Morgunblaðið - 10.03.1985, Side 60
60
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985
(
REKSTRARAFKOMA A-HLUTA RiKISSJOÐS
NETTÓSKULD A-HLUTA RiKISSJÓOS VIO SEOLABANKANN
I LOK HVERS ARS Heimitd: Seðiabanki Island*
A moö»lv8rðl8gi hvera érs, sem hlutfall af VÞF
4,0
1977 1978 1979 1980 1981 1982 1983 1984
til sín
Styrkari staða ríkissjóðs:
tekur minna
— Meginmál að byggja upp grundvöll nýrra framfara
l*egar þjódartekjur rýrna þriðja árið í röð, eins og nú hefur gerzt, er
eðlilegt að þær kröfur fái byr í segl að ríkisbúskapurinn dragi saman segl í
útgjöldum, til að axla sinn hluta af vandanum. I»etta hefur gengið eftir.
Ríkisskattar hafa lækkað sem hlutfall að þjóðartekjum, þrátt fyrir rýrnun
þeirra. Engu að síður skánaði staða ríkissjóðs verulega 1984 vegna hagræð-
ingar og aðhalds í rfkisbúskapnum. I'ingbréf fjallar lítillega um þetta efni í
dag.
Kíkisbúskapurinn
Þegar vinstri stjórnir ríkja í
landinu vaxa ríkisútgjöld og
skattheimta jafnt og þétt. Þetta er
eins konar „náttúrulögmál“.
Stækkandi hlutur ríkisbúskapar-
ins í þjóðartekjum, hvort heldur
sem tekinn er með tekju- eða
eyðslusköttum, rýrir aö sjálfsögðu
þær eftirstöðvar, sem koma til
frjálsrar ráðstöfunar almennings
og atvinnuvega, þ.e. fólks og fyrir-
tækja. Að því verður síðar vikið.
Hitt skiptir ekki minna máli
fyrir allan almenning hvern veg er
með skattféð farið; að hagræðing
og aðhald ráði ferð í ríkisbú-
skapnum. Það er að sjálfsögðu
vilji skattgreiðenda, sem borga
brúsan, að fá sem mest fyrir sem
minnst, þ.e. að beztu kosta sé gætt
í ríkisbúskapnum.
Fjölmörg dæmi sýna, að hægt er
að tryggja sömu þjónustu, jafnvel
betri þjónustu, fyrir minni fjár-
muni ef rétt er að málum staðið,
samanber uppstokkun í rekstri
ýmissa opinberra stofnana. Þetta
gildir ekkert síður um fram-
kvæmdir en þjónustu, samanber
vaxandi verkútboð, sem hafa spar-
að skattborgurum stórfé. Fjár-
festingarmistök, eins og t.d.
Kröfluvirkjun, geta hinsvegar
bitnað þungt á þeim. Raunar er
erlend skuldasöfnun og fjárfest-
ingarmistök, sem taka drjúgan
hluta þjóðartekna „fram hjá
skiptum", ein af meginorsökum
lágra launa á íslandi, með og
ásamt pólitískum vanrækslusynd-
um við uppbyggingu verðmæta-
sköpunar í landinu.
Afkoma ríkis-
sjóðs 1984
Albert Guðmundsson, fjármála-
ráðherra, gerði fjölmiðlum nýlega
grein fyrir stórbættri stöðu ríkis-
sjóðs í árslok sl. árs, miðað við
árið á undan, síðasta fjárlagaár
Ragnars Arnalds, fjármálaráð-
herra Alþýðubandalagsins. Meðal
þess sem fram kom hjá honum má
nefna:
• Greiðsluafkoma A-hluta ríkis-
sjóðs 1984 var 1.386 m.kr. betri en
1983. Greiðsluafkoman 1984 var
jákvæð um 639 m.kr. en neikvæð
1983 um 747 m.kr.
• Tekjur umfram gjöld á
greiðslugrunni námu 783 m.kr.
Arið áður vóru gjöld umfram tekj-
ur hinsvegar 1.163 m.kr. Rekstrar-
afkoma A-hluta ríkissjóðs á
greiðslugrunni hafði því batnað
um 1.946 m.kr.
• Ríkissjóður bætti stöðu sína á
lána- og viðskiptareikningi um 560
m.kr. 1984.
• Heildarskuldir A-hluta ríkis-
sjóðs hjá Seðlabanka íslands
námu í ársbyrjun 1984 1.435 m.kr.
en í árslok 1.182 m.kr. Skuldirnar
lækkuðu um 253 m.kr. á árinu.
• Rekstarafkoma A-hluta ríkis-
sjóðs, sem hlutfall af gjöldum í
árslok 1984, var jákvæð um 3,9%
og hefur ekki verið hagstæðari allt
frá árinu 1977. Á þessu tímabili
var rekstrarafkoman raunar að-
eins tvisvar jákvæð, þ.e. um 1,5%
1981 og 2,6% 1982.
• Nettólántökur A-hluta ríkis-
sjóðs lækkuðu um 117 m.kr. frá
árinu áður. Lántökuheimildir
A-hluta ríkissjóðs að fjárhæð 900
m.kr. vóru ekki nýttar.
Hér er stiklað á stóru. Sýnt er
þó að staða ríkissjóðs hefur batn-
að verulega á næstliðnu ári, þrátt
fyrir rýrðar þjóðartekjur og lækk-
aða skatta sem hlutfall af þjóðar-
tekjum.
Vinstri skattar
og síðari breytingar
Vinstri stjórn A-flokkanna
beggja og Framsóknarflokks hóf
feril sinn 1978 með því að leggja á
afturvirka skatta, sem frægt varð
enda einsdæmi. Álagningu tekju-
og eignaskatta var lokið en ríkis-
stjórnin ákvað með bráðabrigða-
lögum að bæta 50% viðauka á
tekju- og eignaskatta einstaklinga
með meiru. Þessi skattauki varð
síðan viðvarandi næstu árin. Með-
al nýrra skatta, sem til komu á
vinstristjórnarárum 1978—1983,
má nefna: 1) gjald á ferðalög til
útlanda, 2) skatthækkun á benzíni
umfram verðlagshækkanir, 3) að-
lögunargjald, 4) 2% hækkun sölu-
skatts, 5) 6% hækkun vörugjalds,
6) hækkun verðjöfnunargjalds á
raforku um 6%, 7) orkujöfnun-
argjald; auk framangreindrar
hækkunar tekju- og eignaskatta
og sérstaks aukaskatts á verzlun-
ar- og skrifstofuhúsnæði.
Nokkuð hefur verið höggvið af
vinstriskatta-skóginum, þó þar
standi enn mörg tré, og stefnt er
að afnámi tekjuskatts á venju-
legar tekur í áföngum; 600 mkr.
lækkun kemur til framkvæmda
1985. Um þetta efni sagði Albert
Guðmundsson, fjármálaráðherra,
í fjárlagaræðu:
„Um árangur af þeirri viðleitni
að draga úr ríkisumsvifum er það
að segja, að á árinu 1983 var hlut-
ur ríkisins í þjóðarframleiðslunni
30,7%. í ár er gert ráð fyrir að
hlutfall ríkisins nemi 29,4% og
samkvæmt fjárlögum ríkisins
1985 mun hlutur ríkisins lækka
enn í 29,3%. f fjárhæðum talið er
hér um að ræða um 1,3 milljarða
króna, sem ríkið tekur minna til
sín í ár en á árinu 1983 þrátt fyrir
að þjóðarframleiðsla dragizt sam-
an milli áranna."
Þegar þess er gætt, hve ríkið
tekur minna til sín af þjóðartekj-
Hveragerði
Til sölu bifreiðaverkstædi í fullum rekstri. Uppl. í
síma 99-4525 og 99-4535.
NÝTT — NÝTT
HÁRHÖLL S.H.S. og SNYRTISTOFA ÖNNU BERGMAN
Sími 14447 Sími 22353
Laugavegur 82, inngangur frá Barónsstíg, 2. hæö.
Nýjustu línur frá London og Kaupmannahöfn.
HEIMSINS MESIA ÚFMAL
AF ZOOM UÓSRÍTUNARÆLUM
Veitum alla þjónustu
fyrir nýjar og eldri gerðir
MINOLTA véla.
Höfum tekið að okkur
umboð fyrir MINOLTA
Ijósritunarvélar.
ZOOM LJÓSRITUNARVÉLAR - HREiN TÖFRATÆKI
mmWMUM KJARAIM HF ármlila22 reykjavík sími83022 MINOLTA