Morgunblaðið - 04.11.1984, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1984
105
Ríó skemmtir eftir 7 ára hié
„VIÐ REIKNUM meó að syngja og tralla í rúm-
lega hálfan annan tíma og höfum verið að efa upp
gömul lög og ný,“ segir Olafur Þórðarson, tónlist-
armaður, þriðjungur Ríó-tríósins, sem nestkom-
andi föstudagskvöld kemur fram ( Broadway (
fyrsta sinn í sjö ár. Æfingar tríósins og fimmtán
manna hljómsveitar undir stjórn Gunnars Þórðar-
sonar hafa staðið yfir að undanfórnu „og gengið
furðulega vel“, að því er Ólafur sagði. „Mér heyrist
að þetta sé nokkurnveginn eins og það var hjá
okkur í gamla daga,“ betti hann við. „Raddirnar
féllu saman strax á fyrstu efingunni og við mund-
um meira að segja nokkurnveginn texta, sem við
höfðum ekki sungið ( fjöldamörg ár.“
Ríó mun skemmta gestum ( Broadway á föstu-
dags- og laugardagskvöldum á nestunni. Myndin
var tekin af þeim í vikunni þegar þeir mátuðu nýju
fötin. Frá vinstri: Ágúst Atlason, Helgi Pétursson
og Ólafur Þórðarson.
Nýtt fyrirtæki Guðna Jónssonar:
Starfsráðgjöf fyrir ein-
staklinga og fyrirtæki
FYRIRTÆKIÐ Ráðgjöf og ráðningaþjónusta var nýlega stofnað í
Reykjavík. Guðni Jónsson er eigandi þess og lýsti hann tilganginum
með starfseminni á þann veg að etlunin veri að veita einstaklingum og
fyrirtekjum ráðningaþjónustu og starfsráðgjöf. Þá teki hann að sér
skoðana- og markaðskannanir, almenningstengsl, freðslu- og út-
breiðslustarf og almennt þá fyrirgreiðslu sem alhliða þjónustufyrirteki
af þessu tagi geti veitt „Þetta er yfirgripsmikið,“ sagði Guðni „en ég
byrja á ráðningaþjónustunni og almennri fyrirgreiðslu."
Guðm Jónsson sagði að oft
gengi erfiðlega fyrir fyrirtæki
að fá rétta menn í ábyrgðar-
stöður. Þeir sem í slíkum stöð-
um sætu vildu oft breyta til en
hikuðu við að hafa sig í frammi
og svara auglýsingum af ótta
við að óþörf leiðindi sköpuðust á
vinnustað, vegna þess að til
dæmis væri ekki staðið við
fyrirheit um þagmælsku. Hið
sama mætti segja um fyrirtæki,
þau kysu síður að auglýsa eftir
starfsmönnum undir eigin
nafni, þar sem það gæti einnig
skapað óþægindi innan dyra hjá
þeim.
„Til að auðvelda fyrirtækjum
að komast hjá þeim hindrunum
sem þarna eru, býð ég tvenns
konar þjónustu," sagði Guðni. „1
fyrsta lagi tek ég að mér að
leita að hæfum starfsmanni án
þess að nafn fyrirtækisins komi
fram og í öðru lagi að vera
milligöngumaður fyrir fyrir-
tæki sem sækist eftir starfs-
manni og auglýsir undir fullu
nafni. Þjónusta af þessu tagi
ætti aö spara stjórnendum
fyrirtækja mikla vinnu og gera
þeim kleift að vega og meta alla
umsækjendur samtimis á
grundvelli þeirra upplýsinga
sem ég afla.
Einstaklingum í atvinnuleit
býð ég alla almenna þjónustu.
Hér er um mikið trúnaðarstarf
að ræða, ekki sist i þágu þeirra
sem gegna ábyrgðarstörfum. Af
samtölum við fólk hef ég kynnst
því að þeir sem valist hafa i
ábyrgðarmikil störf og hafa það
i sjálfu sér gott vilja margir
hverjir finna kröftum sinum
nýtt viðnám. Þessu fólki vex
það hins vegar í augum að hefja
atvinnuleit á hinum almenna
markaði. Því vil ég bjóða aðstoð
mina. Raunar var vitneskja mín
um viðhorf margra í þessu efni
til þess að ég réðst i að stofna
fyrirtækið Ráðgjöf og ráðninga-
þjónustu," sagði Guðni Jónsson.
„Þess fyrir utan hef ég sér-
stakan áhuga á að aðstoða kon-
ur sem horfið hafa af vinnu-
markaði en vilja láta að sér
kveða þar að nýju. Þær búa yfir
reynslu og þekkingu sem þær
vilja nýta með því að sinna
tímabundnum verkefnum eða á
annan veg sem best samrýmist
öðrum skyldum þeirra. Fólk í
þessari aðstöðu þarf oft aðeins
örlitla hvatningu til að isinn
brotni.
Starfsemin á síður en svo að
Talskólinn
hefur sitt
annað starfsár
TALSKÓLINN hefur nú hafið
annað starfsár sitt en hann var
stofnaður 1. október á síðasta ári.
Skólastjóri Talskólans er Gunnar
Eyjólfsson leikari og kennir hann
jafnframt taltækni og raddbeit-
ingu. Aðrir kennarar við skólann
eru Guðrún Stephensen, Baldvin
Halldórsson, Kristín Anna Þórar-
insdóttir, Þórhallur Sigurðsson,
Tryggvi Þór Aðalsteinsson,
Kristbjörg Kjeld og Mathew
Driscoll. Blm. spjallaði við Gunn-
ar Eyjólfsson í vikunni, um skól-
ann og starfsemi hans.
„Talskólinn hefur fallið i góð-
an jarðveg hjá fólki og á liðnu
starfsári sóttu á þriðja hundrað
nemendur hin ýmsu námskeið
skólans," sagði Gunnar. „Vin-
sælust virðast vera námskeið i
taltækni og framsögn, sem
kennd eru fimm vikur i senn. Þá
eru einnig haldin námskeið i
ræðumennsku, sem byggjast
upp á framsögn, taltækni og
ræðuflutningi. Kennari er
Tryggvi Þór Aðalsteinsson. Þá
verður boðið upp á námskeið
fyrir fólk sem stöðu sinnar
vegna þarf oft að gefa skýrslur
eða flytja ræður á ensku eða
flytja mál sitt fyrir útlendinga
á ráðstefnum. Kennari er Math-
ew Driscoll."
Hvað er átt við með taltækni?
„Taltækni er undirstaða þess
að geta tjáð sig, þ.e. öndunar-
þjálfun, hljóðmyndun og radd-
beiting. Nemendur guðfræði-
deildar og nemendur i kennslu-
verða bundin við höfuðborg-
arsvæðið þvi að ég hef mikinn
áhuga á því að geta aðstoðað
einstaklinga og fyrirtæki utan
þess við allt það sem þeim má
að gagni koma með almennum
erindrekstri i opinberum stofn-
unum og hjá einkaaðilum, við
undirbúning funda, innheimtur,
pantanir eða útvegun varahluta
svo að dæmi séu nefnd.
í stuttu máli vil ég leggja mig
fram um að gera mönnum lífið
auðveldara og spara þeim um-
stang og áhyggjur sé þess kost-
ur,“ sagði Guðni Jónsson að lok-
um.
Gunnar Eyjólfsson, skólastjóri
Talskólans.
fræðum við Háskóla íslands fá
t.d. þjálfun við Talskólann i
taltækni og framsögn og ýmis
fyrirtæki hafa sent starfsfólk
sitt í þjálfun til okkar. Þeirra á
meðal má nefna Flugleiðir,
Heildverslunina Heklu og
Rikisútvarpið.“
Hverjir eru það sem mest
sækja námskeið skólans?
„Raddþjálfun er nauðsynleg
fyrir alla þá sem mikið þurfa að
beita röddinni við vinnu sína.
Kennarar hafa til dæmis sótt
námskeið i mjög ríkum mæli og
eins fólk sem vinnur að félags-
og stjórnmálum, og er mjög
þarft fyrir það fólk að æfa sig i
ræðumennsku jafnframt radd-
þjálfuninni. Einnig hafa sótt
námskeið skólans, einstaklingar
sem vilja sigrast á feimni og
öðlast öryggi í framkomu."
Hvernig verður vetrarstarf-
inu svo háttað?
„Skólinn, sem er til húsa að
Skúlagötu 61, hóf vetrarstarfið
1. október sl. en sakir verkfalls
reyndist erfitt að auglýsa það.
Ný námskeið hefjast 12. til 13.
nóvember og standa fram i des-
ember. Kennt verður alla virka
daga frá kl. 14.00 til 19.00 en
ræðunámskeiðin eru haldin á
kvöldin. Námskeiðin í framsögn
og taltækni standa sem fyrr
segir yfir í fimm vikur. Kennt
verður tvisvar i viku, i tvær
klukkustundir hverju sinni. Þá
má geta þess að fyrirhugað er
að halda eftir áramót annars
vegar leiklistarnámskeið undir
leiðsögn Kristbjargar Kjeld og
hins vegar sérstök unglinga-
námskeið í framsögn fyrir fólk
á aldrinum 14 til 17 ára. Eldra
fólk kvartar gjarnan undan því
að unga fólkið sé ekki nógu
skýrmælt og nú hyggjumst við i
Talskólanum ráða bót á þvi
máli,“ sagði Gunnar að endingu.