Morgunblaðið - 10.03.1985, Blaðsíða 44
Norðurlandaráð:
44
MORCUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985
Sendum ekki
skatteítirlitinu
svona boðskort
Þegar skatteftirlitsmenn fara yfir framtalsgögn
'c5'-' ' W y fyrirtækja með aðstoð nýjustu tölvutækni fá þeir
/ stundum upp í hendurnar það sem þeir kalla „Boðskort‘
- þ.e. gloppur í framtali eða bókhaldi sem þrautþjálfaðir
/ eftirlitsmenn sjá að eru tilraunir til skattsvika. í framhaldi af
þessu fer fram nákvæm rannsókn á öllum fjárreiðum
fyrirtækisins.
Stöndum saman um heiðarleg framtöl
öllum aðilum, bæði framtalsskyldum og
öðrum, er skylt að láta skattyfirvöldum í té
ókeypis, og í því formi sem óskað er, allar
nauðsynlegar upplýsingar og gögn er þau
beiðast og unnt er að láta þeim í té, t.d.
bókhald og bókhaldsgögn, svo og önnur
gögn er varða reksturinn, þar með talin bréf
og samningar.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Annir í
Skyggni
ANNASAMT hefur verið hjá starfs-
mönnum Skyggnis að undanförnu
vegna fréttaútsendinga norrænna
blaðamanna. Á miðvikudag voru
sendar út 4 fréttaútsendingar til
Norðurlanda um gervihnött og fjöll-
uðu allar um ummæli Jóns Baldvins
Hannibalssonar, formanns Alþýðu-
flokksins, um jafnaðarmenn á Norð-
arlöndum. Á mánudag voru þrjár út-
sendingar, hver 10 mínútna löng,
sendar til Norðurlanda, tvær á
þriðjudag en aðeins ein í gær.
Að sögn Jóns Þórodds Jónsson-
»r, yfirmanns Skyggnis, eru
'réttaútsendingar og móttaka
rétta óverulegur hluti notkunar
>kyggnis. Starfið er að langmestu
ólgið i afgreiðslu simtala til og
'rá landinu um gervihnetti.
gnæfellsnes:
Mesta
sjávarflóð
síðan 1925
Hellnum, 8. mnrs.
MIKLAR skemmdir urðu á hafnar-
mannvirkjum hér á Hellnum og á
Arnarstapa í fárviðrinu og brhninu
sem gekk yfir í nótt. Annað eins
sjávarflóð hefur ekki komið hér síð-
an árið 1925.
Hér á Hellnum fór 45 metra
langur skjólgarður af elsta hluta
bryggjunnar, sem liggur frá landi
fram á sker, og platan af bryggj-
unni fór af helmingi þess hluta.
Elsti hluti bryggjunnar var fylltur
upp með hnullungsgrjóti og hefur
brimið grafið þá fyllingu úr.
Bryggjuveggurinn að vestanverðu
stendur þó enn. Bátar sem voru
efst í fjörunni, upp undir gras-
brekkunum, sluppu óskemmdir en
flóðið gekk alveg upp að þeim og
sá neðsti fór á flot.
Skúr, með tölvuvigt, sem var á
bryggjunni á Arnarstapa fór á
hliðina og töluverður hluti af
grjótgarði, sem verið hefur í bygg-
ingu síðan í sumar, fór í briminu.
Er þetta eitt mesta sjávarflóð sem
hér hefur komið í manna minnum
og það mesta í 60 ár eða frá árinu
1925.
Fréttaritari
Búið að skipa
tekjuskipt-
ingarnefnd
Tekjuskiptingarnefnd sem ætlað
er að kanna tekjuskiptingu og breyt-
ingu á henni í þjóðfélaginu síðastlið-
in 10 til 15 ár, hefur verið skipuð af
Steingrími Hermannssyni forsætis-
ráðherra, samkvæmt samkomulagi
stjórnarflokkanna frá því fyrr 1 vet-
ur.
Nefndina skipa þeir Hallgrímur
Snorrason, hagfræðingur er for-
maður, Bolli Bollason frá Þjóð-
hagsstofnun, Björn Björnsson,
viðskiptafræðingur og Vilhjálmur
Egilsson, hagfræðingur. Mun
nefndin hefja störf sín alveg á
næstunni.
Meiningin er að ráðgjafarnefnd
skipuð hinum lögbundnu samráðs-
aðilum starfi með tekjuskipt-
ingarnefndinni og verði henni inn-
an handar. Lögbundnu samráðs-
aðilarnir hafa enn ekki tilnefnt
sína fulltrúa i þá nefnd, en auk
þeirra verður einn fulltrúi frá
hverjum þingflokki í nefndinni.