Morgunblaðið - 04.11.1984, Qupperneq 14
78
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1984
Sláturtíð allt árið." Nú á
tímum, þegar fryst
ótilbúið slátur er fáan-
legt í hentugum umbúð-
um, geta menn fært
„sláturtíðina" til að vild.
Vegna verkfalls undan-
farnar vikur, hefur Morgunblaðið ekki komið út
og þátturinn um sláturgerð því nokkuð seint á
ferðinni. Efalaust eiga þó einhverjir eftir að
gera slátur. Gormánuður heitir fyrsti mánuður
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Slátur
Blóðmör
2 lítrar blóð
'k lítri vatn
2'k sléttfullar msk gróft salt
500 g haframjöl
1200 g rúgmjöl
800 g mör
1. Saxið mörinn smátt.
2. Síið blóðið gegnum vírsigti. Blandið salti í vatnið, og
því saman við blóðið.
3. Blandið saman rúgmjöli og haframjöli.
4. Hrærið blóðið út í mjölið. Þetta á að vera meðalþykk
hræra.
5. Hrærið mörinn út í.
6. Setjið í vambakeppi, fyllið aðeins að %, saumið fyrir
og pikkið keppina með nál.
7. Sjóðið saltvatn, setjið keppina hvern af öðrum í salt-
vatnið, um leið og þeir eru tilbúnir og sjóðið í 3 klst.
Hafið hægan hita og pikkið keppina meðan á suðu
stendur. Færið keppina, sem fljóta upp, í kaf með spaða.
8. Snöggkælið keppina.
Athugið: þessi hræra er í 10 stóra keppi.
Ef þið viljið búa til rúsínuslátur, stingið þið hnefa-
fylli af rúsínum í hvern kepp. Merkið keppina með því
að sauma pjötlu við opið.
Lifrarpylsa:
2 lifrar, u.þ.b. 1 kg
4 nýru, u.þ.b. 150 g
2 msk gróft salt
xk lítri mjólk
'k litri kjötsoð
500 g rúgmjöl
250 g haframjöl
200 g hveiti
800 g mör
1. Brytjið mörinn smátt.
2. Takið himnuna af lifrinni og nýrunum, hreinsið úr
því allar taugar og æðar. Hakkið síðan tvisvar í hakka-
vél.
3. Blandið saman rúgmjöli, haframjöli og hveiti.
4. Leysið saltið upp í soðinu.
5. Hrærið lifrina, soðið og mjólkina út í mjölið. Þetta á
að vera þykk hræra. Blandið siðan mörnum i.
6. Setjið í vambakeppi. Þeir mega vera nokkuð vel fullir.
Saumið fyrir. Pikkið keppina með nál.
7. Hitið vatn með salti. Sjóðið keppina í vatninu við
hægan hita í 2 klst. Pikkið keppina meðan á suðu stend-
ur og færið þá í kaf, sem fljóta upp.
Soðinn blóðmör með hvítkáli og gulrótum í
súrsætum legi
Handa 4
1 frekar lítill blóðmörskeppur
250 g hvitkál
2 meðalstórar gulrætur
1 msk smjör
1 msk matarolía
1 msk púðursykur
'k dl borðedik
Vi tsk negull
1. Hitið olíuna og smjörið á pönnu.
2. Saxið hvítkálið og gulræturnar, steikið það i feitinni i
10 minútur.
3. Hellið edikinu út i og stráið púðursykri og negul yfir.
Hrærið saman.
4. Skerið blóðmörinn i sneiðar og leggið ofan á græn-
metið. Setjið lok á pönnuna, minnkið hitann og sjóðið í
7 mínútur.
5. Berið fram á pönnunni.
vetrar og virðist ekki hafa átt annað nafn að
fornu. Vísar nafnið til sláturtíðar og er sá mán-
uður ekki liðinn, hann hófst með fyrsta vetrar-
degi fyrir viku. Fyrsti vetrardagur mun hafa
verið um hálfum mánuði fyrr til forna og var
alltaf á föstudegi. Á íslandi hefur lengi tíðkast
að gera slátur og var slátrið geymt í súr til
ársins, en aðeins borðað nýtt í sláturtíðinni.
Víða hefur verið mikil sláturgerð þar sem þess
var kostur og er máltækið: „Það munar ekki um
einn blóðmörskepp í sláturtíðinni" komið til af
því að einhvers staðar hefur verið til nóg af
slátri, þótt allur almenningur hafi að öllum lík-
indum ekki haft mikið slátur. Áður var slátrið
allt hirt, m.a. lungu, heili, kirtlar og ristill.
Blóðið var blandað miklum mör og þótti slátrið
betra því feitara sem það var. Reynt var að hafa
mjöl í slátrið þar sem það var til, en fjallagrös
voru skorin og höfð saman við blóðið. Einnig
var ristillinn skorinn niður og hafður með til
drýginda. Lifur var nær eingöngu höfð í lifrar-
pylsu ásamt nýrum og miklum mör ásamt mjöli.
Fleiri þjóðir en íslendingar búa til slátur, þótt í
minna mæli sé. Má þar nefna Skota sem búa til
hagis, eins konar slátur sem í eru hjörtu, lifur
og lungu og soðin í vömb. Dani sem búa til
blodpölse sem krydduð er með negul, engiferi og
allrahanda og bætt með rúsínum. Að ógleymd-
um Færeyingum sem búa til mikið slátur. Þar
er slátrið dísætt með miklum púðursykri og
margskonar kryddi, svo sem negul, engiferi,
kanil og pipar og svo rúsínum. En hér birtast
uppskriftir af okkar venjulega íslenska slátri,
sem samkvæmt kröfum tímans er ekki mjög
feitt. Þessar uppskriftir eru allar úr nýútkom-
inni bók minni „220 ljúffengir lambakjötsrétt-
ir“.
Víðast hvar eru vambirnar hreinsaðar, þegar
slátrið er keypt og þarf því ekki að hafa mikið
fyrir þeim. Þó þarf að leggja þær í kalt vatn
strax og gæta þess að þær séu ekki lengi á
hlýjum stað. Hentugt er að láta renna á vamb-
irnar í vaskinum og síðan þarf að skafa þær, ef
eitthvað situr eftir á þeim. Algengt er að fá 4—6
keppi úr hverri vömb. Vélindiskeppurinn eða
fagrikeppur er einnig notaður utan um slátrið,
og þarf aðeins að sauma fyrir gatið á honum.
Yfirleitt þarf að kaupa aukavambir ef maður
ætlar að búa til slátur úr öllu blóðinu og lifr-
inni, og er hæfilegt að kaupa 2 aukavambir með
fimm slátrum. Þegar keppir eru sniðnir úr
vömbinni, er best að leggja hana á trébretti og
skera með beittum hnífi. Síðan er notaður bóm-
ullarþráður og góð stoppunál til að sauma kepp-
ina saman. Gott er að skilja eftir smáspotta við
opið, þræða nálina upp á hann og sauma fyrir
opið, þegar búið er að fylla keppinn. Ef þið ætlið
að frysta slátrið, er hægt að hálfsjóða það fyrir
frystingu eða geyma það hrátt. Slátrið tekur
mun minna pláss í frystinum, sé það fryst hrátt,
en vefjið hvern kepp inn í plastfilmu og setjið á
kassa eða álmót. Setjið síðan plast eða álpappír
vel yfir allt slátrið. Nauðsynlegt er að snögg-
frysta slátrið við eins mikið frost og hægt er.
Þegar slátrið er soðið, er það sett frosið í sjóð-
andi saltvatn.
meö glœsibra^
Vínarkvöld verður í Súlnasal
Hótel Sögu sunnudaginn 4. nóv
ember kl. 18:00
Vínarvín - Vínarmatseðill
Vínarhljómlist: Carl Billich og Þorvaldur Steingrímsson.
Óperusöngvarar frá Vín: Gabriele Salzbacher, sópran,
Friedrich Springer, tenór, og Norbert Huber, undirleikari.
Kynnir: Helgi Skúlason, leikari.
Aðgöngumiðar gilda sem happdrættismiðar. Vinningur er
ósvikin „SACHER“ terta frá Vín.
Aðgöngumiðasala og borðapantanir eftir kl. 1600 í síma
20221.
y \ hóiel\ ^
NJIUW MP /J&Qj liaiandi
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI