Morgunblaðið - 04.11.1984, Síða 30
94
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1984
ÚR ■ ■ l»4l rvrMYNDANNA
Austurbæjarbíó:
GARP
Það eru engir græningjar tem
sameina krafta tína í nættu
mynd Autturbæjarbíót, The
World According To Garp. í fyrtta
lagi er myndin byggð é einni
vintæluttu og umtöluðuttu bðk
bandarítkri hin tiðuttu ár. f öðru
lagi er leikttjórinn einn tá reynd-
asti tem Bandaríkjamenn geta
státað af, Ótkarsverölaunahafinn
George Roy Hill (The Sting o.fl.). í
þriöja lagí er aðalhlutverkiö,
Garp, í höndum eins tkemmtileg-
asta og geggjaöasta leikarant
handan hafsins í vettri, Robin
Williamt.
Saga sögunnar
Myndin er oröin tveggja ára
gömul, en nú eru sex ár síöan John
Irving sendi frá sér bókina. 1978
var aö vissu leyti ár Travolta, en í
bókmenntaheiminum var þaö ár
Garps og höfundar hans, John Irv-
ing. John var hálffertugur þegar
hann samdi Garp, nokkuö þekktur
sem rithöfundur en langt langt frá
því aö vera víölesinn og dáöur.
Hann haföi skrifaö þrjár bækur áö-
ur. Engin þeirra vakti verulega at-
hygli, en þær heita „The
158-Pound Marriage" (1974),
„Setting Free the Bears" (1967), og
„The Water-Method Man" (1972).
Gæfan brosti ekki framan í Irv-
ing þegar hann byrjaöi á sögunni
um Garp upp úr '75. Útgefandi
hans, Random House, var
óánægöur hve bækur hans seldust
illa og frægustu gagnrýnendurnir
virtust ekki vita af honum. Útgef-
andinn var meira aö segja
óánægöur meö fyrstu kaflana um
Garp; gaf i skyn aö þeir vildu losna
viö hann. Irving fór því meö sitt
hálfkláraöa handrit til bókmennta-
fræöingsins Henry Robbins sem
vann hjá Dutton-fyrirtækinu.
Robbins var mjög virtur í sinni
stétt (hann lést 1979). Robbins las
handritiö og sýndi því áhuga og
hvatti Irving til aö halda áfram á
sömu braut. Robbins fékk Irving
20.000 dollara ávísun á framtíöina
og lofaöi honum 150.000 fyrir
næstu bók.
Irving gat snúiö heim frá útgef-
anda í fyrsta skipti á ævinni án
þess aö hafa áhyggjur af næstu
máltíö. Það var svo í maí 1977 aö
Robbins fékk svohljóöandi skeyti
frá Irving;
Robin Wílliams
„Lauk viö Lunacy and Sorrow
(Sorg og sinnisveiki) í morgun. i
bókinni er allt sem gæti gert hana
aö sápuóperu bannaöa börnum,
531 blaösiöa. Vonast til aö hún fái
haröjaxlana til aö brosa og snertí
streng í brjósti hinna viökvæmari."
Einhverra hluta vegna hefur Irv-
ing breytt titli bókarinnar milli þess
sem hann setti endapunktinn og
Garp (t.v.) og Róborta á kvannaaamkundu.
bókin birtist í búöum. Irving varö
aö ósk sinni, sbr. skeytiö, og meira
til. Saga hans um Garp hneykslaöi
ekki ófáa, sumir fengu velgju í
maga, blóöþrýstingur annarra
reyndist of mikill, en svo voru millj-
ónir sem tóku T.S. Garp upp á sina
arma og hömpuöu honum sem sín-
um manni.
Á fimmta áratugnum var þaö
Salinger og „Catcher in the Rye"; á
sjötta áratugnum var þaö Vonne-
gut og „Cat’s Cradle"; í lok
sjöunda áratugarins var þaö John
Irving og Garp.
The World According To Garp
seldist í milljónum eintaka strax
fyrsta áriö og er enn aö og skal
engan undra. Hér á landi hefur
pappírskiljan selst vel og ekki er
aö efa aö hér á klaka á Garp
marga aödáendur. Undirritaöur
veit ekki til þess aö bókinni hafi
veriö snaraö á íslensku, enda veit
hann ekki hvernig slíkt gæti tekist
án þess aö tapa eöa menga anda
sögunnar.
Tríóið að baki myndarinnar: Rithöfundurinn John Irving (í KR-bún-
ingnum), Robin WilHams og leikstjórinn George Roy Hill.
Er sjón sögu ríkari?
Ef bók selst mikiö í Bandaríkj-
unum eru líkurnar á aö sjónlista-
menn berjist ekki um kvikmynda-
réttinn akkúrat engar. Nú oröiö
viröist hver einasti bókstafur, sem
kemst á metsölulista, gott efni í
bíómynd. Nægir aö minnast á
Stefán konung skelfisagnanna.
John Irving þurfti þvi ekki aö bíöa
lengi eftir tilboöi frá agent úr frum-
skógi kvikmyndanna. Þeirra mottó
er nefnilega; sjón er sögu ríkari.
Mörg sorgleg dæmi hafa afsannaö
þessa kenningu. Til aö mynda hef-
ur Garcia Marquez ekki samsinnt
henni. En sagan um Garp var
dæmd til aö festast á kvikmynd.
George Roy Hill, sem varö fræg-
ur fyrir myndirnar „Butch Cassidy
and the Sundance Kid“ (1969) og
„The Sting“ (1973), keypti kvik-
myndaréttinn. Myndin var frum-
sýnd sumariö 1982 og varö fljótt
vinsæl. Nú er hún komin hingaö til
lands og er komiö aö islendingum
aö segja til um hvort sjón sé sögu
ríkari.
Garpinn leikur Robin Williams,
móöur hans leikur Glenn Close,
konu hans leikur Mary Beth Hurt
og kynskiptinginn Róbertu leikur
John Lithgow.
HJÓ.
Stjörnubíó:
Moskva við Hudson-fljót
Nýjasta kvikmynd Mazurskys
fjallar um sovéskan saxófónleik-
ara á ferð um Bandaríkin og bar-
áttu hans til frelsisins. Paul Maz-
ursky, sem venjulega gerir graf-
alvarlegar myndir um lífiö og til-
veruna, hefur nú slegið nýjan tón
á hljóðfæri sitt. „Moskva við Hud-
son-fljótiðu er fyrsta grínmynd
leikstjórnans í háa herrans tíð.
Mazursky hóf feril sinn með
myndum í grín-stíl, hann fjallaði
um hippana og fyndnari hliðar
hjónabandsins, og nú er hann
sem sagt kominn í hring.
„Moskva við Hudson-fljót“, er
geysileg ádeila á Sovétríkin sagði
mér nýfrelsaður sósíalisti sem sá
myndina erlendis og við skulum
vona að hann fari ekki með rangt
mál.
í hlutverki saxófónleikarans og
flóttamannsins Vladimirs Ivanoff er
Robin Williams. Innan skamms
veröa sýndar hér í Reykjavík
hvorkl fleiri né færri en tvær mynd-
ir meö þessum ágæta leikara,
Garp og Moskva. Sú síöarnefnda
veröur að öllum líkindum sýnd fyrr;
hver veit nema hún sé þegar kom-
in í Stjörnubíó.
Hugmyndin aö þessari kvik-
mynd getur varla talist frumleg,
svo algengt er aö fólk flýi yfir, en
ekki má gleyma aö myndin er gerö
af Bandaríkjamönnum. Þaö bar
ekkl á ööru, þegar myndin var
sýnd vestanhafs snemma á þessu
ári, en aö Bandaríkjamönnum lík-
aöi myndin, þar sem hún naut tals-
verðra vinsælda. Óhætt er aö full-
yröa aö „Moskva" er vinsælasta
myndin sem Mazursky hefur gert.
Þaö merkilega viö leikarana er
aö fæstir eru bandarískir. Ef vel er
aö gáö, þá sést aö meirihlutinn er
af sovéskum uppruna; flóttamenn.
Konan, sem leikur skvísuna í lífi
Ivanoffs, er aö vísu kúbönsk, heitir
hún Maria Conchita Alonso og af-
rekaöi hún aö vera feguröardrott-
ing Venezúela áriö 1975 (flutti
þangaö ung og þaöan til Júessei).
Meöal sovésk-ættaöra leikara í
„Moskvu viö Hudson-fljót" eru
Savely Kramarov, sem leíkur
KGB-agent; Alexander Beniam-
inov, sem leikur afann, lék í sinni
fyrstu mynd áriö 1925; Elya Bask-
in, hún flúöi til Vínar; Yakov Smir-
noff, sem flúöi áriö 1977, þar sem
hann þoldi ekki ritskoöunina
heima fyrir. Allir eru nú bandarískir
rikisborgarar.
HJÓ.
Robin Williams í hlutverki sovéska saxófónleikarana og flóttamanns-
ina Vladimirs Ivanoff.