir, að sum kommún-
istariki, sem ekki hafa stjórn-
málasamband við Suður-Kóreu,
virði Ieikana að vettugi.
Cterkurog
L/ hagkvæmur
auglýsingamióill!
hf. Skúlagötu 51, 105 Reykjavík, Sími 91-19920