Morgunblaðið - 10.03.1985, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985
3
Lignano
VERÐ FRÁ
w
í 2 VIKUR
GULLNA STRÖNDIN
Aö dómi þeirra er til þekkja og hafa
samanburö er Lignano Sabbiadoro
perlan meöal baö- og sumarleyfis-
staöa á Ítalíu og hefur algjöra sér-
stööu vegna skipulags síns og aö-
stööu fyrir gesti sína. Þangaö
streymir fólk ár eftir ár og nú býöur
ÚTSÝN ferðir þangaö 12. áriö í röö.
Mjúkur sandur og aögrunn strönd-
in í Lignano gera hana að ákjósan-
legum leikvelli fyrir unga sem aldna.
Krakkar una sér liólangan daginn í
fjöruboróinu meðan áhyggjulausir
foreldrar skemmta sór í kúluspilinu
bocce eöa flatmaga í sólinni. Fjöl-
skyldan skreppur í ferö á dúnmjúk-
um öldum Adríahafsins í hjólabátum
sem alls staöar eru til leigu.
Lignano er sælureitur allrar fjöl-
skyldunnar, en unga fólkiö jafnt sem
hinir eldri sækja þangaó hvfld, til-
breytingu og fjölbreytta skemmtun
viö allra hæfi.
Ég óska Úlsýn til hamingju með að hafa á
sinum sncerum jafn frábœran fararstjóra
og hér starfar og skipuleggur kynnisferðir
frá Lignano. Framhaldsskólanemendur.
kennarar og fróðleiksfús alþýða æltu að
notfœra sér þessa einstöku möguleika til
upprifjunar og fyllingar á takmarkaðri
skólabókarþekkingu sinni á þróun mann-
lífs og menningar við Miðjarðarhaf.
Guðbjartur Gunnarsson og frú,
Akurgerði v/Nesveg,
Seltjarnarnesi.
Baðað
í sól og sælu
Reykjavík:
Austurstræti 17,
sími 26611
Akureyri:
Ráðhústorg 3,
sími 25000.
Frægustu
borgir
ítaliu
— sem þú getur komist í
ferð til Lignano og
Bibione
Feneyjar
Meðan þú dvelur í Lignano eða
Bibione ertu aðeins í klukku-
stundarfjarlægð frá einni fræg-
ustu borg heimsins, hinum
ævintýralegu Feneyjum, sem
varðveitir í byggingum sínum,
listaverkum og hefðum eitt
glæsilegasta tímabil mann-
kynssögunnar.
Flórens
Enginn staður í víðri veröld
getur státað af öðrum eins
listfjársjóðum og höfuðborg
endurreisnarinnar, renaissance,
Flórens. Hér hanga frumverk
meistara málaralistarinnar á
veggjum safnanna Uffizi, Pitti
o.fl. Lega borgarinnar við ána
Arne og allt yfirbragð hennar
er gætt einstæðum töfrum.
Róm
Borgin eilífa, höfuðborg hins
vestræna heims um aldir, sam-
ofin sögu og uppruna kristinnar
trúar og menningar og aðsetur
páfans. „Allar leiðir liggja til
Rómar“, er fornt orðtak, og enn
dregur hún til sín fleiri ferða-
menn en flestar aðrar heims-
borgir með ómótstæðilegum
krafti sínum og fegurð.
Bibione
VERÐ FRÁ
pl A
• y.. - 1 tl I -
í 2 VIKUR
Ef þú vilt spara í feröinni og
veija ódýrt sumarleyfi á sól-
ríkum, ómenguöum en
dæmigerðum ítölskum staö
meö nýrri fyrsta flokks
gistiaöstööu, þá hefur Út-
sýn fundið hann ffyrir þig í
Bibione. Víöáttumikil, sólrík
strönd ásamt ríkulegu gróö-
urfari leggjast á eitt aö gera
þennan vinalega feröa-
mannabæ, á strönd Adría-
hafsins, aö ákjósanlegum,
aölaóandi áfangastað í
sumarleyfinu. Bibione er
staösett 8 km vestan viö
Lignano og fljótiö Taglia-
mento skilur aö þessi tvö
/bæjarfélög, en aðeins um
20 mín. ferö er á milli í bíl.
Bibione er að mínu mati góður staður.
sérstaklega fyrir fjölskyldur. Hreinlaeti er
mikið, góð aðstaða við sundlaugar baeði
fyrir börn og fullorðna. tbúðirnar í Val-
bella eru mjög þœgilegar og vel búnar. Við
hjónin höfum dvalið hér i 3 vikur með sjö
ára dóttur okkar og þetta hefur vtrið full-
komið frí. Vonumst til að komast aftur til
Bibione neesta sumar. Ktrrar þakkir.
SvaJa Guðmundsdóttir,
Hátúni 24, Eskifirði.