Morgunblaðið - 04.11.1984, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1984
81
enda, hvernig það sé að búa milli
tveggja siðmenninga og tveggja
tungumála.
í þriðju bókinni, The Devil Tree,
íhugum við í gegnum söguhetjuna
hve mikil áhrifa fjölskylda og
uppeldi hafa á líf okkar. Eru þetta
þær rætur okkar 3em ráða gjörð-
um okkar síðar á ævinni, eða kom-
um við fram sem sjálfstæðar per-
sónur, lausar við hefðir og
þvinganir fjölskyldusiða?
Ekki aðeins grófur
raunveruleikinn
í bókunum birtist raunveruleik-
inn á mjög kaldan, grófan, nærri
fráhrindandi hátt, en í þeim er
einnig jafnan falið eitthvað annað
og meira.
„Ég fær oft bréf frá reiðum les-
endum, sem beina fyrirlitningu
sinni að mér. Þeir eru sannfærðir
um að það sem ég skrifa sé mitt
eigið líf, að ég skrifi sjálfsævisögu.
Svo er ekki — ég lýsi erfiðleika-
timum sem hver og einn okkar
getur lent í fyrr eða síðar. Málið er
að við verðum að losa okkur frá
þessum tímum á einn eða annan
hátt, svo við glötum ekki sjálfs-
virðingunni.
Ég sækist ekki eftir því að vera
vel liðinn. Ég vil hrífa." Augnaráð
Kosinskis gneistar og ég hrekk
við. Hann tekur eftir því, skilur,
og hlær að mér. En svo verður
hann alvörugefinn á ný og heldur
áfram: „Ég vil ekki gera neinum
auðvelt að lesa bækurnar mínar.
Að komast í gegnum þær ætti að
vera eins og að komast í gegnum
lífið.
Athyglisverð persóna verður á
vegi þínum, einhver sem þú vilt
kynnast nánar. Til þess verður þú
að lesa bókina og túlka hann eða
hana rétt. Þú getur ekki lesið bók-
ina í flýti og án gaumgæfni. Lestu
blaðsíðu fyrir blaðsíðu, dag eftir
dag. Ef til vill þarft þú að fletta til
baka og lesa eitthvað upp á nýtt.
Er þetta góð persóna? Einhver
sem þú vildir búa með? Er hún
athyglisverð kona? Þannig skrifa
ég bækurnar mínar. Á yfirborðinu
geta persónurnar virzt tilfinn-
ingasnauðar og kaldar. En ef til
vill er það rangt, ef til vill koma
þær aðeins þannig fyrir.
Ef þú hefur áhuga á bókinni, á
persónunni, á lifinu, verður þú
stöðugt að grafa dýpra og skynja
hvað liggur undir yfirborðinu."
Goðsagnir og
orðrómur
Á síðari árum hefur Kosinski
orðið umvafinn goðsögnum. Orð-
rómur hefur verið á kreiki um að
hann hafi starfað fyrir CIA í Pól-
landi og að hann sé rússneskur
njósnari í Bandaríkjunum. Hann
hefur verið sakaður um að hafa
látið aðra skrifa fyrir sig í stað
þess að semja sjáldsögur sínar
sjálfur. Hann lætur þetta ekkert á
sig fá.
„Þar sem ég sem skáldsögur,
það er að segja bý tii sögur, kann
ég bara vel við það þegar aðrir búa
til sögur um mig. Það er nú einu
sinni svo að rithöfundurinn býr til
persónu, og skáldsagan byggist á
goðsögnum og orðrómi í kringum
þessa persónu. Svo ef ég bý til
ímyndaðan raunveruleika, ætti
öðrum að leyfast það sama varð-
andi mig.
Það er starf mitt að afsanna
goðsagnir, svo næsta bók mín
verður um rithöfund, sem sakaður
er um að semja ekki sjálfur bækur
sínar. Það reynist mjög erfið að-
staða."
Það hefur verið látið ofan í
ferðatöskurnar, sem standa við
dyrnar. Hann þarf að ferðast á ný,
fljótlega. f þetta sinn er það Genf
og fundahöld um mannréttindi.
Kosinski er oft á ferð og flugi. En
áður en samtali okkar lýkur vill
hann segja mér frá helzta tak-
marki lífs síns.
„Að mínu áliti er aðeins unnt að
lifa á einn veg, og það er í samvist-
um við aðra menn. En til að geta
það verð ég að skoða sjálfan mig.
Hver er ég? Frammi fyrir hverj-
um stend ég þegar ég horfi á sjálf-
an mig?
Ef ég horfi á sjálfan mig með
augum samfélagsins, er ég aðeins
venjulegur maður, einn af mörg-
um. í mínum augum er ég mikils-
verður, óbætanlegur og sérstæður.
í mínum augum er líf mitt ómet-
anlegt, og af þeirri ástæðu vil ég
ekki að það mistakist.
Bak við öll samskipti við aðra er
eitt mjög mikilvægt, nákvæm
skoðun á sjálfum sér. Tilgangur
minn er að taka fram það sem býr
innra í mér og sýna það öðrum. Áð
sýna þér sjálfið mitt.
Ég get ekki hugsað mér betri
leið til þess en að skrifa, og svo að
vera með þér hér og nú.“
Tirestone
______HUKIN__
_____SEVBNH,_____________________
BFTBf
____HEMLUN_
Firestone vetrarhjólbarðar veita öfluga spyrnu, örugga
hemlun og þeir hafa frábæra endingu.
Þú ert í fararbroddi með örugga og endingarmikla
Firestone hjólbarða.
____FIRESTONE — ÖRYGGI OG ENDING_
Útsölustaöir um land allt.
JÖFUR HF
NYBYLAVEGI 2
KÓPAVOGI
SIMI42600