Morgunblaðið - 04.11.1984, Side 46
110
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1984
_________________________________« 1«M umwrnl Pr»«
,j K«íurbu eimh\Jerjc* Hugmypyd
urn Vwje h/c»tt þú -forst ?*"
Ást er ...
... að vera stúlk-
an hans á strönd-
inni.
TM Reg. U.S. Pat. Oft — all rights reserveo
® 1979 Los Angetes Times Syndicate
Nei skipstjóri. Fyrst björjjum við
konum og börnum.
Með
morgunkaffiiiu
Ég hef ákveðið að temja mér ein-
beittara viðmót. Gerir þú nokkrar
athugasemdir við þá hugmynd?
HÖGNI HREKKVÍSI
——
Mótun íslenskra einstaklinga fer að stórum hluta fram í skólum landsins. Þessi mynd var tekin í Kennaraháskólan-
um fyrir nokkrum árum.
Sér grefur gröf...
Almennur borgari skrifar:
Eiríkur Brynjólfsson kennari
ritar kjallaragrein í DV fimmtu-
daginn 25.10. sl. og nefnir hana
„Á skítugum skóm“.
Uppfræðari íslenskrar æsku
veður þar á skítugum skóm með
miður fögru orðbragði ofan í
sjálfan sig, þar eð hann myndar
einn mikilvægan hlekk í því
þjóðfélagi sem við lifum í og hef-
ur með kennslustörfum tekið
virkan þátt í að móta það.
Frá hendi kennara þessa lands
koma þegnarnir út í atvinnulífið
og skapa eigin framtíð með
störfum sínum. Undirritaður er
afar þakklátur foreldrum sínum
og kennurum fyrir þær upplýs-
ingar sem þeir létu í té á sínum
tíma. Því miður hefur á síðustu
árum borið á að mati undirrit-
aðs, fremur harkalegu orðskrúði
á opinberum vettvangi, frá
mönnum er tilheyra stétt upp-
fræðara. Nálgast það að vera
endurspeglun sósíal-kommún-
ískra fræða, sem flætt hafa um
veröldina frá því fyrir aldamót
og hvergi hafa virkað rétt, en
eru þó í framkvæmd með vopna-
valdi á 2/6 hlutum þurrlendis
allrar jarðkringlunnar.
Til að forðast misskilning er
það ekki álit undirritaðs, að allir
kennarar aðhyllist stefnu Marx
og Engels. Slíkt væri forkastan-
legur dómur. Ég vonast aðeins
til að Eiríkur hafi ekki slík sam-
félög i huga, er hann ber saman
það íslenska við önnur samfélög
manna, sem hann hlýtur að gera,
er hann nefnir hið íslenska
„þjófafélag".
Frjálsræði íslenskra einstakl-
inga og starfshópa er með þeim
ágætum, að hver og einn ætti að
ábyrgjast varðstöðu um eigið
frjálsræði.
Mótun íslenskra einstaklinga
fer fram að mjög stórum hluta í
skólum landsins. Það þýðir í
raun og veru að kennarar sem
starfshópur, gætu með sam-
ræmdum aðgerðum sín á milli
mótað heilt þjóðfélag í rólegheit-
um á tiltölulega skömmum tíma.
Hvílíkt vald!!! Ekki getur undir-
ritaður annað en vonað að það
verði framkvæmt á jákvæðan og
ábyrgan hátt, börnum þessa
lands til góðs.
Það er næsta furðulegt að full-
trúi kennarastéttar skuli í ljósi
fyrrgreindra atriða leyfa sér að
halda því fram, að á fslandi sé
„þjófafélag" fólks. Mér þykir
hann vega djarflega að eigin
starfsstétt, þ.e.a.s. kennurum,
sem starfað hafa hér á landi á
undan honum og jafnvel að stór-
um hluta samtímis.
Vísa vikunnar
.Vitleysa'
segi, forsætis,4ftherra
. ná i rit- er . ’ MóUcrroinin i leiöara
r vcríö »» *ð
, iíi »»•* ,itov?*r«
.fur bess» viileysu. þvi «í
h.róaslur gegn ÞV1 »* “ "*'
„„„ h»upmátl»rtryge'ng"r‘
SgrfaurH«r»»n»onff
tóherr. »■" £
WT I á/a*r b-C. máHUUAH. vr
WT hefur forsaitisráöherra
sctja uppsagnarakva. . P
8trik' ‘ íhaTfatta atriöfverö-
fyrtr gerö hans (yrjr
aukningu samningstns.
Þó Denni sé nú húsbóndi og herra
hörkunni við Manga vart ég næ.
Mér fannst þetta ekkert vera verra
en venjulega er á þessum bæ.
Hákur
Hússtjórnarskóli Reykjavík-
ur starfar 9 mánuði á ári
Svar við lesendabréfi „konu við
Grenimel“:
Síðan haustið 1975 er starfsemi
Hússtjórnarskóla Reykjavíkur
þannig háttað: Á haustönn sept-
ember—desember eru starfrækt
ýmiss konar námskeið, mismun-
andi að lengd og með margvíslegu
efni, s.s. matreiðsla, fatasaumur,
vefnaður og jurtalitun. Á vorönn
er 5 mánaða hússtjórnarnámskeið
með heimavist fyrir þá nemendur
sem þess óska svo og dag- og
kvöldnámskeið eftir því sem hús-
næði leyfir.
Aðsókn að skólanum er ágæt og
nemendafjöldi á bilinu 480—510,
svo það sem „einhver" sagði við
„konu við Grenimel” um starfsemi
skólans er alrangt.
Ef nágrönnum hefur þótt lítil
umferð við skólann að undan-
förnu, eins og fram kemur í fyrr-
nefndu lesendabréfi, skal á það
bent, að verkfall BSRB stóð I tæp-
an mánuð og á meðan var að sjálf-
sögðu ekki starfað í skólanum við
Sólvallagötu.
Skrifstofa skólans er opin frá kl.
10—14 mánudaga til fimmtudaga.
Þar getur „kona við Grenimel" og
hver sem er fengið allar nánari
upplýsingar um skólastarfið.
Guðný Halldórsdóttir, form.
skólanéfndar,
Jakobína Guðmundsdóttir,
skólastjóri.