Morgunblaðið - 10.03.1985, Page 65

Morgunblaðið - 10.03.1985, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MAR2 1985 65 Tv»r stólalyftur á Pankan. Á verönd veitingastaöarins á Hintertux-jöklinum. Á veggnum stendur aö staóurinn sé 2.660 metrum yfir sjóvarmáli. hvernig þeir skyldu bera sig að þeim lystisemdum, sem upp á væri boðið. Á mánudagskvöldið kom hann á sameiginlegu borðhaldi, fondu-kvöldi á stærsta hóteli st.að- arins, Sporthotel Strass. Tvisvar var sameiginleg ferð á Hintertux- jökulinn og þá farið í langferða- bifreið. Þá efndi hann til sleðaferð- ar eitt kvöldið. Farið var til Wiesendorf, sem er í miðjum hlíð- um Ahorn, í um 7 km fjarlægð frá Mayrhofen. Renndu menn sér síðan niður til Mayrhofen á tveggja manna sleðum og þótti þeim, sem þátt tóku í þessari skemmtan, þetta hið mesta ævintýr. Þá var einn dagur notaður til þess að fara í skoðunar- og verzlunarferð til ít- alíu og Innsbruck. Farið var árla morguns og ekið eftir hraðbraut- inni um Brennerskarð til lítillar borgar sunnan landamæranna við Ítalíu, sem heitir Sterzig. Þetta er borg í Suður-Tyrol, sem við stríðs- lok lenti innan Italíu, en borgin ber mjög austurrískan svip og á krám sitja karlar og spila á spil yfir bjórglasi og spjalla saman á þýzku. Þarna snæddu ferðalangamir há- degisverð og greiddu fyrir með tæplega 17.000 lírum. Þessi máltíð var þó alls ekki dýr, því hún var íafnvirði 320 króna. Gerðu menn mjög að gamni sínu með lírurnar og bar mönnum saman um að þarna hefði verðlagið verið eitt- hvað svipað því sem verið hefði heima, ef myntbreytingin hefði ekki átt sér stað fyrir rúmum fjór- um árum. Höfðu menn á orði, að ekki veitti ítölunum af að fella niður svo sem eins og tvö til þrjú núll. Á heimleiðinni var aftur ekið um Brennerskarð og þá um þorpið Matrei, sem gjöreyðilagðist í heimsstyrjöldinni síðari. Á vegg kirkjunnar í þorpinu er málverk eitt mikið til þess að minna á þessa atburði. Um 1960 gerðist og sá at- burður, að þorpið brann allt til kaldra kola. Það hefur þvf tvisvar verið endurreist úr rústum á þess- ari öld og allt byggt upp eins og það var áður. Áður en haldið var aftur í Zill- ertal, var komið við í Innsbruck. Þar voru skoðuð ólympíumannvirk- in frá því er vetrarleikarnir voru haldnir þar í borg og á stökkpallin- um eru greipt í kopar öll nöfn gull, gilfur og bronz vinningshafa í hin- um ýmsu greinum vetraríþrótta. Nú munu Austurríkismenn hafa sótt um að fá að halda ólympiu- leika enn einu sinni og það í þriðja sinn í Innsbruck, árið 2000. Tveimur dögum áður en íslend- ingarnir héldu heim til Islands, hittist allur hópurinn í Andreas- keller, veitingastað f nágrenni kirkjunnar í Mayrhofen. Þar var dansað og sungið eins og Tyrolum er einum lagið og varð af mikil skemmtan. Þessi skíðaferð til Austurríkis stóð í tvær vikur og samtals gáfust 13 dagar til skiðaiðkana. Undirrit- aður hefur áður farið í sólarlanda- ferð og líkað vel. Þessi ferð var þó allt öðru vísi og gjörólík sólar- landaferð, þótt sólin skini í heiði nær upp á hvern einasta dag. Einn ferðalanganna sagði við mig f upp- hafi ferðarinnar: „Ég spái þvf að þetta verði eitthvert bezta frí, sem þú hefur farið í. Ég hef farið áður og slappa aldrei betur af en einmitt í slíkum skíðaferðum." Hann hafði lög að mæla. Kyrrsetumenn geta ekkert betur gert en fara á skíði. Með því reyna þeir á likamann og þeir stælast um leið og þessi góða íþrótt er skemmtilegri en orð fá lýst. Þökk sé Rudi Knapp og ferða- félögunum öllum fyrir skemmtileg- ar febrúarvikur f Zillertal-ölpun- um. — mf. Ferming fiamundan? Falleg fermingarvara í miklu úrvali Fyrir fermingarbörnin: Fyrir fermingarveisluna: Vasaklútar.kr. 81.- Úrval af servíettum .... kr. 81.- Slæður....kr. 129.- Kökustyttur kr. 75.- Nethanskar .kr. 195.- Fermingarkerti 3 gerðir . kr. 79.- Hárkambar..kr. 95.- kr. 109.- Blóm í hár.kr. 16.- kr. 345.- Hanskar....kr. 75.- Kertastjakar kr. 65.- kr. 110.- Áletrum servíettur og sálmabækur. Bókabúð ^.MALS & MENNINGAR. LAUGAVEG118-101 REYKJAVÍK SÍMAR: 24240-24242 JETTA PÝSKUR KOSTAGRIPUR FRÁ VOLKSWAGEN Hannaöui sem heíðbundinn heimilisbíll en heíur til að bera þœgindi og aksturseiginleika lystivagnsins. 5 GERÐIR HREYFLA EFITR VAU MA TURBO DIESEL Verð frá kr. 417.000,- 6 <Sra rydvamarcaiDyrgð fulHEKLAHF t Laugavegi 170 -172 Sími 21240

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.