Morgunblaðið - 10.03.1985, Page 37

Morgunblaðið - 10.03.1985, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985 37 „Félagsleg afþreyingar- stöð fyrir vímulausa“ Á FUNDI sem haldinn var í Hótel Hofí sl. miðvikudag voru gerð drög að stofnun félags forcldra, aðstand- cnda og áhugamanna, sem hafa það markmið aö koma á laggirnar fé- lagslegri afþreyingarstöð fyrir vímu- laust fólk á öllum aldri. Þá sér í lagi ungt fólk eða unglinga og mættu um 100 manns á fundinn. Á fundinum kom fram, að þörf- in á svona félagi væri mikil. Þá kom einnig fram á fundinum að svo kölluð 12-sporanefnd væri nauðsynleg, en hún hjálpar og að- stoðar ungt fólk sem hefur orðið útundan í þjóðfélaginu og hjálpar þeim á rétta braut. Einnig voru rædd sjónarmið aðstandenda og hvernig hugsanlegt væri að fá unglinga til að koma í þetta félag en vera ekki aðeins þiggjendur, heldur og virkir þátttakendur í uppbyggingu og starfi félagsins. Að lokum var skipuð 11 manna nefnd, sem vinnur að undirbún- ingi félagsins og kannar ýmis mál. Hún mun boða til stofnfundar innan mánaðar og leggja fram drög að lögum félagsins. Síðan verður kosin stjórn félagsins. Ýmsir aðilar hafa sýnt þessu fé- lagi áhuga, þar á meðal félagar innan SÁÁ og Æskulýðsfélags Reykjavíkur og sátu félagar þeirra fundinn. Að undirbúningi stofnfundarins standa 64 félagar. (Úr rrétutilkynningu.) 160 tonn af dilkafram- pörtum til Japan BÚVÖRUDEILD Sambandsins hef- ur gert samning um sölu á 160 tonn- um af frystum dilkaframpörtum til Japan. Er Vs hluti kjötsins þegar far- inn með skipi áleiðis til Japan. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem íslenskt dilkakjöt er selt til Japan. Magnús Friðgeirsson, fram- kvæmdastjóri búvörudeildarinn- ar, sagði í samtali við Mbl. að sal- an á frampörtunum til Japan leysti ákveðinn vanda sem ávallt væri við að etja í kjötsölunni, vegna þess að frampartarnir sætu yfirleitt eftir. Til dæmis hefðu Svíar ekki keypt framparta. Einn- ig seldust hryggir og læri betur hér innanlands. Sagði hann að verðið væri reyndar í lægra lagi, 840 dollarar tonnið, en það væri þó viðunandi vegna þess að þetta væri verðminni hluti dilksins. Verðmeiri hluti dilkanna hefði verið seldur til Svíþjóðar og yrði að líta á það verð sem fengist fyrir skrokkana í heild. Japanska fyrirtækið sem keypti dilkaframpartana kaupir mikið af hvalkjöti af Hval hf. í Hvalfirði. Fékk fyrirtækið einnig 3—4 tonn af kældu úrbeinuðu hrossakjöti með flugvél í tilraunaskyni fyrir nokkru. Sagði Magnús að ekki væri vitað hvernig hrossakjötið hefði líkað og engar frekari pant- anir borist. Fróóleikur og skemmtun fyrirháa sem lága! Fjölmennur fundur í Félagsstofnun Samtök kvenna á vinnu- markaði efndu til fjöl- menns baráttufundar í Fé- lagsstofnun stúdenta á föstudagskvöldið. Myndin er tekin á fundinum. Morgunblaðið/ RAX t*£>ER'nreD§ spjallaðviðjarfsrne upplýsvngar. peir veita þer tusieg miHiliðalaus persónuIegÞÍón^>rn^ kaup. innflutningur trygg'r Þer na9

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.