Morgunblaðið - 10.03.1985, Page 63

Morgunblaðið - 10.03.1985, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985 63 (y\\c í Listmunahúsinu Myndlíst Bragi Ásgeirsson Ekki verður annað sagt en að Magnús Kjartansson myndlistar- maður sé iðinn við kolann. Hann hefur haldið þrjár einkasýn- ingar á jafn mörgum árum og alltaf komið fram með ný verk og sýnt á sér ðlíkar hliðar. Að vísu hefur hann stuðst við svipaða tækni hin síðari ár og hér notar hann ljósnæman papp- ír og nær fram á hann ýmsum táknum úr hlutveruleikanum með tækni frá fyrstu árum ljós- myndarinnar, — þarnæst málar hann með vatns- þekju og akrýl- litum svo sem andinn býður hon- um hverju sinni. Pappírinn límir hann á léreft og festir á blind- ramma. Þetta hefur verið iðkað í listheiminum allt frá því að popp-listin var í mestum blóma og í hinni margvíslegustu mynd, því að tæknin gefur óteljandi möguleika til tjáningar, en ég held að Magnús hafi verið fyrst- ur til að hagnýta sér tæknina hé'rlendis. Sýning Magnúsar í Listmuna- húsinu er um ýmislegt ólík þeirri er hann hélt þar síðast en þó blasa við manni í myndunum kunnugleg tákn, sem Magnús hefur verið iðinn að nota hin síð- ari ár. Á einum stað er ljóasper- an á öðrum geitarhöfuðið, anker- ið, krókurinn, að ógleymdum handa- og fótþrykkjunum, sem eru áberandi á þessari sýningu. Magnús lætur sér þannig ekki nægja, að leita til bernsku lós- myndarinnar heldur einnig myndlistarinnar sjálfrar og sjálfstjáningarinnar. En svo sem kunnugt er þá eru elstu forn- minjar er fundist hafa og túlka tjáningarþörf frummannsins, einmitt handa og fótþrykk á hellisveggjum. Magnús meðhöndlar þessi tákn sin um margt á annan hátt en áður, — þau eru ekki lengur hið ríkjandi atriði í myndunum en falla inn í þær sem hluti heildar. Þá málar hann líka meira í myndirnar en áður. Fyrir vikið eru myndirnar meira málverk en minna Ijós- SÉRPÖNTUM VARA- OG AUKAHLUTI í FLESTAR GERÐIR BIFREIÐA. VIÐ ERUM í ALFARALEIÐ FYRIR BORGARBÚA OG AÐ- EINS EINU SÍMTALI í BURTU FRÁ ÖÐRUM. V A R AHLUTAVERS L U NIN SIMAR: 34980 og 37273 PÓSTSENDUM UM LAND ALLT Fróöleikur og skemmtun fyrirháa semlága! myndir og þykir mér það einmitt vera styrkleiki sýningarinnar því að Magnús er ótvirætt meiri málari en ljósmyndari. Hið þokukennda yfirbragð er einkenndi fyrri myndir Magnús- ar í tækninni hefur vikið fyrir ferskum tjáríkum málunarmáta svo sem I myndunum „Afríka“ (I) er minnir um margt á Cobra-listamennina, „Grænn varstu dalur“ (4), „Göt á svörtu tjaldi" (7) er leiðir hugann til Rauschenbergs, „Ýmis vafamáP (15), „Heitir lófar, hvað svo sem síðar verður" (17) og „Sól ek sá“ (18). I öllum þessum myndum og nokkrum fleiri í líkum dúr þykir mér Magnús vera í essinu sínu og kominn inn á nýjar brautir þar sem hin artistfska kennd hans nýtur sín einkar vel. Sterkasta verkið á sýningunni er þó að mínu mati hin stóra mynd í sex hlutum er nefnist „Líf mitt stekkur á milli raf- skauta" (3) en þar kemur fram mikil fjölbreytni i gerð ólíkra myndtákna er mynda öfluga og áhrifamikla heild. Sýningin staðfestir styrk Magnúsar Kjartanssonar sem málara um leið og hún vekur upp spurningu hjá skoðandanum hvort ekki sé tími kominn til að hann mundi pensilinn meira og þráðbeint á ferskt léreftið. Glerborgar K-qlerið sannar að stundum er..„ , ...tvöíalt r, betra en þreialt í Samkvæmt ákvæðum nýrrar byggingareglugerðar á nú að nota þrefalt gler, eða gler með samsvarandi einangrunargildi, í nýbyggingar á íslandi. K-glerið frá Glerborg er svarið við auknum einangrunar- kröfum. Enn sem fyrr er Glerborg í fararbroddi íslenskra glerframleiðenda og býður nú húsbyggjendum tvöfalt gler með mun betra einangrunargildi en venjulegt þrefalt gler hefur. K-gler Glerborgar er ný tegund glers, par sem önnur glerskífan er húðuð sérstöku einangrandi efni sem hleypir sólarljósi ogyl inn, en kemur í veg fyrirað hitinn streymi út. K-glerið frá Glerborg uppfyllir ákvæði hinnar nýju byggingareglugerðar, það minnkar hitunarkostnað, en veitir óskert og fullkomið útsýni. Einangrunargildi glers: Tegund elnangrunarglers Loftrúm milli qlerja K-glldl K-glldl m/argon Venjulegt tvöfalt gler 12 mm 3,0 2,8 Venjulegt þrefalt gler 12 mm 2,1 1.9 K-gler tvöfalt (diaplus) 12 mm 1.8 1,45 Einangrunargildi er mælt í W/m2 og kallast k-gildi. Því lægri sem k-gildistalan er, þeim mun betri einangrun. K-gler. Elnangrunarhuð á Innanverðu glerlnu. Hafðu samband strax við sölumenn okkarog fáðu nánari upplýsingar. K-glerið á erindi til allra húsbyggjenda í dag. K-gler. Sólarljós naer óhlndrað f gegn, 90% af hitanum haldlð Innl. GLERBORG HF. DALSHRAUNI 5 - HAFNARFIRÐI - SÍMI53333

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.