Morgunblaðið - 10.03.1985, Page 39

Morgunblaðið - 10.03.1985, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985 39 Tveggja ára hnáta kemur í sí- fellu hlaupandi og rýfur blaða- lesturinn. Hún er að sýna leik- fangastafina sína: E, stafurinn hennar Ellu! o.s.frv. Hún þekkir nær alla stafina og það er leikur að læra. Lesarinn lítur í hvert sinn upp úr blaðagreininni í sendibréfsformi til þjóðfélags- ins. Þar er Anna Snorradóttir að rifja upp hvernig hún lærði að lesa: „Lesturinn lærði ég af eldri bræðrum og sjálfri mér og las bækur og tímarit af því að það var gaman og enginn sagði mér að gera það. Reikning kenndi mamma mér með eldhússtörfun- um og sama er að segja um skriftina svo að ekki sé minnst á öll kvæðin, sem ég var látin fara með í eldhúsinu. Orði til orðs var þessu skilað án þess að skilja mikið, en það gerði ekkert til. Síðar kom skilningurinn og þá var þetta allt tiltækt.“ Blaðið og barnið runnu saman í einn punkt, sem gáraði hringjum. Fyrsta viðbragð nokkuð snöggt: Almáttugur, þegar þetta barn kemst á skólaaldur, má það ekki kunna nema 10 stafi á fyrsta skólaári! Og ekki hina stafina fyrr en eftir 7 ára bekk! Og ekki reikna tölur sem fara upp fyrir fimm! Það fer fyrir því eins og syni kunningjakonunnar. Mamman spurði hann hvað væru fjórum sinnum fimm. Þau gera slíkt stundum að leik. En nú sagði hann: Ég veit það ekki! — Víst veistu það, hélt hún áfram og fékk snöggt svar. — Nei, nú má ég ekki vita það! En hugurinn vildi ekki staðnæmast þar. Upprifjun Önnu leiddi hug- ann aftur til eigin barnaskóla- kennara, hennar Steinunnar Bjartmars í Austurbæjarskólan- um, sem fannst við eiga eftir að læra svo fjarska mikið í lífinu að nýtilegum tíma mætti ekki glutra niður. Tók að kenna okkur í 11 ára bekk á eigin spýtur „Lasse er en dreng" og „Lise er en pige“ svo að við gætum með sjálfsnámi á Knold og Tot og Gissuri Gullrassi í dönsku blöð- unum lært dönsku meðan við hefðum áhuga. Og hún tók sig til og benti foreldrum mínum á að ég væri fædd snemma í árinu og hún vildi færa mig um jól úr 12 ára bekknum yfir í 13 ára bekk- inn sinn, svo að telpan missti ekki heilan vetur úr að óþörfu, en sá námstími gæti komið í góðar þarfir síðar. Allt þetta magn af fróðleik biði úti í lífinu. Hún lét sér engu síður annt um að tíminn færi ekki til spillis hjá þeim sem gátu farið hraðar en að barn fengi ekki verkefni sem það réð ekki við. Þetta var góður kennari, að mér finnst. Og mörg- um kom hún til manns. Nokkrir áratugir eru síðan hinn vísi líbanski spámaður Kahlil Gibran svaraði kennara nokkrum sem bað hann um að tala við sig um fræðslu, með orð- unum: „Enginn getur birt ykkur nein sannindi önnur en þau, sem byltast í svefnrofum í ykkur sjálfum á morgni skilningsins." Nokkuð gott hjá karli? Enda við- urkenndur spekingur á heims- vísu. Missist ekki líka æði mikið magn af þessu „tiltæka", sem hún Anna talar um að hún hafi verið búin að heyja sér þegar skilningurinn kom síðar, ef hald- ið er aftur af svo mörgum börn- um á morgni skilnings meðan þau bíða eftir því seinfærasta, eftir að þau sjálf eru tilbúin að með taka? Er það ekki dulítið dapurlegt að svo margir skuli meðan þeir bíða missa af öllum þeim bókum sem maður lagðist í um leið og maður var orðinn læs, meðan enginn skammtaði hvað lítil börn mættu læra á hverju ári. Sjálfsagt er hárrétt að það ruglar kerfinu ef allir bíða ekki eftir þeim seinfærustu, en er það ekki dálítið mikið af sóuðum tíma hjá æði mörgum börnum þegar þeirra bíður svo miklu meira magn af fróðleik og skemmtan á bókum en þau kom- ast yfir á ævinni úti í lífinu? Fróðlegt að vita hvað foreldrun- um finnst? Nú, þegar á að fara að leggja meiri áherslu á sam- vinnu skóla og heimila, er þá ekki þarna verðugt verkefni um að fjalla og skiptast á skoðunum um. Franskir foreldrar og almenn- ingur í Frakklandi hafa að und- anförnu mjög komið til varnar sjálfstæði einstakra skóla og möguleikum þeirra til að bjóða upp á fjölbreyttari kennslu, þótt þeir verði styrktir af ríkinu og gæðaeftirlit fari fram. Tilefnið lagabálkur til að staðla og setja alla kennslu í nákvæmlega sama mótið. Ekki eru Frakkar aldeilis á því að börnin þeirra séu eins fremur en þeir sjálfir og henti alveg hið sama. Og einn góðan veðurdag marseruðu 3 milljónir manna í mótmælagöngu á götum Parísar. Annað eins hafði ekki þar sést, enda streymdi fólk að utan af landsbyggðinni. For- ustumenn stjórnarandstöðu, eðli slíkra samkvæmir, fundu auðvit- að strauminn og stilltu sér líka undir fánana. Þetta var mikil fylking! Og refurinn Mitterrand, sem í fyrstu forsetaræðu sinni hafði lýst því sem helsta máli sinnar stjórnartíðar að koma öllum skólum undir staðlaða miðstýringu, upphóf refskákina miklu, sem menn kenndu við fléttur Machiavellis eða at- burðarásina hjá Shakespeare. Fréttatímarnir og fréttaskyr- ingarnar í útvarpinu urðu eins og spennandi reyfari, þar sem lögfræðingar, stjórnmálamenn og aðrir spekingar útskýrðu lagaflækjur og blæbrigði. Gamla pólitíska refnum tókst að snúa athyglinni yfir á lagaflækjur vegna frumvarps um allsherjar- atkvæðagreiðslu, Þ.e. „referend- um súr le referendum". Þ.e.a.s. hvort ætti að verða allsherjar- atkvæðagreiðsla um það hvort heimila eigi allsherjaratkvæða- greiðslur, sem þá mætti eftir at- kvæðagreiðslurnar hugsanlega nota á skólafrumvarpið. Ruglaði ekki aðeins sina eigin fjölmiðla heldur líka alla aðra, þar með þá íslensku, sem héldu að verið væri að tala um atkvæðagreiðslu um skólafrumvarpið. Þegar enginn vissi lengur um hvað var deilt, fórnaði hann forsætisráðherran- um sínum, Pierre Mauroy, og með honum m.a. sínum aðalridd- ara Savary kennslumálaráð- herra, sem hafði staðið í ströngu við að koma í gegn skólafrum- varpi forsetans — án þess að lata hann vita og eftir að hafa beðið hann að segja ekki af sér vegna þess að það væri slæmt fyrir stjórnina. Lét nýja ráð- herrann Jean Pierre Chevenem- ant vippa sér í bakgír. Skipti bara um allt ráðherragengið og tók enga ábyrgð á sínu skóla- frumvarpi. Beindi athyglinni að öðru brýnu máli, tæknivæðing- unni til að bjarga efnahag og at- vinnu. Og viti menn, Frakkar sögðu gjarnan í gælutóni: Góði gamli refurinn! Alltaf er hann snjall! Botnaði margur lltt í hvað hafði gerst. Fyrir einn út- lendan áhorfanda að leiknum var þetta skemmtileg uppákoma. Ekki síst fyrir þann sem líka hafði fyrir tilviljun verið í Frans þegar Mitterrand stokkaði síðast upp sína stjórn. Hitti þá Lang ráðherra sem ekki vissi þá stundina hvort hann var enn ráðherra í stjórn hans. En þetta var lykkja á leið. Vindum okkur aftur í skólana. I tilefni norrænnar samvinnu sem efst er á baugi rifjast upp á dönsku grúkkan hans Piets Hein „Man lærer for livet“: Man lærte jo geografi engang. Men det blev man ikke fed a’. Jeg husker endnu som en efterklang at Sydpolen vender neda’. Minning: Gróa Dagmar Gunnarsdóttir Fædd 22. febrúar 1912 Dáin 28. febrúar 1985 Á morgun verður amma mín, Gróa Dagmar Gunnarsdóttir, jarðsungin. Um miðbik síðasta árs varð ljóst að hún átti við erfiðan sjúkdóm að stríða. Á tímabili var unnt að ætla að læknum hefði tek- ist að komast fyrir meinið, en því miður reyndist það illviðráðanlegt og eftir erfiða baráttu lést Gróa fyrir skömmu. Hún fæddist á Bergstaðastræti 21 í Reykjavík, 22. febrúar 1912, og var skírð í höfuðið á móðurömmu sinni Rögnvaldsdóttur. Foreldrar hennar voru Gunnar Jónsson og Valdimaría Helga Jónsdóttir. Bú- skapur þeirra var ávallt í Reykja- vík, þótt ekki væru þau reykvísk að uppruna. Gunnar (foreldrar: Jón Guðmundsson bóndi á Uxa- hrygg og Margrét Einarsdóttir frá Akurey í V-Landeyjum) fæddist á Uxahrygg á Rangárvöllum 29. júlí 1872 og dó fyrir aldur fram í Reykjavík, 8. júlí 1921. Valdimaría Helga (foreldrar: Jón Jónsson frá Skrautási í Árnessýslu og Gróa Rögnvaldsdóttir frá Reykjadal í Árnessýslu) fæddist í Litla-Gerði í Grindavík 3. mars 1882 og andað- ist í Reykjavík 13. desember 1963. Gunnari og Valdimaríu Helgu varð sex barna auðið. Komust fjögur þeirra til fullorðinsára. Amma mín var ekki einvörð- ungu borinn og barnfæddur Reyk- víkingur, heldur bjó hún í höfuð- borginni alla sína tíð. Ef talið er frá Gróu Rögnvaldsdóttur, var amma þriðji ættliðurinn með bú- setu í Reykjavík og nú er svo mál- um komið, að finna má 6 ættliði frá Gróu Rögnvaldsdóttur, sem hafa haft búsetu hér í borg. Ég hafði ávallt meir og meir á tilfinn- ingunni eftir því sem ég eltist og kynntist ömmu betur, að hún væri mjög meðvituð um Reykjavík og umhverfi hennar. Hún virtist fylgjast vel með því, sem kom fram í fjölmiðlum um málefni Reykjavíkurborgar, hvers eðlis sem þau voru, og hafði gjarnan afdráttarlausar skoðanir á ólíkum málefnum. Einnig má til sanns vegar færa að hún hafi verið stolt af því að vera Reykvíkingur. Sú kynslóð, sem nú er að komast til vits og ára á ef til vill erfitt með að skilja viðhorf af þessu tagi. En þó er þetta skiljanlegt ef grannt er skoðað. Hafa ber í huga að amma telst til þess hóps manna, sem á mörgum tugum ára varð vitni að því, að Reykjavík breyttist úr smá þéttbýliskjarna í stórborg. Og að upplifa alla þá grósku, sem orðið hefur á fjölmörgum sviðum og alla þá merku viðburði, sem átt hafa sér stað á þessu tímabili, var ömmu án efa nægilegur hvati til að bera slíkar tilfinningar í brjósti. Hér voru hennar rætur. Þess háttar reynslu kynnist maður vissulega að mjög tak- mörkuðu leyti við lestur sögubóka. Aðeins það að upplifa slíkt gerir manni nægilega kleift að skilja hvað hér um ræðir. Þó fannst mér ég stundum nálgast þessa hlið ömmu, er við spjölluðum um liðna tíma á heimili hennar á Lang- holtsveginum. 8. október 1932 var stór dagur í lífi ömmu. Þá giftist hún Hannesi H. Agnarssyni, eftirlifandi manni sínum. Hann fæddist á Fremsta- gili í Langadal í Austur-Húna- vatnssýslu, 1. nóvember 1910. For- eldrar hans voru Agnar Bragi Guðmundsson (f. á Refsteinsstöð- um í Víðidal í Vestur-Húnavatns- sýslu 10. október 1875, d. í Reykja- vík 2. desember 1953) og Guðrún Sigurðardóttir (f. á Höskuldsstöð- um á Skagaströnd 18. maí 1878, d. í Reykjavík 23. febrúar 1947). Ungt fólk var ekki öfundsvert af því að hefja búskap á þessum tíma. Kreppan í hámarki og hart í ári. En betri tíð kom með blóm í haga og seinna breyttust lífskjör fólks stórlega til hins betra vegna hernámsins, eins og alþjóð er kunnugt og fólk gat leyft sér að segja „blessað stríðið". I stríðslok réðust afi og amma í að reisa stórt og myndarlegt hús á Langholts- vegi 81. Þar bjuggu þau lengst af í hjónabandi sínu, eða i röskan ald- arfjórðung. Við barnabörnin eig- um okkar bestu minningar um ömmu og afa úr þessu húsi og garðinum umhverfis það. Verður nánar vikið að því síðar. Hannes og Gróa eignuðust fjög- ur börn: Gunnar Valdimar, f. 22. apríl 1933, prentari og verslunar- stjóri. Maki er Sigurjóna Símon- ardóttir og eru börn þeirra fimm talsins; Edda Hrönn, f. 4. maí 1937, húsmóðir. Maki er Garðar Sölvason og eru börn þeirra fimm að tölu; Guðrún, f. 24. janúar 1948, bankastarfsmaður. Maki er Hrafn Sigurðsson og eiga þau 2 börn; Agnar, f. 30. júlí 1954, bifvélavirki og starfsmaður SÁÁ. Maki er Anna Helgadóttir og eiga þau 2 börn. Ég minnist ömmu minnar sem einstaklega hlýrrar og skemmti- legrar manneskju. Hún var væg- ast sagt dásamleg heim að sækja. Amma hefur verið mér og systkin- um minu svolítið sérstök, því að móðuramma okkar andaðist löngu fyrir fæðingu okkar. Þess vegna hefur það verið okkur ómetanlegt hvað Gróa amma var okkur góð. Reyndar má segja hið sama um Hannes afa. Móðurafi okkar and- aðist fyrir aldur fram án þess að við gætum notið hans eins og við hefðum viljað, en það á aðallega við um okkur yngstu systkinin. Á Langholtsvegi 81 var oft margt um manninn og glatt á hjalla. Þá naut amma sín og er ekki ofsögum sagt að hún hafi virkilega verið húsmóðir eins og þær voru og hétu hér á árum áður. Heimili hennar var alltaf tand- urhreint og hún hafði sérstaklega gaman af því að eiga fallega hluti er prýddu heimilið. Er gestkvæmt var voru borð hlaðin kræsingum. Amma elskaði það að ættingjarnir kæmu saman og gerðu sér daga- mun og lék þá á als oddi. Annars var hún hlédræg kona og lítið fyrir að hafa sig í frammi. Hún var á stundum kröfuhörð, en kunni vel að meta það sem vel var gert. Nefna má dæmi í því sam- bandi. Bróðursonur hennar, Guð- mundur S. Jónsson, fór reglulega í heimsókn til ömmu sinnar, Valdi- maríu Helgu, og átti góðar stundir með henni, en gamla konan var oft ein og var henni þetta því kær- komið. Slík umhyggja þótti Gróu ömmu mjög virðingarverð. Þegar ég hef ekið eftir Lang- holtsveginum hef ég staðið sjálfan mig að því að stöðva bílinn við hús nr. 81. Minningarnar hafa ósjálf- rátt komið upp i hugann. Það er í raun makalaust hvað eitt svona hús og það sem gerðist innan þess og utan hefur varðað líf margra. sem tengjast Hannesi og Gróu. Hér er um að ræða ættingja og vini, börn barnabörn og tengda- fólk. Garðurinn umhverfis húsið bauð ávallt af sér mikinn þokka; iðjagrænt gras, fögur blóm, tígu- leg tré. Þar lékum við krakkarnir saman og ærsluðumst í glampandi sól og blæjalogni. Aldrei gleymi ég því er ég fékk að gista hjá ömmu og afa í nokkra daga, smápatti. Þá fannst mér ég vera í paradís. Ekk- ert skyggði á tilveruna, ekki einu sinni þegar ég datt á bossann á leiðinni niður stigann og missti koppinn minn. Amma klappaði mér á kollinn og spurði hvort ég hefði meitt mig. Ekkert amaði að mér og hún hló bara að öllu sam- an. Húsnæðið á Langholtsveginum varð á endanum of stórt fyrir afa og ömmu og fluttu þau í Álfheima 72 fyrir rúmum áratug. Nú þegar Gróa Dagmar Gunn- arsdóttir er gengin á fund feðra sinna stendur eftir í hugum ætt- ingja og aðstandenda minning um yndislega konu. Einhvers staðar stendur, að sælla sé að gefa en þiggja. Það finnst mér eiga vel við um ömmu. Hún geislaði af gleði og kærleika og var umhugað um að allir væru ánægðir og enginn liði skort. Hún veitti öllu sínu fólki fyllingu í drungalegu skammdeg- inu. Enda kom í ljós þegar hún var orðin veik, hve mikils virði hún var sínu fólki. Hefur það vonandi yljað henni um hjartarætur hve mikla athygli og umhyggju hún hlaut. Enginn reyndist henni þó betur en afi og má segja að hann hafi verið með annan fótinn í sjúkrastofu hennar. Elsku afi á um sárt að binda og er missir hans mikill. En öll él birtir upp um síðir og einhvern tímann sameinast Gróa og Hannes á ný og verður þá mikið um dýrðir. Megi góður guð blessa minningu heilsteyptrar konu, sem var fólki sínu ómetan- leg, og veita afa styrk og stoð. Ragnar Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.