Morgunblaðið - 04.11.1984, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1984
95
„Littu ekki svona Michael," sagöi Salzman, „þú ert enginn Car
Grant.“
„Þú tekur ekki aö þér aö leika
í kvikmynd meö því hugarfari að
hún sé tómt rusl en þig vanti
peningana. Ég geri þaö sem mér
þykir gaman aö og geng svo úr
skugga um aö ég fái sem mesta
peninga útúr því. Ég hugsa sem
svo aö ef ég ætla aö vinna, þá
eiga einhverjir eftir aö græöa
ótæpilega á því og ég verö einn
af þeim.u
Þannig talar breski leikarinn
Michael Caine. Hann leikur nú um
þessar mundir í hverri myndinni á
fætur annarri og allar gera þær
þaö mjög gott og er Caine þakk-
aö þaö sérstaklega. The Honor-
ary Consil, Educating Rita og
Blame it on Rio eru myndir meö
honum, sem sýndar hafa verið
hér á síöustu mánuöum og enn er
veriö aö sýna. Hann hefur leikiö í
yfir 50 myndum og þrisvar sinn-
um hefur hann veriö útnefndur til
Óskarsverölauna fyrir Alfie,
Sleuth og nú síöast Educating
Rita.
En þú getur ekki setiö og beöiö
eftir því aö þú fáir upp í hendurn-
ar hlutverk, sem þú hlýtur útnefn-
ingu fyrir,“ segir hann og
cockney-framburöurinn, sem
hann er frægur fyrir, leynir sér
ekki. „Ég meina, þessi mynd (ER)
er verulega fyndin en þaö fær
enginn Óskarsverölaun útá hana.
Þaö má vel vera aö hún hali inn
eins og 50 eöa 60 milljónir doll-
ara, sem er jafnmikilvægt aö mér
finnst. Ef menn veröa gjaldþrota
á mynd, sem ég leik í, fæ ég aldr-
ei aö vinna fyrir þá framar.“
Hann viöurkennir aö hann sé
vinnualki og getur ómögulega
tekiö sér meira en sex vikna frí
frá störfum. Leikarar í Hollywood
nota hástemmd lýsingarorö þeg-
ar þeir ausa lofi á Michael Caine.
En hann hefur auðvitaö átt sínar
döpru myndir eins og The
Swarm eöa Flugnagerið en í
þeirri eltist hann viö banvænar
býflugur. Hann var nýlega spurö-
ur aö því hvers vegna í ósköpun-
um vandaöur leikari eins og hann
heföi tekiö aö sér hlutverk í slíkri
mynd og hann svaraöi:
„Tækniatriöin fóru með
stjörnuhlutverkiö í The Swarm.
Og ef stjarnan gengur ekki í
áhorfendur situr þú uppi meö lé-
lega mynd. Sami framleiöandinn
geröi kvikmynd meö Paul New-
man og Steve McQueen um elds-
voöa (Towering Inferno). Nú,
bölv... tækniatriöin voru ákaf-
lega góö og vönduö í þeirri mynd
og geröu heilmikiö gagn, þannig
aö myndin varö vinsæl. Ef tækni-
atriðin heföu runniö út í sandinn
heföi myndin gert þaö líka, sama
hverjir heföu leikiö i henni.
Þaö er eitt sem þú lærir eftir
því sem á líöur og þaö er þetta:
Aö leika ekki í kvikmynd ef aörir
en þú sjálfur bera ábyrgð á vin-
sældum hennar. Þess vegna leik-
ur þú ekki annaö en aöalhlut-
verkin. Mér er ekkert um það gef-
iö aö leika minniháttar gestahlut-
verk, vegna þess aö ef myndin er
svo álitin ömurleg man fólk aö-
eins eftir nafninu mínu. Þaö er
frekar barnalegt aö láta einhverja
aöra sjá um aö lækka þig i áliti.“
Caine heldur því fram aö þaö
séu ávallt í gangi dulbúin sam-
særi um aö láta stjörnur falla í
áliti. „Þú yröir undrandi á því
hversu mörgum af þess háttar
hlutum ég hef oröiö vitni að,“
segir hann. „Fólkiö í kringum þig
og sem vinnur fyrir þig er oft
hræöilega öfundsjúkt og reynir
aö eyöileggja fyrir þér. Einhver
segir viö þig: „Hefur þú litiö inn í
hitt eöa þetta búningsherbergiö?
Þar eru tveir sófar.“ Þannig lag-
aöir hlutir fara aö beinast aö þér.
Keltinn í mér tekur eftir því en
ekki cockney-parturinn, held óg.“
Caine segist halda áhuganum
á starfinu vakandi meö þvi aö
hoppa í gerólík hlutverk hverju
sinni, líka til aó halda sér stööugt
í vinnu. Enginn framleiöandi mun
koma til meö aö biöja Clint
Eastwood aö gera eitthvaö sem
skemmt gæti ímynd hans. Rétt
eins og ertginn framleiöandi á eft-
ir aö biöja Robert Redford aó
leika feitan alkóhólista. Óvenju-
legu handritin renna til Caine.
„Margar bandarískar kvik-
myndastjörnur mæta til upptöku
og ef þær eiga aö fara meö fleiri
en þrjár setningar segja þær: „Ég
fer ekki aö blaðra allt þetta.“ Þeir
leikarar vilja ekki samtöl. f has-
armynd veröur þú aö eiga þér
ímynd, sem allir þekkja og þú
hvikar hvergi frá henni. En bresk-
ir leikarar segja: „En gaman.
Þetta er frábært hlutverk. Ég fæ
aö halda margar ræður.“
Fyrsta myndin, sem Caine lék
aöalhlutverkið í var The Ipcress
File. Þaö varö heilmikiö mál út af
því aö Caine vildi vera meö gler-
augu í myndinni, en framleiöand-
inn, Harry Salzman, lagöi á sig
mikiö erfiöi til aö fá hann ofan af
því.
„Þaö hefur aldrei nokkur maö-
ur meö gleraugu leikiö aöalhlut-
verkið í kvikmynd," sagöi hann.
„Hvaö meö Cary Grant?”
spuröi Caine.
„Láttu nú ekki svona, Michael,"
sagði Salzman, „þú ert enginn
Cary Grant.“
Caine er minnugur þess aö
Salzman setti nafnið hans ofar
titli myndarinnar, en þaö var í
fyrsta skipti, sem nafn hans hlaut
þann sess á hvíta tjaldinu. „Þaö
er á engan hátt gert til aö slá þér
gullhamra," sagöi Salzman. „Ég
sá þaö bara í hendi mér aö ef viö
settum ekki nafnió þitt á undan
titlinum, gæti fólk haldiö aö viö
teidum þig ekki stjörnu myndar-
innar. Og ef viö teljum þig ekki
vera stjörnuna, hvers vegna ættu
þá aörir að gera það?“
Caine vonast alltaf til aö geta
leikiö meö gömlu vinunum sínum,
þeim Sean Connery og Roger
Moore, sem vildu helst leikstýra
hverjir öörum. Þá komust þeir að
þvi aö til þess aö svo mætti vera
yröi aö gera níu myndir á tíu ár-
um.
Þegar taliö berst aö leiklistinni
neitar Caine því aö til séu leik-
hæfileikar. „Máliö er bara þaö, aö
til er fólk sem leikur sæmilega og
fólk, sem gerir þaö fullkomlega
rétt. Þú hugsar, sýnir viöbrögö og
hlustar á hvaö mótleikari þinn er
aö segja frekar en aö standa og
bíöa eftir aö rööin komi aö þér aó
segja eitthvaö. Þaö er listin aö
leika í kvikmyndum.”
— ai
FRÉTTAPUNKTAR
Draugagangur bannaöur. Ghostbusters. Velþekkt skilti í USA þessa
dagana.
Þá bendir flest til þess aö
Ghostbusters veröi vinsælasta
mynd ársins í Bandaríkjunum.
Hún er nú komin talsvert framúr
Indiana Jones and the Temple of
Doom, hvaö aösókn snertir, og
malar enn gulliö. Þaö má segja aö
þessir niöurkvaöníngar séu svo
sannarlega yfirnáttúrlegir.
En hætt er viö aö John Belushi
snúi sér oft viö í gröfinni, því hann
átti hugmyndina aö þessari grín-
ádeilu á hryllings- og drauga-
myndir, ásamt Dan Aykroyd.
Áfram meö Belushi. Fyrir
nokkru kom út bókin Wired, en
þar rekur Bob Woodward, (All
the Preaident’s Men), siöustu
æviár og einkum daga þessa
meinfyndna leikara og háöfugls
sem aö lokum drap sig á of stór-
um skammti af kókaínblönduðu
heróíni, („speedball").
Bók rannsóknarblaöamannsins
hefur fengiö frekar fálega dóma
þar vestra, þykir bera of mikinn
keim af hreinræktaöri söluvöru
auk þess sem Woodward er ásak-
aður um aö blanda mörgum
stjörnunöfnum inní textann sem
eiga þangaö ekkert erindi.
Fyrir á aö giska hálfu ööru ári
áskotnaöist mér ein skemmtileg-
asta bók um kvikmyndagerö og
baktjaldamakkiö (aö Studio e.t.v.
undanskilinni). Nefnist hún
Adventures in the Screen Trade.
Furöulegt má teljast aö þessi
hispurslausa og meinhæöna lýs-
ing William Goldmans, (Butch
Cassidy and the Sundance Kid,
the Marathon Man, o.fl. o.fl.), á lífi
kvikmyndageróarmanna, hrossa-
kaupunum og öllu bannsettu svín-
aríinu vestur í 'enni Hollywood, er
ekki enn komin í bókaverslanir
hérlendis. Aö auki er Adventures
in the Screen Trade ágætis
kennslubók í hvernig skrifa á
kvikmyndahandrit, enda er höf-
undur tvöfaldur Oscarsverölauna-
hafi í þeirri grein.
Þaö á aö reyna aö þurrmjólka
„geimálfinn góöa“, E.T., aö sumrí,
en ætlunin er aö dreifa fjölda
nýrra eintaka af myndinni um
Bandaríkin og Kanada, þver og
endilöng.
Universal-menn óttast nú sjálf-
sagt aö Ghostbusters ryöji E.T.
úr efsta sæti listans yfir vinsæl-
ustu myndir allra tíma, en munur-
inn er nú u.þ.b. „litlar" 30 millj. $
Mikla athygli vekur hvarvetna
kvikmyndin El Norte, tragi-
kómedía gerö af Gregory Nava.
Fjallar hún um haröa lífsbaráttu
systkina frá Guatemala, en þau
hafa komist á ólöglegan hátt til
Los Angeles.
Nýjasta mynd Coppola, Cotton
Club, gerir aöstandendum hennar
lífiö leitt. Myndin hefur hækkaö
rosalega í framleiöslu, fyrsta
áætlunin hljóðaöi uppá 25 millj.
dala, nýjustu tölur eru hins vegar
tæpar 50. Engin furöa þó fram-
leiöandinn, Bob Evans, (China-
town o.fl.), sé ekki svefnsamt um
þessar mundir. Þess má geta aö
talsvert er í land áöur en Cotton
Club veröur fullgerö.
Ætlunin er aö frumsýna Cotton
Club um miðjan desember, nk.,
og ef aö líkum lætur veröur hún
komin í Bíóhöllina skömmu síöar.
Önnur mynd sem beöiö er eftir
með eftirvæntingu, og líkleg er til
afreka er Amadeus Milos For-
mans. Hún verður einnig frum-
sýnd í desember, en kvisast hefur
út aö meö kvikmyndagerö hins
fræga leikhússverks hafi Forman
gert sitt mesta snilldarverk til
þessa.
ADVENTURES
IN iBaraii
THE
SCREEN
TRADE
Kápa bókarinnar Adventurea in
the Screen Trade.
Ætli sé nokkuö verömætt eftir í
Námum Salómons konungs?
Þaö er hald þeirra Cannon-
manna, Glóbusar og Golans, því
þeir eru aö undirbúa enn eina
kvikmyndagerö eftir hinni frægu
ævintýrasögu H. Rider Haggards.
Richard Chamberlain mun fara
meö aöalhlutverkiö í myndinni
sem á að taka í Suöur Afríku.
S.V.