Morgunblaðið - 10.03.1985, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 10.03.1985, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985 33 ingsherberginu með Morgun- blað sem ég hafði haft meðferðis og lagt frá mér. „Hei, þú gleymdir Morgunblaðinu," sagði hann. Ég kvaddi aftur og kom mér fyrir í troðfullum hljómleika- salnum. Hljómleikar Fólkið var byrjað að klappa þegar Cohen og hljómsveit gengu inn á sviðið. Hljómsveit- ina skipa: Ron Getman gítar, John Crowder bassi, Richard Crooks trommur, Mitch Wat- kins gítar og fyrrnefnd Anjami Thomas hljómborð, en flest koma þau við sögu á nýju plöt- unni. Cohen þakkaði fólkinu fyrir að koma og byrjaði á laginu „Bird on the Wire“, en Cohen byrjar alla hljómleika sína á þessu lagi. Kris Kristofferson hefur sagt að hann ætli að nota upphaf ljóðsins sem grafskrift sína. Leonard Cohen hefur sagt að sér muni sárna ef ekki verður staðið við það. Næst sagði hann að kæmi gamalt lag sem einhverjir könn- uðust kannski við, „Hey, That’s No Way To Say Goodbye", af fyrstu plötunni hans. Síðan tók hann lag af nýju plötunni, „Coming Back To You“. Þar næst var röðin komin að laginu „The Gypsy’s Wife“, en þetta lag var einmitt tekið með miklum tilþrifum 1 fyrrnefndum sjón- varpsþætti. Á eftir því kom ann- að nýtt lag, „Dance Me To The End Of Love“, og urðu þá mikil fagnaðarlæti og ákaft klappað með, en þetta ásamt öðru nýju lagi, „Hallelujah", af nýju plöt- unni hafa náð töluverðum vin- sældum, meira að segja heyrst á báðum rásum útvarpsins í Reykjavík, sem þó hampar Co- hen ekkert um of. Lagið sem kom á eftir því var „Diamonds In The Mine“, en í kynningunni á því lagi bað Cohen fólk að fara ekki, það yrði aðeins stutt hlé eftir lagið, síðan kæmu mörg lög á eftir. í þessu lagi tóku gítar- leikararnir mikil sóló til skiptis. Eftir hlé kom Cohen einn fram á sviðið, við mikinn fögn- uð, fólk klappaði, blístraði og hrópaði að það elskaði hann. Hann vatt sér strax í lagið „Avalanche", og síðan sagði hann að næsta lag gerðist á hót- eli í New York, þar sem hann hefði hitt frábæra söngkonu, eitt af ljósum aldarinnar, hún hafi dáið stuttu seinna, en það hafi þó líklega ekki verið vegna þess að hún hitti hann, hún hafi verið stórkostleg söngkona og hafi heitið Janis Joplin og á eft- ir fylgdi auðvitað „Chelsea Hot- el 2“, en eins og fólk kannski veit, syngur hann þar um stutt ástarævintýri er þau áttu. Al- gjör þögn ríkti á meðan á flutn- ingi lagsins stóð. Á eftir fylgdi „The Stranger Song“ og enn hlustuðu áheyrendur með sömu andaktinni. Nú kom hljómsveitin aftur á sviðið og var þá flutt lagið „Story of Isaac", en þar notar Cohen söguna þegar Guð sagði Abraham að fórna syni sínum til að sanna trú sína, sem dæmi um þegar einni kynslóð er fórn- að í þágu annarrar. í þessu lagi tók annar gítarleikarinn helj- armikið bottleneck-sóló. Nú var komið að laginu „Famous Blue Raincoat", um mann kokkálaðan af vini sínum, og endar á orðun- um: „sincerely L. Cohen". Fór Anjami Thomas á kostum í lag- inu. Enn á ný þakkaði hann móttökurnar. Síðan sagði hann að næsta lag væri nokkuð langt, þannig að ef fólk hefði eitthvað annað að gera, þá myndi hann ekkert móðgast þó það gengi út að sinna erindum sínum. Þetta lag sameinaði margt af því sem hann hafði verið að gera. Var þá komið að laginu „The Night Comes On“, sem ég skil sem Co- hen sé að fjalla um ákveðin at- vik úr lífi sínu. Það fór enginn út. Lagið sem á eftir kom, kom áheyrendum á óvart, enda engin furða, því hér var á ferðinni kántríslagarinn „Tennessee Waltz“. Næst í röðinni var lagið „Hallelujah", sem minnst var á hér að framan. Var það mjög kraftmikill flutningur, en Cohen hlífði röddinni dálítið í viðlag- inu, en það kom ekki mikið að sök, því hljómsveitin raddaði stórkostlega. Og áheyrendur líka. I lok lagsins tók Cohen af sér gítarinn, þakkaði fyrir sig og gekk af sviðinu á meðan hljóm- sveitin lék síðustu tóna lagsins. En fólkið var ekki á því að sleppa honum strax, blístraði, stappaði, hrópaði og klappaði. Og Leonard Cohen gekk aftur inn á sviðið. Ung kona hljóp upp á sviðið og gaf honum risavax- inn blómvönd og kyssti manninn í bak og fyrir. Var beðið ákaft um „So Long Marianne", en það kom ekki, heldur lag með þeim viðeigandi titli „I Tried So Hard To Leave You“. Lagið var léttur blús og söng hljómborðsleikar- inn smákafla með miklum til- þrifum og léku gítarleikararnir báðir frábærlega. Þar á eftir kom „The Sisters of Mercy", með stórkostlegri röddun. Strax á eftir kom „Memories" og í lok þess lags gekk Cohen af sviðinu. Áheyrendur stóðu klappandi upp og hópuðust upp að sviðinu. Cohen kom enn á ný og nú var hið gamla góða „Suzanne" á dagskrá. Þögnuðu þá áheyrend- ur og hlustuðu allir sem einn. Á eftir var öskrað ákaft: „We love you, we love you“. Enn einu sinni var hann farinn af sviðinu, enn einu sinni var hann klapp- aður upp. Var á ný beðið um „So Long Marianne", en það kom ekki, heldur var tekið „Bird on the Wire“, lagið sem allt hófst á. Voru áheyrendur í stórri breiðu rétt framan við sviðið og sungu með, rúmlega tvö þúsund manna kór. Að laginu loknu þakkaði Cohen enn einu sinni móttök- urnar, bauð góða nótt og gekk af sviðinu undir dynjandi lófataki. Á heimleið Á leiðinni á járnbrautarstöð- ina hitti ég tvær stelpur og var önnur þeirra sú er gefið hafði Cohen blómin á hljómleikunum. Voru þær hinar ánægðustu með kvöldið og ræddum við aðeins um hljómleikana. Ég sýndi þeim dálítið sem Leonard Cohen hafði skrifað á miða og gefið mér. Öskruðu þær upp yfir sig, fálm- uðu með höndunum og sögðust jafnvel drepa mann til að kom- ast yfir svona. Ég kvaddi þær í flýti og hraðaði mér í lestina. Að endingu Ef þessi umfjöllun virkar sem ein samfelld lofrulla, án nokk- urrar gagnrýni, er aðeins ein ástæða fyrir því: Þetta voru stórkostlegir hljómleikar. Haukur Holm Áskoranir Landverndar: Gegn byggingu sumarbústaða við Þingvallavatn Með fólkvangi í Elliðaárdal Stjórn Landverndar, Landgræðslu og náUúruverndarsamtaka lslands, hefur samþykkt ad skora á borgar- stjórn Reykjavíkur, bæjarstjórn Kópavogs og Náttúruverndarráö, að vinna skjótt aö stofnun fólkvangs í Elliöaárdal í samræmi viö fyrri ályktanir. Þetta kom fram á fundi forráða- manna samtakanna með frétta- mönnum sl. miðvikudag og sagði Þorleifur Einarsson, formaður Landverndar, að það yrðu mikil vonbrigði ef snúið yrði baki við fyrri samþykktum um að gera fólkvang í Elliðaárdalnum. „Það er búið að vinna að þessu máli á annan áratug og allir flokkar hafa verið sammála um að láta það verða að veruleika. En nú virðist allt í einu eiga að snúa við blað- inu,“ sagði Þorleifur. Þá hefur stjórn Landverndar hvatt hreppsnefnd Þingvalla- hrepps og jarðanefnd Árnessýslu til að endurskoða afstöðu sína til bygginga sumarbústaða í landi Mjóaness í Þingvallasveit og aft- urkalla leyfi, sem veitt hafa verið. Þá segir í ályktuninni: „Enn- fremur er skorað á Þingvalla- nefnd, Náttúrverndarráð og Skipulag ríkisins, að leyfa ekki byggingu sumarbústaða við Þing- vallavatn fyrr en gengið hefur verið frá heildarskipulagi svæðis- ins. Skorað er á ofangreinda aðila, ásamt hlutaðeigandi hreppsnefnd- um og sýslunefnd Árnessýslu, að vinna saman að verndun og frið- lýsingu landsins umhverfls Þing- vallavatn." Sótt um þrjú prestaköll FIMM prestaköll voru fyrir skömmu auglýst laus til umsóknar og er um- sóknarfresturinn nú runninn út. Sr. Hörður Þ. Ásbjörnsson, Reykjavík, sækir um Sauðlauks- dalsprestakall í Barðastrand- arprófastsdæmi, en þar hefur ver- ið prestslaust um árabil. Um Stað- arfellsprestakall í Þingeyjarpró- fastsdæmi, þar sem sr. Jón A. Baldvinsson prestur í London þjónaði síðast, sækir séra Sigurð- ur Árni Þórðarson prestur að Ás- um í Skaftártungu og um ná- grannakallið, Háls í Fnjóskadal, þar sem séra Kristján Róbertsson hefur þjónað síðustu árin, sækir séra Hanna María Pétursdóttir, Ásum í Skaftártungum. Engar umsóknir bárust um prestaköllin á Raufarhöfn og Djúpavogi. Fréu frá búkupætofu.) Mósambík: Arás á búgarð Mapulo, MÓHambfk, 8. mare. AP. SEXTÁN óbreyttir borgarar féllu í árás skæruliða í Mósambík á af- skekktan ríkisbúgarö sl. mánudag. Var frá þessu skýrt fyrst í dag í út- varpinu í Mósambík. Þetta er í annað sinn á tveimur mánuðum sem skæruliðar sem berjast gegn marxískum stjórn- völdum í landinu ráðast á búgarð- inn og nálæga sykurræktarstöð. í fyrra sinnið voru skæruliðarnir hraktir á brott af hermönnum stjórnarinnar. Suður-Afríkustjórn studdi áður skæruliðana en með samningi milli hennar og stjórn- arinnar í Mósambík var þeim stuðningi hætt. Á móti kom, að afríska þjóðarráðinu var úthýst í J Mósambík. ÞESSAR FALLECU VARADEKKSHLÍFAR FÁST HJÁ OKKUR — þægilegar í notkun — — veörast ekki — — auðvelt aö hreinsa — HEKLA HF Laugavegt 170-172 Simi 21240 A MITSUBISHI LjlCWB J 50% verðlækkun á loftsíum og smursíum í A L-300 bíla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.