Morgunblaðið - 04.11.1984, Síða 34
98
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1984
Hættir People
Express að fljúga
til Bretlands?
London, 2. nóv. AP.
FORRÁÐAMEN N nugfélagsins
People Express, sem boóið hefur mjög
ódýr fargjöld á flugleiðinni yfir Atl-
antshaf, hafa gefið í skyn að þeir
kunni að hætta að fljúga til Bretlands
og lenda í staðinn einhvers staðar á
meginlandi Evrópu, ef bresk stjórn-
völd verða ekki við tilmælum þeirra
um að auka tíðni flugferða félagsins í
Bretlandi.
Harold Pareti, framkvæmda-
stjóri People Express, sagði fyrir
skömmu að bresk yfirvöld hefðu í
engu svarað tilmælum félagsins frá
því í júlí, aö félagið fái að fljúga
a.m.k. tvisvar á dag milli Newark í
Bandaríkjunum og Stansted-flug-
vallar í norðurhluta London. „Ef
leyfið verður ekki veitt,“ sagði Par-
eti, „verðum við að fara að leita að
nýjum lendingarstöðum á megin-
landinu þar sem raunsæi og við-
skiptasjónarmið eru ríkjandi."
Stjórnarmenn mæta til yfirheyrslu í Sakadémi Reykjavikur árið 1964.
starfsfólksins með ráðninguna,
mótmælti henni og krafðist þess
að ráðningartími nýráðins útibús-
stjóra yrði ekki framlengdur eftir
6 mánaða setningartíma.
Starfsfólk bankans samþykkti
síðan að mæta ekki til vinnu
mánudaginn 2. nóvember i mót-
mælaskyni. Ekkert af starfsfólki
bankans mætti til vinnu þann dag,
nema yfirmenn. Stóðu þeir í
ströngu við að bjarga víxlum á
síðasta degi undan afsögn og tókst
það í samvinnu við borgarfógeta-
skrifstofuna. Eftirmál þessa verk-
falls urðu þau að saksóknari rikis-
ins hóf rannsókn á málinu að eigin
frumkvæði. Stjórn Starfs-
mannafélagsins, þau Adolf
Björnsson, formaður, Sigurður
Guttormsson, varaformaður,
Þorsteinn Kjartan Friðriksson,
ritari, Gunnlaugur G. Björnsson,
gjaldkeri, og Þóra Ásmundsdóttir,
meðstjórnandi, voru tekin til yfir-
heyrslu í Sakadómi Reykjavíkur.
Saksóknari höfðaði síðan opinbert
mál á hendur þeim. Þau voru
sýknuð í dómþingi sakadóms
Reykjavíkur. Saksóknari áfrýjaði
málinu til Hæstaréttar en þar féll
dómur þannig að stjórnarmenn-
irnir voru dæmdir til að greiða
3.000 sekt til ríkissjóðs hvert um
sig og komi 6 daga varðhald í stað
sektar hvers um sig, ef hún yrði
ekki greidd. Ákærðu voru einnig
dæmd til að greiða allan kostnað
sakarinnar. Stjórnarmennirnir
greiddu aldrei sektina en voru þó
af einhverjum ástæðum aldrei lát-
in sæta varðhaldi.
I bókinni “Saga Starfsmannafé-
lags Útvegsbankans 1933—1983“
eftir Guðjón Halldórsson, sem
grein þessi er byggð á, segir m.a.:
„Á móti öllum ósigrinum gagnvart
bankaráði Útvegsbankans og með
dóm Hæstaréttar á herðunum var
það stórfelldur sigur að sjá glæsi-
legan árangur af þessari hörðu
baráttu. (Vísað til þess að þá hafði
bankamaður verið ráðinn banka-
stjóri Búnaðarbankans.) Þótt svo
færi, að starfsmenn Útvegsbank-
ans sætu uppi með ritstjórann
sem útibússtjóra á Akureyri, fyrir
atbeina meirihluta bankaráðs Út-
vegsbankans, þá átti það eftir að
koma í ljós, að aldrei aftur hefur
slikur hráskinnsleikur verið við
hafður gagnvart starfsmönnum
Útvegsbankans."
BILVANGUR S/=
L I I ! I
HOFÐABAKKA-9 • 124 RGYKJAVIK 5IMI 687300
1...L-..1
Stjórn Starfsmannafélags Útvegsbankans árið 1964 hittist 20 irum síðar til að minnast mótmælaaðgerða starfsfólks
Útvegsbankans fyrir 20 árum. F.v.: Þorsteinn Friðriksson, Sigurður Guttormsson, Adólf Björnsson, Þóra Ásmunds-
dóttir og Gunnlaugur G. Björnsson.
Stjóm Starfsmannafélags Útvegsbankans 1964:
Kom saman til að minnast mót-
mælaaðgera fyrir tveim áratugum
SlÐASTUÐINN föstudag komu snæða saman hádegisverð. Þetta liðin frá því að nær allt starfsfólk
fimm fyrrverandi og núverandi fólk skipaði stjórn Starfsmannafé- bankans, hátt í 200 manns, fóru f
starfsmenn Útvegsbanka fslands lags Útvegsbankans árið 1964 og var eins dags verkfall til að mótmæla
saman í Útvegsbankanum til að það að minnast þess að 20 ár voru ráðningu í stöðu útibússtjóra bank-
ans á Akureyri.
Það var búið að vera mikið bar-
áttumál félagsins að ekki væri
gengið fram hjá starfsfólki bank-
ans við ráðningar i eftirsóknar-
verð störf innan bankans. í októ-
ber 1964 varð sá atburður í þess-
um efnum sem varð til að starfs-
fólk bankans greip til þessara ein-
stæðu mótmælaaðgerða. Banka-
ráð Útvegsbankans réð þá mann í
stöðu útibússtjóra á Akureyri sem
aldrei hafði starfað í bankanum
eða að bankastörfum en auk hans
höfðu sótt um starfið fimm starf-
andi bankamenn i Útvegsbankan-
um og hafði starfsmannafélagið
mælt með að einhver þeirra yrði
ráðinn. Stjórn starfsmannafélags-
ins brást hart við, lýsti óánægju
Uri
Vegna mjög hagstæöra samninga
bjóöum viö nú nokkrar Opel
Ascona bifreiöir á lækkuöu verði.
375.330-