Morgunblaðið - 10.03.1985, Side 5

Morgunblaðið - 10.03.1985, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985 5 Morgunblaðið/ RAX F.v. Jón Hjaltalín Magnússon, verkefnisstjóri samstarfsverkefnisins, Magnús L. Sveinsson, formaður atvinnumála nefndar Reykjavíkur, Davíð Oddsson, borgarstjóri, Guðmundur Magnússon, háskólarektor, og Eggert Jónsson borgarhagfræðingur. Höfnin í Rotterdam í Hollandi er sannkallaöur miðpunktur flutninga í heiminum. Um hana fer meiri varningur en nokkra aðra höfn í veröldinni - þar mætast skip frá öllum heimshornum og þaðan liggja landvegir um alla Evrópu. Rotterdam hefur lengi verið mikilvægur viðkomustaður Eimskips og þar með íslenskra inn- og útflytjenda. Vikuleg áætlun þangað með ekjuskipunum Álafossi og Eyrarfossi, og beinar siglingar á tíu daga fresti með 3 gámaskipum á leiðinni Reykjavík - Rotterdam - New York - Reykjavík tryggir tíðan og öruggan flutning. Með öflugri skrifstofu í Rotterdam og þrautþjálfuðu starfsliði þar aukum við enn þjónustu okkar við viðskiptavini. Heimilisfang Rotterdamskrifstofunnar er: EIMSKIP - ROTTERDAM Albert Plesmanweg 151 3088 GC Rotterdam Sfmi: 9031 10 282933 Telex: 62122 EIMSK NL Símskeyti: EIMSKIP P.O. Box 54034 3008 JA Rotterdam Flutningur er okkar fag EIMSKIP Simi 27100 * Háskólinn stofnar fyrirtæki á sviði tövlubúnaðar Með skrifstofu Eimskips í Rotterdam verður... Hvetja háskólafólk til þátttöku í atvinnulífinu „Það má segja, að nú sé samstarf háskólans og borgaryfirvalda aö koma upp á yfirborðið," sagði Davíð Oddsson, borgarstjóri, á fundi meó fréttamönnum í gær þar sem greint var frá samstarfsverkefni atvinnu- málanefndar Reykjavíkur og Há- skóla íslands og kynningarfundi, sem þessir aðilar munu gangast fyrir í sameiningu þ. 16. mars nk. undir heitinu „Háskólamenntun og at- vinnurekstur". Á fundinum í fundarsal borgar- ráðs í gær voru einnig Guðmundur Magnússon, háskólarektor, Magnús L. Sveinsson, formaður atvinnu- málanefndar Reykjavíkur, Jón Hjaltalín Magnússon, verkefn- astjóri samstarfsverkefnisins og Eggert Jónsson, borgarhagfræð- ingur. Kom fram í máli þeirra, að kynn- ingarfundurinn er meðal annars boðaður á þeirri forsendu, að há- skólamenntun og önnur sambæri- leg sérþekking geti víða komið að meiri notum en raun ber vitni i íslensku atvinnulífi og voru mörg dæmi nefnd um slíkt. Nú liggur frumvarp fyrir alþingi, þar sem kveðið er á um að háskól- inn fái að stofna fyrirtæki, og upp- lýsti rektor, að nú þegar væri eitt slíkt í burðarliðnum. Er það fyrir- tæki á sviði tölvubúnaðar, sem Há- skóli íslands, Eimskipafélagið og Félag íslenskra iðnrekenda munu eiga og reka í sameiningu. Hlutafé fyrirtækisins, sem væntanlega mun hljóta nafnið Hátækni hf., nemur um 10 milljónum króna og sagði rektor, að hugsanlega gæti það átt eftir að skila háskólanum jafn miklum arði og happdrætti háskólans gerir nú. „Menn hafa haft af því áhyggjur, að atvinnutækifærum í landinu fjölgaði ekki nóg og við getum ekki gert okkur vonir um að það gerist af sjálfu sér,“ sagði borgarstjóri. „Það er líklegt, að senn dragi úr fjölgun starfa hjá hinu opinbera, ríki og sveitarfélögum, og þá þurfa störf á almennum vinnumarkaði að sama skapi að aukast á næstu ár- um. Hagsmunir háskólafólks eru augljósir, þegar haft er ( huga, hve stór hluti þess er í opinberri þjón- ustu.“ Dagskrá fundarins er sniðin að því markmiði fundarboðenda að hvetja sem flesta háskólastúdenta og starfandi fólk með háskóla- menntun til þess að hugleiða á hvernig það geti fært sér þekkingu sína betur í nyt en það hefur gert sér hugmyndir um til þessa. Verður því fyrst og fremst fjallað um hag- nýtar upplýsingar, sem koma að gagni við stofnun og rekstur nýrra fyrirtækja og rekstrardeilda, svo og við vinnu að framgangi hug- mynda í sambandi við einhvers konar starfsemi í eigin þágu eða á vegum annarra. „Það er farsæl ráðstöfun hjá borgarstjóm, að hugsa fram í tím- ann með þessum hætti,“ sagði Guð- mundur Magnússon, háskólarekt- or. „Það er eðlileg þróun og hefur færst í vöxt, að háskólinn taki að sér þjónustuverkefni og starfi með aðilum í atvinnulífinu og með þess- ari ráðstefnu, eða kynningarfundi, viljum við hvetja háskólamenntaða einstaklinga til að nýta hugvit sitt og menntun í atvinnulífinu. Með því helst þjóðinni á háskólafólki og ennfremur ætti að vera hægt að flytja íslenskt hugvit út fyrir landsteinana". Eitt af því sem til stendur að gera til þess að stuðla að auknum tengslum háskólans við atvinnulíf- ið er að laða fyrirtæki, t.d. á sviði hugbúnaðar, til þess að byggja { nágrenni háskóians. Þykir slíkt sambýli hafa gefið góða raun er- lendis og hefur Reykjavíkurborg i hyggju að bjóða fyrirtækjum lóðir í landi Keldnaholts, með samvinnu við rannsóknarstofnunina þar í huga. Sem dæmi um góðan árangur af samstarfi og þjónustu háskólans við utanaðkomandi aðila nefndi rektor Reiknistofnun háskólans, en um helmingur af tekjum hennar kemur nú frá aðilum utan háskól- ans. Þá minntist hann á samstarf Orðabókar Háskólans við IBM og sagði, að u.þ.b. 20% af ráðstöfun- arfé háskólans færi nú í rekstur utan hans. HOFNHEIMS dálítíð íslensk!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.