Morgunblaðið - 04.11.1984, Page 21
MOBGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1984
85
Bardot heimsækir dýraverndunarmenn i Strasbourg.
bébé, en það orð hefur merkinguna ungbarn,
og þótti það vel sæma barnslegu og sakleysis-
legu andliti hennar.
Ástæöa þess að fullt nafn fylgdi ekki
forsíðumyndinni i Elle var sú, aö foreldrar
Brigitte sem voru efnaðir betri borgarar, vildu
fyrir aila muni komast hjá óþægindum af
þessu tiltæki. Brigitte var bara skólastúlka og
þeim fannst hún of ung til að komast i sviðs-
ljósið. En allt kom fyrir ekki. Kunnur
kvikmyndaleikstjóri, Marc Allegret að nafni,
sá myndina og fól ungum aðstoðarmanni sín-
um að hafa upp á fyrirsætunni. Sá hét Roger
Vadim. Honum tókst að finna stúlkuna og fá
foreldra hennar til að samþykkja að hún léki í
kvikmynd til reynslu. Úr því varð raunar engin
kvikmynd að sinni, en heilmikið ástarbál, sem
síðar leiddi af sér hjónaband, kvikmyndir og
heimsfrægð. En ekkert af þessu virðist hafa
fært BB varaniega hamingju og gleði.
Hefur satnkennd með dýrunum
Hún kennir kvikmyndunum um ófarnað sinn
í lífinu. Hún kennir þeim um stöðugan tauga-
óstyrk og geðsveiflur, sem hún hefur aldrei
náð stjórn á. Vadim er á annarri skoðun. Hann
telur að geðsveiflurnar séu ekki fyigifiskur
kvikmyndanna, heldur hafi þær fylgt Brigitte
ailt frá barnæsku. Hann segir að ýmist hafi
hún verið haldin ofsakæti éða fengið óstjórn-
leg grátköst, sem gátu staðið i tvo daga. Svona
hafi hún verið á skólaárunum, löngu áður en
hún varð heimsfræg sem kvikmyndaleikkona
og kyntákn.
Vadim hefur ákveöna skýringu á því, hvers
vegna Brigitte sneri sér að dýravernd. Hún
segir að hún hafi fundið til samkenndar með
dýrum vegna þess að hún hafi eins og þau,
orðið fyrir illri meðferð mannfólksins. Hún
gleymir aldrei þeim skömmum og svívirðing-
um, sem yfir hana dundu. Og taumlaus aðdáun
fjöidans veitti henni enga hugsvölun. Hún
hafði enga þörf fyrir að vera dýrkuð af fólki
sem hún þekkti ekki, fólki sem tilbað hana um
stund, en sneri við blaðinu og fyrirleit hana
næsta dag. Slíkt var lftið haldreipi 1 lífinu,
alira sízt fyrir unga konu sem hafði aldrei
verið fyllilega örugg með sig. Smám saman
gerðist hún hálfgerður mannhatari. Eg hef
mjög lítið álit á mannkyninu. Mér finnst fólk
vera heimskt, falskt, gróft og grimmt, segir
Brigitte Bardot.
incm0nu<a
SPÍCI4L8.Í
Litlir leikarahæfíleikar
Birgitte lék á sínum síma i um það bil 40
kvikmyndum, en þær hafa illa staðist dóm
tímans, enda segir hún sjálf, að aðeins fimm
eða sex þeirra hafi verið einhvers virði. Sum-
um finnst það jafnvel heldur mikið sagt. Brig-
itte var líka sannfærð um, að hún hefði lítið til
brunns að bera sem kvikmyndaleikari, enda
hafði hún fengið sáralitla tilsögn f leiklist.
Hún hafði hins vegar fengið góða þjálfun í
ballett og öll framkoma hennar bar þess
merki. En hún var umfram allt kyntákn og
þurfti litla leikarahæfileika til að heilla fólk
meðan Bardot-æðið fór um eins og eldur í sinu.
Fólk vildi bara hafa hana eins og Roger Vadim
hafði leitt hana fram í myndinni „Og guð skap-
aði konuna“, — barnslega, töfrandi og fulla af
kynþokka. Smám saman brutust þó fram hjá
henni hæfileikar samfara auknum þroska, en
þá var hún orðin föst i gamla farinu og virtist
hrædd við þá ólgu sem hún fann innra með sér.
1 augum BB táknar velgengni ekki það sama
og hjá flestum öðrum, heldur leggur hún svip-
aða merkingu f það orð og f orðið öryggistil-
finning. Henni finnst meginmáli skipta að geta
reitt sig á umhverfið, að þurfa ekki að óttast
breytingar. Og kannski þarf hún ekki að óttast
miklar breytingar eins og sakir standa.
Kannski færa efri árin henni hamingju, sem
hún fór varhluta af í blóma lífsins. Það verður
þá a.m.k. breyting til hins betra.
Brigitte finnst fáránlegt að einhver skuli
halda þvi fram að það sé gott að verða fimm-
tugur. Samt virðist hún ekki óttast ellina, og
þótt hún dragi ekki fjöður yfir það hversu
einmana hún er, kveðst hún miklu hamingju-
samari núna, þegar hún berst fyrir málstað
dýranna, en þegar hún var bara vesæl kyn-
bomba, eins og hún kemst að orði.
Það væri gott til þess að hugsa að hún gæti
eytt ævikvöldinu með einhverjum sem hefði
svipuð áhugamál og hún. Roger Vadim segir að
hún sé annað veifið í tygjum við mann sem
hefur líka helgað sig baráttunni fyrir dýra-
vernd. Hins vegar hefur blaðamönnum ekki
tekizt að hafa uppi á honum og hann er alltaf
víðs fjarri, þegar Brigitte leyfir að tekin séu
við hana viðtöl.
En hvað sem öðru líður á hún dýrin sín,
málleysingja, sem þykir vænt um hana hvort
sem hún eldist eða ekki, og hvort sem hún er
ennþá falleg eða ekki. Og með þessum vinum
sínum er hún líklega ánægðari en nokkru sinni
fyrr.
Bygjft á jjrein eftir Robin Smyth ojj cvisögu
Brigitte Bardot eftir Willi Frischauer.
Bardot kemur til dómshúss til að
verjast meiðyrðaákæru.
stjórn Mitterrands áhugalitlar og tregar i
taumi.
Það er ekki vitað með vissu hversu mörg
húsdýr Brigitte Bardot heldur nú um stundir.
Pyrir skömmu var talið að hún hefði í húsi
sínu 24 ketti, 7 hunda og einn heimalning. En
þetta er breytilegt.
Þótt dýrin séu henni mikils virði, koma þau
ekki að fullu í stað styrkrar karlmannshanda.
— Ég græt í rúminu á næturnar. Þótt ég fái
100 elskuleg bréf, er það ekki eins mikils virði
og að eiga mann, sem gæti þrýst mér að sér og
hvislað: „Vel af sér vikið, Brigitte!"
Fyrir þrem árum sagði hún eftirfarandi:
— Eg er að venja mig við að búa ein, en mér
hefur ekki tekizt það algerlega ennþá. Kannski
það eigi enn við.
drengurinn fæddist. Hún var að vissu leyti
óþroskuð og átti við að stríða vandamál frá
sinni eigin bernsku, sem gerði henni ókleift að
rækja móðurskyldur sfnar. Skeytingarleysi
hennar gagnvart Nicolas stingur dálitið f stúf
viö þá takmarkalausu umhyggju sem hún ber
fyrir gæludýrum sínum, öðrum dýrum og
gömlu fólki. En hún viðurkennir fúslega, að
hún hafi aldrei verið hrifin af litlum börnum.
Mikil sjálfseyðingarhvöt
Svo virðist sem Brigitte hafi verið haldin
ákafri sjálfseyðingarhvöt allt frá æskuárum
sfnum. Daginn sem hún varð 49 ára var hún
dregin upp úr sjónum alklædd og flutt f
sjúkrahús. í ljós kom að hún hafði tekið inn of
stóran skammt af svefnlyfjum. Þetta er ekki f
fyrsta sinn sem hún reynir að fyrirfara sér.
Þegar hún var 16 ára gömul fannst hún nær
dauða en lífi f íbúð foreldra sinna. Hún hafði
skrúfað frá gasinu og látið höfuðið inní bakar-
ofninn. Henni var bjargað á elleftu stundu.
Ástæðan fyrir þessari sjálfsmorðstilraun var
sú, að foreldrar hennar vildu koma í veg fyrir
að hún giftist Roger Vadim, sem þá var ungur
listamaður f París. Eftir þetta tiltæki þorðu
foreldrar hennar ekki að andmæla henni á
nokkurn hátt og daginn sem hún varð 18 ára
gekk hún í hjónaband meö Vadim. Eins og fyrr
segir hefur hann verið mjög berorður um
hjúskap þeirra og samvistir og hann fullyrðir,
að hún hafi oft reynt að fyrirfara sér, hafi
daðrað við dauðann hundrað sinnum, eins og
hann hefur komizt aö orði.
Lítið samband við soninn
Hún á eitt barn, soninn Nicolas Charrier,
sem henni fæddist í hjónabandi þeirra Jacques
Charrier, en hann var annar eiginmaður henn-
ar. Nicolas hafði lítið af móður sinni að segja.
Þegar hann fæddist ætlaði allt af göflunum að
ganga, gjafir streymdu að og Frakkar gleymdu
þvf um stund að þeir áttu í ýmsum erfiðleikum
á sviði utanríkis- og innanríkismála. Þjóðverj-
ar kölluðu drenginn: „Bam Frakklands" og há-
skólinn í Iowa í Bandarfkjunum bauð honum
skólavist þar árið 1988! En fáum dögum eftir
fæðinguna fór Brigitte til starfa og lét dreng-
inn vera algerlega f umsjá þjónustufólks. Ekki
leið á löngu þar til hún skildi við Jacques
Charrier og hafði hann allan veg og vanda af
uppeldi sonar þeirra. Nicolas er nú 25 ára og
hann kemur sjaldan f heimsókn til móður
sinnar. Hún skilur það vel. — Ég get ekki
ætlast til þess að hann gefi mér það, sem ég
gaf honum aldrei, segir hún.
Ástæðan fyrir þessu sambandsleysi þeirra
mæðgina virðist vera sú, að Brigitte hafi ekki
verið undir móðurhlutverkið búin, þegar
Brigitte
Bardot kom
til Reykjavíkur
í aprflbyrjun
1977 á leið yflr
Átlantshaflð. Þá
tók RAX
Ijósmyndari
BB á forsíðu Elle
Brigitte Bardot var vart af barnsaldri, þegar
mynd af henni birtist á forsfðu tfmaritsins
Elle. Ekkert nafn fylgdi myndinni, aðeins upp-
hafsstafirnir BB, sem síðan urðu eins konar
gælunafn Brigitte. Á frönsku er BB borið fram