Morgunblaðið - 10.03.1985, Side 4
4
MORGUNBLAÐID. SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985
Opna skíðaaðstöðu
á Skálafellsjökli
Höfn, 8. mars.
JÖKLAFEKÐIR á Höfn í Hornafirði er fyrirtæki sem hyggst bjóða
upp á ferðir á Skálafellsjökul fyrir skíðafólk og aðra sem áhuga hafa
á jöklaferðum.
Að sögn Gísla Hjálmarssonar,
sem er eigandi Jöklaferða ásamt
Gísla Geir Sigurjónssyni, verður
ekið upp í 1150 metra hæð í
snjóbíl, sem er sérstaklega vel
útbúinn til slíkra ferða. Leiðin
frá jökulrótum upp í þessa hæð
er um 9 km. Ferðin niður, ef far-
ið er eftir beinni línu á skíðum,
tekur u.þ.b. þrjá stundarfjórð-
unga.
A þessu svæði er einnig góð
aðstaða fyrir fólk á gönguskíð-
um og snjósleðum.
Um næstu mánaðamót verður
settur upp skáli fyrir 16 manns.
Einnig hyggjast þeir nafnarnir
setja upp toglyftu í nágrenni
skálans. Þeir leggja nú allt kapp
á að flýta uppsetningu skálans
og lyftunnar svo hægt verði að
bjóða upp á ferðir um páskana.
Um síðustu helgi var skíða-
mönnum boðið að kynna sér
svæðið og að sögn þeirra voru
aðstæður þarna mjög góðar til
skíðaiðkana.
Líklega verður boðið upp
fastar ferðir einu sinni í viku í
sumar auk helgarferða. Fólki
gefst kostur á að gista í skálan-
um, en einnig munu þeir hjá
Jöklaferðum leiðbeina við bygg-
ingu snjóhúsa, ef fólk óskar
frekar eftir að nota slík gisti-
hús.
f sambandi við þessar ferðir
gefst fólki kostur á að fara á
Breiðubungu, sem er í um 1530
m hæð. Þaðan er fagurt útsýni
m.a. til Snæfells, Kverkfjalla og
Öræfajökuls.
Gert er ráð fyrir að vegurinn
upp að jöklinum verði orðinn
fólksbílafær í sumar. Þá geta
ferðamenn á leið um landið
komið þar við og brugðið sér
með í jöklaferð, svona til að
auka á fjölbreytnina.
Haukur.
Skurðurinn sem grafinn hefur verið í Vatnsmýrinni við Norræna húsið.
Skurðgröfuframkvæmdir í Vatnsmýrinni:
Allt tal um eyðilegg-
ingu á Tjörninni út í hött
— segir Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri
„Það er verið að endurhreinsa
gamla skurði og þurrka upp svæði I
kringum flugbrautirnar og þetta
Já, hjá okkur í Blómum og ávöxtum er voriö komiö
bæöi í Hafnarstræti og viö Miklatorg.
Nú erum viö aö taka fram þaö allra — allra besta
úrval af pottablómum sem viö höfum nokkru sinni
fengiö.
Yfir
100
mismunandi geröir af verulega fal-
legum blómum sem sannarlega eru
þess viröi aö fólk gefi sér tíma til að
skoöa. Veörið hefur veriö gott að undan-
förnu en helgarverðiö okkar er enn betra.
VWVTA^
ͧ55®
^092*^
\0^G
VIÐ MIKLATORG
- Heimilisfriöur kr. 90
| Hedera kr. 90 («j||
3 Ceneraria kr. 140
* Heimilisvöndur kr. 140
Allir vita aö úrvalið af afskornum
blómum er hvergi meira en hjá
okkur.
Veriö ávallt velkomin
-BLOM^Á\miR
Hafnarstræti 3.
kemur engan veginn niður á Iffrfki
eða umhverfí Tjarnarinnar," sagði
Hafliði Jónsson, garðyrkjustjóri
Reykjavíkurborgar, er hann var
spuröur um framkvæmdir með
skurðgröfum norðan við fíugbraut-
irnar á Reykjavíkurflugvelli. „Allt
tal náttúruverndarmanna um eyði-
leggingu á Tjörninni hefur ekki við
rök að styðjast."
Hafliði Jónsson sagði ennfremur
að í þessum gömlu skurðum hefðu
leynst pyttir sem gátu verið vara-
samir ef einhver þvældist þarna út
í. „Vatnsmýrin er gömul mómýri og
var á sínum tíma aðal eldiviðar-
forðabúr borgarbúa. Síðan var
þessum mógröfum lokað á sínum
tíma. Þegar farið var út i
jarðræktartilraunir hér um alda-
mótin var mikið af þessu mýrlendi
ræst fram með skurðum, sem liggja
þarna út í Tjörnina. Til að nýta
þessar mýrar á sínum tíma þurfti
að ræsa þær fram og þessum skurð-
um hefur alltaf verið haldið við,
þangað til núna fyrir nokkrum ár-
um, að það var trassað að halda
þessu í horfinu. Þetta kom þannig
fram á flugbrautunum að þar fór að
safnast fyrir vatn við flugbrautar-
endana, sem gat verið varasamt.
Það hefur líka verið stefna núver-
andi flugmálayfirvalda að fegra
svolítið í kringum flugvöllinn og
þetta er liður í því. Hingað til hefur
ekki verið hægt að fara þarna um
með nokkurt tæki til að vinna þetta
land og gera það hirðanlegt, svo að
flugmálastjóri fór út í að láta grafa
upp þessa gömlu samanföllnu
skurði.
Ég er ekki aðili að þessari fram-
kvæmd, en mér finnst þetta svo
eðlilegt og sjálfsagt að ég skil ekki
hvers vegna verið er að blása þetta
upp. Náttúruverndarmenn segja að
það sé verið að eyðileggja Tjörnina
með gruggi, en þetta sjatnar strax
og annað eins grugg hefur nú komið
i Tjörnina. Það kemur mun meiri
mengun í Tjörnina af götum borg-
arinnar, olíubrák eftir bíla og þess
háttar. Allt tal um eyðileggingu er
því ekkert annað en „fanatík," sagði
garðyrkjustjóri.
Innbrotið í Borgamesi:
Tveir menn í
gæzluvarðhald
TVEIR menn á fertugsaldri voru úr-
skurðaðir í gæzluvarðhald á fostu-
dag vegna rannsóknar Rannsóknar-
lögreglu ríkisins á innbroti í sölu-
skála Olíufélagsins Skeljungs við
Brúartorg í Borgarnesi þegar liðlega
200 þúsund krónum var stolið það-
an.
Á föstudag fundust ávísanir í
skúffu úr peningaskápnum við
Hlaðhamar í Hvalfirði. í skúff-
unni fundust ávísanir að upphæð
um 80 þúsund krónur. Um 120
þúsund krónur í peningum hafa
enn ekki komið í leitirnar. Menn-
irnir, sem úrskurðaðir voru I
gæzluvarðhald, hafa ekki viður-
kennt að hafa verið að verki í
Borgarnesi.
Rudolf Serkin
Ragnar Jónsson í Smára.
Serkin leikur í minningu
Ragnars Jónssonar
MÁNUDAGINN 11. mars nk. verða haldnir tónleikar á vegum Tónlist-
arfélagsins í Háskólabíói og hefjast þeir kl. 21.00. Þar leikur Rudolf
Serkin píanóleikari verk eftir Beethoven, Sónötu op. 13 „Pathetique“,
Sónötu op. 81 a „Das Lebewohl“ og Diabelli-tilbrigðin.
Tónleikar þessir eru helgaðir minningu Ragnars Jónssonar í
Smára, sem var einn af stofnendum Tónlistarfélagsins, formaður
og líf þess og sál um margra ára skeið.
_ , e , , (Fréttatilkynning)
Sjá grein um Hudolf Serkm og tonleikana a bls. 21B.