Morgunblaðið - 04.11.1984, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1984
103
Ragnar Jóhannesson
fyrrum forstjóri kvaddur
Ragnar Jóhannesson var fædd-
ur í Reykjavík þann 26. janúar
1918. Foreldrar hans voru hjónin
Jóhannes Kr. Jóhannesson, húsa-
smiður, sem átti við margra ára
vanheilsu að stríða. Jóhannes og
Ólafur Jóhannesson, athafnamað-
urinn mikli á Patreksfirði, voru
samfeðra, hálfbræður. Kona J6-
hannesar og móðir Ragnars var
Elísabet Davíðsdóttir, hún-
vetnskrar ættar. Hún var alsystir
Steingríms skólastjóra Davíðsson-
ar og Lúðvíks Norðdal læknis, sem
var móðurafi Davíðs borgarstjóra
Oddssonar. Þau systkini voru niðj-
ar séra Friðriks Thorarensens á
Breiðabólstað í Vesturhópi. Sú
ættkvísl er ein af fjórum Thorar-
ensen-ættkvíslum Davíðs borgar-
stjóra, sem er einskonar fjórfald-
ur samanþjappaður oxo-teningur
úr bláu valdsmannablóði Thorar-
ensena, afkomenda Þórarins
sýslumanns á Grund í Eyjafirði og
Sigríðar systur Ólafs ættföður
Stephensena. Þá má bæta því hér
við að borgarstjórafrúin er einnig
Thorarensen. Svo að borgin ætti
að vera á uppleið eins og ættin.
Ekki var ætlunin að drukkna
hér í ættkvísl Davíðs, heldur að
minnast náins framliðins frænda
hans, Ragnars Jóhannessonar,
sem verður lagður til hinztu hvílu
frá Dómkirkjunni á morgun. Það
má með sanni segja, að þessi hálf-
gleymdi vinur minn frá fornu fari
hafi bókstaflega dottið lifandi út
úr hringiðu lífsins og lifandi
tengsla fyrir mörgum árum vegna
ótímabærs hrörnunarsjúkdóms.
Þannig detta líka vinir og kunn-
ingjar inn í líf vort á lestargangi
lífsins, stundum af hreinni tilvilj-
un og út aftur af svipaðri ástæðu
eða bara að ástæðulausu.
Það var allt annað en lullandi
lestargangur þegar við Ragnar Jó-
hannesson kynntumst af hreinni
tilviljun í hringiðu hraðans í
sjálfri Ameríku á styrjaldarárun-
um; fyrst í Los Angeles, þegar
Ragnar kom þangað i heimsókn í
jólaleyfi og síðar í New York. Þar
dvöldumst við báðir við nám.
Ragnar fékkst seinna við kaup-
sýslu og fyrirgreiðslu á vörum til
íslands. Þá vorum við báðir ungir
og hraustir og fórum geyst og
glannalega. Fátt beit á okkur eins
og yfirferðin var mikil á þessum
glöðu og skemmtileguu jazz-árum
hinna miklu og stóru dillandi
dansbanda. Þar fyrir vestan náði
Ragnar sér í lífsförunautinn, am-
eríska myndar- og sómakonu frá
Pennsylvaníu, Stasiu Jóhannes-
son. Þá var oft sungið við raust:
„Pardon me boys is that the
Pennsylvania Station? eða Pardon
me boys, is that the Chattano-
ogga-choo-choo?“
Við heimkomu að striðslokum
stofnsetti Ragnar fyrirtækið
Tékkneska bifreiðaumboðið. Allt
lék í lyndi og fyrirtækið og for-
stjórinn stóðu á styrkum og frísk-
um fótum og fjöldamörgum Skod-
um, sem runnu út eins og blóm-
legar tékkneskar heimasætur i öll-
um bílaskortinum eftir styrjöld-
ina miklu. Fætur og rætur fyrir-
tækisins fúnuðu með hrakandi
heilsu forstjórans unz eldri sonur-
inn tók við af föður sínum og lyfti
merkinu hátt á ný. Nú eru þeir
þrír helztu og fyrstu máttar-
stólpar fyrirtækisins gengnir á
fund feðra sinna. Auk Ragnars
voru það sómamennirnir Gunnar
heitinn Norland, menntaskóla-
kennari og Ragnar Tómas Árna-
son, útvarpsþulur, sem er nýlega
látinn.
Eftirlifandi eiginkonu hans,
Stasíu, og ágætum og vel gerðum
börnum þeirra hjóna, sendi ég ein-
lægar samúðarkveðjur sem og
tengdadætrum og barnabörnum.
Börn þeirra eru: Ragnar, forstjóri,
Dennis, arkitekt og Linda lækna-
ritari.
Ragnar var ljúfmenni og góð-
menni. Fólk fann fljótt hið hlýja
hjarta hans ef það náði að kynnast
honum á annað borð. Þeir vitru
segja, að ekkert sé göfugra undir
sólinni en að vera góður maður.
Ég þakka honum allar gamlar,
góðar stundir, sem við áttum sam-
an í þá gömlu góðu daga, ljúfar
stundir, sem aldrei svífa til baka.
Nú þjáist hann ekki lengur, en sef-
ur rótt um eilífa nótt þurfandi
hvíldar, þreyttur, þjáður og hrjáð-
ur af langvarandi og vonlausri
vanheilsu. Þökk sé fyrir, að loks-
ins linnir þjáningum þess góða
drengs.
„Hin gömlu kynni gleymast ei...“
Örlygur Sigurðsson
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og úttör,
SIGRÚNAR BJARGAR HÓLMGEIRSDÓTTUR,
Herjóltsgötu 34, Hafnarfiröi.
Vilhjálmur Baaai Kriatinsaon og börn,
Hólmgeir Árnason, Sigrföur Sigurbjörnsdóttir.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
EDWARD J. FÆRSETH.
Hulda Steingrímsdóttir Færseth,
Unnur Færseth, Siguröur Friöriksson,
Steingrimur Færseth, Þórunn Steingrimsdóttir,
Einar Færsoth, Dagmar Gisladóttir,
Georg Turner Færseth og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir samúö og hlýjar kveðjur viö andlát og útför
eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
HARALDS V. ÓLAFSSONAR,
fv. forstjóra og aöalræólsmanns.
Þóra Finnbogadóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Lokað
Allar deildir fyrirtækisins veröa lokaöar, mánudaglnn 5. nóv-
ember vegna útfarar
RAGNARSJÓHANNESSONAR,
fyrrum forstjóra.
Jöfur hf.,
Nýbýlavegi 2, Kópavogi.
Legsteinar
granít — marmari
Opiö alla daga, xf
einnig kvöld Unnarbraut 19, Seltjarnarnesi,
og helgar., símar 620809 og 72818.
Útboðsskilmálar, sem eru hliðstæðir þeim sem gilt hafa í fyrri útboðum,
liggja frammi ásamt tilboðseyöublaði í afgreiðslu
Seðlabankans, en þeir eru helstir:
1. Gert sé tilboö í lágmark 5 víxla hvern að fjárhæð kr. 50.000.-
þ.e. nafnverð kr. 250.000.-, eöa heilt margfeldi af því.
2. Tilboöstrygging er kr. 10.000.-
3. Útgáfudagur víxlanna er 9. þ.m. og gjalddagi 8. febrúar 1985.
4. Ríkisvíxlarnir eru stimpilfrjálsir og án þóknunar.
5. Um skattlega meðferð þeirra gilda sömu reglur og hverju
sinni um innstæður í bönkum og sparisjóðum.
Ríkisvíxlar eru ein hagkvæmasta skammtímaávöxtun sem völ er á. Meðaltals ársávöxtun í undangengnum útboðum hefur verið sem hér segir: Júlíútboð 25,6% ágústútboð 25,8% septemberútboð 27,8% októberútboð 27.7%
Skilafrestur tilboða er til kl. 14:00 miðvikudaginn 7. nóvember 1984.
Tilboðum sé skilað til lánadeildar Seölabanka íslands
Hafnarstræti 10, Reykjavík fyrir þann tíma.
Reykjavík 3. nóvember 1984.
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS