Morgunblaðið - 04.11.1984, Side 22
86__________________MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1984_
Er engin leið út úr sjálfheldunni?
Skák
Margeir Pétursson
Eins og oft iður í heimsmeistara-
einvígi þeirra Karpovs og Kasparovs í
Moskvu fór 21. skákin af stað með
miklum sviptingum og kapparnir
sýndu áhorfendum að hvaða niður-
stöðu þeir höfðu komist með löngum
byrjanarannsóknum. í 11. leik bauð
Karpov upp á uppskipti á drottning-
um, sem Kasparov skoraðist undan
um tíma en þáði síðan í 13. leik. Þá
þegar var mesti vindurinn úr stöð-
unni, þí hvítur virtist standa heldur
betur. En þetta var ekki dagur heims-
meistarans. Hann tefldi óvenjuóná-
kvæmt og í hróksendatafli sem fylgdi
í kjölfarið hafði Kasparov greinilega
frumkvæðið. Það dugði samt sem áð-
ur ekki til, því staðan var orðin of
einfölduð og með 27. leik sínum
tryggði Karpov jafnteflið.
21. skákin:
Hvítt: Anatoly Karpov
SvarL' Gary Kasparov
Drottningarbragð
1. Rf3 — d5, 2. d4 — Rf6, 3. c4 — e6,
4. Rc3 — Be7, 5. Bg5 — h6, 6. Bxf6
— Bxl6. 7. Dd2 - dxc4!?
í 19. skákinni lék Kasparov 7. —
0-0 og lenti í nokkrum erfiðleikum
eftir 8. Dd2 — Rc6,9. Hcl — a6,10.
Be2 — dxc4, 11. Bxc4 — e5, 12. d5
- Ra7.
8. e4 — c5, 9. d5 — exd5, 10. e5 —
Bg5, 11. Dxd5 — Rc6, 12. Bxc4
Svartur hefur fullnægjandi mót-
spil eftir 12. Dxc5 — Bg4, t.d. 13.
Be2 - De7.
12. — 0-0.
13.00
Ef hvítur hefði vikist undan
drottningarkaupunum með 13. De4
nær svartur kröftugu mótspili eftir
13. - Rd4!
13. — Dxd5, 14. Bxd5 — Rb4, 15.
Rxg5?!
Hvítur stendur sízt betur eftir
uppskiptin sem nú fara í hönd.
David Bronstein, sem tefldi heims-
meistaraeinvígi við Botvinnik fyrir
rúmum 30 árum, en er nú í hópi
áhorfenda, stakk upp á 15. Bc4. 15.
Be4 virðist ekki síður koma til
greina, a.m.k. hefði heimsmeistar-
inn átt að halda upp á biskupinn.
15. — Rxd5!, 16. Rxd5 — hxg5, 17.
f4!?
Tilraun til mátsóknar i endatafli!
Nú einangrast hvíta peðið á e5.
17. — gxf4, 18. Hxf4
Hótar 19. Re7+ - Kh8, 20. Hh4
mát. Svartur þurfti heldur ekki að
óttast 18. Re7+ — Kh7,19. Hxf4 —
g5!
18. — Hd8, 19. Rc7 — Hb8, 20. Hafl
— Hd7, 21. Rb5 — He7.
Svartur stendur nú nokkru bet-
ur. Hann getur þrýst á staka peðið
á e5 og biskup hans á sér góðan reit
áe6.
22. Rxa7 — Bd7, 23. a4 — Ha8, 24.
Rb5 — Bxb5, 25. axb5 — Ha5.
25. — Ha2 var góð tilraun, því
eftir 26. Hlf2? - Hxe5, 27. Hxf7 -
Hel+, 28. Hfl - Hxfl+, 29. Hxfl -
Hxb2, hefur svartur unna stöðu. En
hvítur getur haldið í horfinu með
26. H4f2.
26. b6 — Hb5, 27. b4! — cxb4, 28.
Hbl — b3, 29. Hf3 — b2, 30. Hf2 —
Hexe5, 31. Hfxb2.
Nú hugsaði Kasparov sig um í
fimm mínútur og bauð síðan jafn-
tefli sem heimsmeistarinn þáði
samstundis.
Móðir
Kasparovs
aftur meðal
áhorfenda
Frá Jonathan Tisdall, fréttaritara Morgun-
blaðsins á beimsmeistaraeinvíginu í Moskvu.
ÞAÐ VAR álit flestra hér á einvíginu
í Moskvu að Gary Kasparov hafl
mætt vel undirbúinn og fullur
sjálfstrausts til leiks þegar 21. skák-
in var tefld, og það má líklega segja
að hann hafl lengst af staðið heldur
skár þó hann hafl haft svart. Kasp-
arov hafði einnig betri tíma, allt frá
níunda leik, og þegar leiknir höfðu
verið 22 leikir átti hann flmmtíu
mínútum lengri umhugsunartíma af-
lögu en Karpov.
Klara Kasparova, móðir áskor-
andans, sást loksins aftur á ein-
víginu í dag, eftir að hafa verið
vikum saman fjarverandi eða
hreinlega i felum. Hún sat uppi á
svölunum með blaðamönnunum.
Engin skýring hefur verið gefin á
fjarveru hennar en Kasparov hef-
ur gengið betur síðan hún dró sig i
hlé, e.t.v. hefur það dregið úr
taugaspennunni.
Liðsmenn áskorandans sögðu í
dag að þeir hefðu verið mjög
ánægðir með stutta 15 leikja jafn-
teflið í 20. skákinni. Með því hefði
áskorandinn sýnt heimsmeistar-
anum að hann yrði að berjast af
hörku og taka áhættu til að vinna
tvær skákir til viðbótar og ljúka
einvíginu. Kasparov myndi ekki
hjálpa til með því að tefla í tvi-
sýnu eða sækja í örvæntingu. En
viðmælendur mínir í herbúðum
Kasparovs létu stórri spurningu
ósvarað. Hvað þarf að koma til til
þess að Kasparov sjálfur geti farið
að tefla til vinnings? Væntanlega
eru þeir að bíða eftir að Karpov
sýni á sér þreytumerki en heims-
meistarinn kemur frísklega fyrir
sjónir og hefur ekki tekið sér hvíld
siðan í þriðju skákinni.
Kroxov, skákgagnrýnandi sov-
ézka blaðsins Moskovskaya
Pravda gagnrýndi keppendur í
gær fyrir stutt jafntefli og lítinn
baráttuvilja í 20. skákinni, en flest
hinna sovézku blaðanna birtu að-
eins fréttatilkynningu TASS-
fréttastofunnar athugasemda-
laust. Mikill kurr var í áhorfend-
um sem fengu lítið fyrir pen-
ingana sína. Skákin í dag var hins
vegar öllu líflegri og vonast flestir
nú til að taflmennskan verði hvöss
og skemmtileg á nýjan leik.
Óumdeílanlega
hæstu innlánsvextir
^18 mánaöa sparireikningar Búnaðarbankans bera 27,5% nafnvexti, eða
29,4% ársávöxtun
^Vextir eru lausir til útborgunar 2svar á ári, 6 mánuði í senn.
Búnaðarbankinn mun ávallt leitast við að veita sparifjáreigendum
hæstu vexti sem í boði eru hverju sinni.
BUNAÐARBANKI
ÍSLANDS
Traustur bankí